Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 18

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 18
366 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 lögunar, þar á meðal skólagöngu og atvinnu- þátttöku. Efniviður og aðferðir Gagna var aflað úr sjúkraskrám fyrstu 100 sjúklinganna. Skráð var hverjir vísuðu sjúk- lingunum til deildarinnar og ýmsar aðstæður við innlögn svo sem samskiptaörðugleikar og uppgjöf í fjölskyldu, þrot í skóla og fyrri með- ferðartilraunir. Skráð voru helstu vandamál unglingsins við innlögn, hve lengi þau höfðu varað, fjölskylduaðstæður og metið það sálfé- lagslega álag sem talið var skipta máli fyrir innlögnina. Við það mat var notaður sálfélags- legur álagskvarði fyrir börn og unglinga, sem fylgir hinu bandaríska sjúkdómsflokkunarkerfi DSM-III-R (15) og gefur stig frá 0-6 með vax- andi álagi (SÁ-stig). Kvarðinn fylgir í viðauka. Farið var yfir greindarmat og aðrar klínískar rannsóknir sem gerðar voru á deildinni, til þess að unnt væri að gera sjúkdómsgreiningu sam- kvæmt 10. útgáfu hinnar alþjóðlegu sjúkdóma- og dánarmeinaskrár (ICD-10) (16). Skráðar voru aðstæður við útskrift, einkum með tilliti til eftirmeðferðar og metin hver þörfin væri fyrir hana. Kí-kvaðrat próf með leiðréttingu Yates var notað til að bera saman fjölda einkenna og greininga meðal pilta og stúlkna og meðal þeirra sem voru yngri eða eldri en 15 ára. Vegna þess hve mörg einkenni voru borin sam- an er munur ekki talinn marktækur nema p- gildi sé <0,01. Við samanburð á meðaltölum var notuð dreifigreining (ANOVA) og staðal- skekkja ef gögn voru normaldreifð, en ella var notað Mann-Whitney próf. Munur er talinn marktækur ef p-gildi er <0,05. Niðurstöður Læknar vísuðu 59 sjúklingum til deildarinn- ar, en ástæður fyrir innlögn hjá fjórðungi þeirra voru fyrst og fremst hegðunartruflanir og/eða félagsleg vandamál, til samanburðar við 68% tilvísana frá félagsmálakerfinu sem vísaði fjórðungi sjúklinganna. Sálfræðideild skóla vísaði 10 unglingum og sex komu sam- kvæmt ósk frá foreldrum. Sjö unglingar höfðu nýlega verið á Unglingaheimili ríkisins. Beðið var um nánari greiningu og mat á þeirn, en í reynd var um mjög erfið mál að ræða, þar sem fyrri meðferðartilraunir höfðu ekki tekist. í 71 tilviki var tilvísunin til innlagnar á deild- Tafla I.Skipting eftir kyni og aldri. Stúlkur Piltar Samtals 11-13 ára 8 11 19 14-16 ára 43 31 74 17-19 ára 4 3 7 Samtals 55 45 100 Tafla II. Lengd innlagna eftir aldri og ky. ni. <15 ára >15 ára Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Samtals 0-8 vikur 8 7 11 17 43 9-26 vikur 11 13 10 9 43 >26 vikur 3 6 2 3 14 Samtals 22 26 23 29 100 Meðaltími (dagar) 124,7 130,7 80,0 80,7 103,2 Miðtími (dagar) 84 105,5 58,0 34,0 63 ina fyrstu samskipti við hana, en í 74 tilvikum var um bráðainnlögn að ræða. Að meðaltali liðu um 15 dagar frá tilvísun þar til sjúklingurinn var lagður inn. Meðferðar- tími á göngudeild fyrir innlögn var því að jafn- aði mjög stuttur. Athugað var hve lengi ung- lingurinn hafði átt við vandamál að stríða af geðrænum, félagslegum eða námslegum toga. I ljós kom að helmingur hafði haft slík vanda- mál í tvö ár eða lengur, og tæplega 40 í fjögur ár eða lengur. Tafla I sýnir að flestir sjúklingarnir voru á aldrinum 14-16 ára, en helmingur þeirra var 15 ára og eldri. Eins og við má búast komu flestir af Stór-Reykjavíkursvæðinu eða 59, og er hlut- fallið í samræmi við íbúafjölda svæðisins. Til- vísanir frá landsbyggðinni dreifðust nokkuð jafnt eftir landshlutum. Rúm 40% innlagna stóð skemur en níu vikur (tafla II), jafnmargar stóðu í tvo til sex mánuði og 14% lengur en sex mánuði. Síðastnefndi hópurinn lengir meðaldvalartímann verulega. Helmingur eldri stúlknanna dvaldi 34 daga eða skemur. Þeir sem voru eldri en 15 ára dvöldu að jafnaði skemur á deildinni en þeir sem voru undir 15 ára aldri. Hins vegar var ekki mark- tækur munur á dvalartíma kynjanna. í einstaka tilvikum voru unglingar í meðferð í hálft ár eða lengur. Þetta var gert vegna brýnna þarfa hjá þeim, en einnig vegna þess að starfsfólk deild-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.