Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1994, Síða 53

Læknablaðið - 15.10.1994, Síða 53
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 397 stofan geti cetíð starfað, efeinn er maðurinn og aðstoðarlaus, en hins vegar getur það ekki komið til mála, að Háskólinn beri kostnað af slíkum aðstoðarmanni, sem ynni auðvitanlega í þágu heilbrigðisstjórnarinnar. Eigi að síður tel- ur deildin kröfu landlæknis um aðstoðarmann fyllilega réttmœta. 3* Undanfarið hefur Rannsóknastofan skoð- að það skyldu sína, þótt óskrifað vœri, að leysa öll þau störf af hendi fyrir heilbrigðisstjórn og lœkna, sem kringumstœður leyfðu. Meira verð- ur ekki gert að svo stöddu. “ Allar gagngerðar endurbætur á stofunni, að- stoðarmaður og fleira, voru undir því komnar hvort ríkið fengist til að leggja nægilegt fé til verksins eða ekki. Á deildarfundi 6. október 1923 skýrði deild- arforseti frá því, að Stefán Jónsson hyggðist ekki sækja um dósentsembættið aftur. Á sama fundi var lesið upp símskeyti frá sendiherra íslands í Kaupmannahöfn til forsætisráðherra þess efnis að Pétur læknir Bogason væri fáan- legur í dósentsembættið, eftir hæfilegan undir- búning. Eftir nokkrar umræður um þá menn sem deildin taldi líklega kandídata, ákvað meiri- hlutinn að hallast að Pétri ef hann vildi gefa kost á sér nreð þeim skilyrðum sem deildin setti, það er að segja tveggja ára undirbúnings- nárni. Á deildarfundi í læknadeild 7. janúar 1924 er dósentsembættið í meinafræði enn á dagskrá. Pá skýrir deildarforseti frá því að forsætisráð- herra hefði tveimur dögum áður fengið skeyti frá Sveini Björnssyni, sendiherra Islands í Kaupmannahöfn, þess efnis að Pétur Bogason ætlaði að taka að sér að búa sig undir dósents- embættið í tvö ár, gegn því að sér væri veittur styrkur síðara árið. Með því að deildin hafði til umráða 2000 kr. einmitt í þessum tilgangi og forsætisráðherra hafði lofað að leita 1000 kr. fjárveitingar frá alþingi og deildin skilur sím- skeytið svo sem Pétur muni láta sér það nægja. Álítur deildin að þetta mál sé nú til lykta leitt. Á fundi læknadeildar 4. apríl 1924 getur deild- arforseti þess að hann hafi nýlega fengið bréf frá Pétri lækni Bogasyni, sem hefur skýrt frá að hann væri byrjaður að búa sig undir dósents- starfið. Síðan er ekki minnst á embætti þetta á fund- um læknadeildar fyrr en 9. janúar 1925. Þá er bókað að hælislæknirinn Pétur Bogason hafi bréflega tilkynnt prófessor Guðmundi Hann- essyni, að hann væri hættur við að búa sig undir starfið. Á sama fundi samþykkir deildin að mæla með Níelsi P. Dungal, cand. med. et chir., eftir að hann hefur hæfilega búið sig undir stöðuna, sem hann er fús að gjöra. Níels Dungal var skipaður dósent og for- stöðumaður Rannsóknastofu Háskóla Islands 1. október 1926 eins og fyrr er getið. Prófessor varð hann 1932 og lét mikið að sér kveða bæði innan læknadeildar og háskólans. Dungal gegndi embætti sínu til dauðadags 1965. HEIMILDIR 1. Bjarnason Ó, Ólafsdóttir E. Saga meinafræöirannsókna á íslandi I. Læknablaðið 1993; 79: 163-9. 2. Thoroddsen G. Stefán Jónsson Im Memoriam. Lækna- blaðið 1962; 46: 37-9. 3. Heilbrigðisskýrslur 1926. (Public Health in Iceland.) Reykjavík: Landlæknisembættið, 1928: 26-7. 4. Jónsson S. Isoagglutinin íblóði íslendinga. Læknablaðið 1922; 8: 65-7 og 81-2. 5. Jónsson S. Nogle Undersögelser over Isoagglutininer hos Islændere. Hospitalstidende 1923; 66: 45-50.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.