Heimilisritið - 01.09.1948, Page 60
ég vaknaði af draumi, þegar ég
stóð fyrir framan gistihúsið. Ég
flýtti mér inn, því ég hélt að ég
væri orðin allt of sein; en þegar
ég leit á klukkuna í setustofunni,
sá ég að ég hafði alveg nógan
tíma“.
„Það er einmitt", sagði Poi-
rot. Svo sneri hann sér að' Mars-
halh
„Ég þarf nú að gera yður
grein fyrir því, sem ég fann í
herbergi dóttur yðar, eftir að
morðið var framið. I arninum var
vaxstykki, sviðið hár, tætlur af
pappír og pappa, og títuprjónn.
Það má vera að pappírinn og
pappinn komi ekki málinu sér-
lega við, en hitt hefur þýðingu,
einkum þar sem bók um galdra
og særingar var falin í bókahili-
unni. Þar mátti lesa um, hvernig
hægt væri að ráð'a niðurlögum
manns, með því að gera vaxlík-
an af þeim sem átti að ráða af
dögum. Síðan átti að bræða
þetta vaxlíkan í hægum eldi, eða
reka prjón í gegnum það, í
hjartastað. Eins og frú Redfern
sagði, fór Linda snemma út um
morguninn, og keypti kerti. Ég
er ekki í neinum vafa um, hvað
gerzt hefur. Linda hefur búið til
vaxlíkan, sem átti að' líkjast
Arlenu, ef til vill fest á það hár-
lokk af henni, til frekari líking-
ar; síðan hefur hún rekið títu-
prjóninn í gegnum þessa vax-
mynd, og brætt hana í arninum.
Þarna kemur að vísu fram
barnaleg hjátrú, en það lýsir
því, að hún hefur viljað Arlenu
feiga.
En er hugsanlegt að Linda
hafi getað myrt stjúpmóður
sína?
Fyrst í stað leit svo út sem
hún hefði fullgildar sannanir fyr-
ir sakleysi sínu. En, eins og ég
benti á áðan, var það einmitt
Linda sjálf, sem eyðilagði þessar
sannanir. Hún gat vel sagt, að
klukkan væri meira en hún var
— til dæmis fimmtán mínútum
meira.
Eftir að frú Redfern var kom-
in upp frá ströndinni, hefði
Linda vel getað komizt að Ar-
lenu, til að myrða hana. Hún
gat komizt upp stisann aftur,
áður en þau ungfrú Brewster og
Patrick Redfern komu á bátn-
um fvrir tansann, farið síðan
niður í Gull Cove og baðað sig.
áður en hún fór aftur heim í
gistihúsið. En til þess að fram-
kvæma þetta, varð hún fyrst og
fremst að hafa vitneskiu um að
Arlena væri stödd við Pixy
Cove, og í öðru lagi, varð hún
að hafa líkamlega krafta.
Hvað fyrra atriðinu viðvfkur,
þá er ekkert ósennilegt, að Linda
hefði getað sent Arlenu orð í
annars nafni. Viðvíkiandi hinu
síðara, þá hefur Linda mjög
58
HEIMILISRITIÐ