Heimilisritið - 01.09.1948, Qupperneq 56
Rosamund Darnley kom síð-
ust, og var mjög áhyggjufull.
„Linda kemur ekki. Hún segist
hafa svo slæman höfuðverk“.
„Hún hefur gott af að koma
með“, sagði Poirot. „Reynið þér
að fá hana til þess“.
„Það er þýðingarlaust. Hún
er alveg óíáanleg. Eg gaf henni
aspirín, og hún háttaði. — Ég
held að ég kæri mig heldur ekki
um að fara“.
„Það verður alls ekki látið
viðgangast“, hrópaði Blatt, og
leiddi hana að fremsta vagnin-
um.
„Ég verð hjá Lindu“, sagði
Christine Redfern. „Ég kæri
mig ekkert um að fara með“.
„Svona Christine, komdu nú“,
sagði Patríck.
„Já, þér megið til með að
koma, madame“, sagði Poirot.
„Það er bezt að vera einn, þeg-
ar maður er með höfuðverk“.
Bifreiðarnar óku af stað.
Fyrst var ekið að Pixy-hellinum
við Sheepstone. Það var nokkr-
um erfiðleikum bundið' að finna
hellismunnann. Poirot hætti sér
ekki út í stórgrýtið. Hann horfði
á Christine Redfern, sem stökk
léttilega á grjótinu. Maður
hennar fylgdi henni fimlega eft-
ir. Rosamund Darnley og Emily
Brewster tóku þátt í leitinni;
einnig Stephen Lane. Horace
Blatt hrópaði uppörvunarorð-
um til þeirra, og tók af þeim
ljósmyndir.
Meðan á þessu stóð, sátu þau
Gardeners-hjónin og Poirot við
veginn. Orðaflaumurinn rann af
vörum frú Gardener.
„— — og mér hefur alltaf
fundist þessar ljósmyndatökur
geta verið blátt áfram móðg-
andi, Poirot, og maðurinn minn
er á sama máli. Nema svona rétt
á milli kunningja. Blatt kann
sig alls ekki. Hann gengur að
hverjum sem vera skal, og blað'r-
ar og tekur mynd umsvifalaust,
og eins og ég sagði við manninn
minn, það er ótilhlýðilegt og
bara alls engin kurteisi; er það
ekki, Odell?“
„Jú, elskan“.
„Eða myndin, sem liann tók
af okkur öllum í hóp, þarna á
ströndinni! Hann hefði nú átt • ,
að nefna það við okkur áður.
Svo var nú það, að ungfrú
Brewster var að standa upp, rétt
í því, og ég býst við' að það hafi
komið dálítið skrítilega fram á
myndinni“.
„Ég býst við því líka“, sagði
Gardener og brosti út undir
eyru.
„Og svo gefur Blatt myndirn-
ar hverjum sem hafa vill. Ég sá
að hann gaf yður eina, Poirot“.
„Já, og mér til mikillar á-
nægju“, sagði Poirot.
Rétt í þessu fannst Pixy-hell-
54
HEIMILISRITIÐ