Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 51

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 395 „A fundi lœknadeildar 29. júní fór Stefán Jónsson dósent fram á það, að staða hans yrði gerð að prófessorsembœtti, eða laun hans aukin sem svaraði prófessorslaunum. Deildin áleit þetta fyllilega réttmœtt með þeim störfum sem á hann eru lögð. Ég leyfi mér því fyrir hennar hönd að óska þess að háskólaráðið fari þess á leit við alþingi. Jafnframt vil ég fœra nokkrar ástœður fyrir þessari málaleitan. 1. Pað hefir komið í Ijós, að staða Stefáns Jónssonar nœr ekki tilgangi sínum í þvt' formi, sem hún er nú. Ef hann á að geta gefið sig við ýmsu rannsóknarstarfi, sérstaklega viðvíkjandi sóttvörnum og sóttkveikjufræði, þarf hann að vera laus við almenn lœkningastörf. Það tvennt getur ekki samrýmst. Þá þarfbæði að sjá rann- sóknastofunni fyrir betra húsnœði, bœta útbúm- að hennar allan og sjá henni fyrir tilraunadýr- um. Allar verulegar framfarir ísóttvörnum hér byggjast á því að þetta komist í framkvœmd. 2. Starf það sem á hann er lagt nú, er œrið starf fyrir einn mann: kennsla í sóttkveikju- frœði, líffœrameinafrœði, almennri sjúkdótna- frœði, vefjafrœði og svo bœtist nú við réttar- lœknisfrœði, sem enginn erfœr um að kenna af lceknum deildarinnar nema hann. Auk þessa hefur hann, þó ekki verði til frambúðar, all- mikla kennslu á hendi í efnafrœði. 3. Stefán hefur átt erfitt með að komast af síðan hann flutti heim og hefði þó gengið ólíku erfiðar, ef ekki hefði hann fengið ríflegan fé- styrk frá kennslu í efnafrœði. Honum stendur aftur til boða álitleg staða í Danmörku og hefur hann því í hyggju að segja hérstöðu sinni lausri, en þá er ekki sýnilegt að vér hefðum nokkurn mann í hans stað. Verður ekki fram úr þessum vanda ráðið nema að framtíð hans hér sé svo tryggð fjármunalega, að hann vilji vera hér. Himi leggur hann minna uppúr hvort prófess- orsnafnbót fylgir að svo stöddu eða ekki, enfrá deildarinnar sjónarmiði er það óviðkunnanlegt að gera stöðu hans að prófessorsembætti meðan ekki er sérstakur prófessor í lyflœknisfræði, annarri aðalgrein lœknisfrœðinnar. Deildin lýsti því og yfir á fyrrnefndum fundi að óhjákvœmilegt sé að gera kennarastöðuna í lyflækningum að prófessorsembœtti hið allra fyrsta. Af framangreindum ástœðum álít ég nauð- synlegt: a) Að Stefáni Jónssyni séu tryggð þau launa- kjör, að hann geti gefið sig allan við starfi sínu (prófessorslaun) og fáist til að vera hér. b) Að húsnœði og útbúnaður rannsóknar- stofunnar sé bætt svo sem nauðsyn krefur. Óska ég að háskólaráðið beri þessar kröfur fram fyrir alþingi. Fengist þeim fullnœgt myndi Stefán Jónsson taka að sér efnafrœðikennsluna endurgjalds- laust til þess sérstakur maður tekur við henni. Guðm. Hannesson 777 háskólaráðsins. “ Ekki bar þessi málaleitan tilætlaðan árangur og fékk Stefán lausn frá embætti í lok árs 1922 að eigin ósk, og fluttist til Danmerkur þar sem hann starfaði við almenn læknisstörf fram til ársins 1950. Stefán lést í Danmörku í ágúst 1961 án þess að sinna nokkrum rannsóknarstörfum svo vitað sé frá því hann kvaddi ísland. Þrátt fyrir ítrekaðar og eindregnar tilraunir stjórnar læknadeildar til að fá Stefán Jónsson skipaðan prófessor í meinafræði við Háskóla íslands varð stjórnvöldum ekki bifað í því máli. Þegar Stefán Jónsson hætti tók Guðmundur Thoroddsen við dósentsstöðunni í sjúkdóma- fræði og gegndi henni þar til í september 1926. En hér var aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, þar sem aðalstarf Guðmundar var próf- essorsstaðan í handlæknisfræði og yfirsetu- fræði, en í þá stöðu var hann skipaður í nóv- ember 1924. I gögnum Rannsóknastofu Háskólans frá fyrstu árum Níelsar Dungals sem forstöðu- manns er meðal annars bréf frá háskólaráði dagsett 18. maí 1929, þar sem þess er farið á leit að hann geri háskólaráðinu grein fyrir öllum tekjum og útgjöldum rannsóknarstofunnar ár- in 1923-28. í svari Dungals koma engar upplýs- ingar fram um tekjur og útgjöld stofnunarinnar frá 1923 og fram að þeim tíma að hann tekur við í október 1926. Má því ætla að þá hafi engin gögn verið tiltæk um rekstur stofunnar á árun- um 1923-26 og hafa engin fundist síðar. Um kennslu Guðmundar Thoroddsen, setts dósents í sjúkdómafræði og réttarlæknisfræði segir nánar í Árbók Háskóla íslands 1923-24 á eftirfarandi hátt: „1. Fór með viðtali og yfirheyrslu í3 stundir á viku yfir almenna sjúkdómafrœði eftir Schuma- us og Herzheimer. 2. Fór með viðtali og yfirheyrslu í 3 stundir á viku yfir líffærameinafrœði. Sýndi líffœri eftir föngum, holdsneiðar í smásjá og lík krufin. 3. Hafði verklegar æfingar í vefjafræði tvisv- ar í viku. 4. Feiðbeindi stúdentum daglega 2 stundir í

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.