Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1994, Síða 59

Læknablaðið - 15.10.1994, Síða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 401 Óskráðar reglur hafa verið í gildi en verða nú fastmótaðar. Reikningar félagsins voru lagðir frarn með löglegri endur- skoðun og samþykktir. Þeir eru nú ekki eins vel sundurliðaðir fyrir hinn almenna fulltrúa og lækna eins og áður en hægt er að fá fulla skýringu og sundurliðun á skrifstofu læknafélaganna vilji menn þekkja einstaka liði reikningsins nánar. Vel hefur verið haldið á fjármálum lækna- samtakanna og umtalsverður hagnaður af rekstri á síðasta ári þrátt fyrir talsverðan kostnað að vonum vegna 75 ára afmælis Læknafélags íslands. Læknasamtökin eru nú flutt í ný heimkynni að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Húsið verður að fullu tilbúið seinnipart nóvem- ber á þessu ári og verður þá öll- um læknum gefinn kostur á því að koma í hin nýju húsakynni og þau formlega tekin í almenna notkun. Hin nýju heimkynni bjóða upp á fullkomna félags- lega aðstöðu fyrir lækna. Verð- ur þá í höndum lækna hvort vel tekst til um nýtingu og reynslan mun síðan endanlega skera úr um það hvort vel hafi til tekist eða ekki en í raun veltur niður- staðan að lokum á okkur sjálf- um. Stjórn Læknafélags íslands mun athuga rækilega hvort unnt er að breyta í einhverju rekstri skrifstofunnar. Nauðsynlegt er að hún sé opin allan daginn en kanna þarf jafnframt hvort ein- hverjum þáttum hennar verði komið fyrir með hagkvæmara móti heldur en nú er. Þær tekjur sem standa að baki rekstri læknasamtakanna leyfa Iítil út- gjöld umfram þau sem þegar eru og flest fastmörkuð. Hag- ræðing getur hugsanlega skapað eitthvert svigrúm til athafna sem útgjöld hefðu í för með sér. Mikilvægt er þó að hyggja að öðrum tekjustofnum en nú eru til reksturs samtakanna og nýt- ing á hluta þess húsnæðis sem brátt verður tilbúið gæti skapað tekjur. III Alyktanir þær sem samþykkt- ar voru á aðalfundi Læknafélags Islands eru birtar á öðrum stað í blaðinu og er vísað til þeirra og afgreiðslu þeirra. Þau verkefni sem niikilvægust eru framundan hjá Læknafélagi Islands eru: 1. Endurskoðun á lögum fé- lagsins með tilliti til framtíð- arskipulags (í það minnsta í allra næstu framtíð). 2. Markvist starf til þess að tryggja áhrif lækna á faglega stjórnun í heilbrigðiskerfinu í landinu. 3. Efling framhaldsmenntunar og þar með talin viðhalds- og síðar sérmenntun lækna á ís- landi. 4. Altæk gæðastjórnun í heil- brigðiskerfinu að frumkvæði lækna. 5. Virk þátttaka í alþjóðlegu starfi um menntun og þjálf- un, atvinnu, skipulag heil- brigðismála og siðfræði. Jafnframt þurfa læknasam- tökin áfram að ástunda læknis- fræðilegt menningarsögulegt hlutverk sitt og styðja slíka starfsemi í hvívetna. Nægir að nefna þar uppbyggingu Nes- stofu, stuðning við aðild að Gudmanns Minde á Akureyri og sögulega útgáfustarfsemi. Á nýafstöðnum aðalfundi var heimiluð útgáfa sögu lækna- samtakanna á Islandi enda verði gerðar ráðstafanir til þess að slík útgáfa stæði undir kostn- aði. Þá er ekki þýðingarminnst framundan það verkefni að reyna að koma svo fyrir kjara- málum lækna að þeir beri úr býtum eðlileg laun miðað við ís- lenskt launaumhverfi og miðað við þætti eins og menntun, lengd starfsævi, álag og ábyrgð í starfi, kostnað við viðhald menntunar og svo framvegis, sem ákvarða ættu kjör án þess að um margóhóflegt vinnuálag væri að ræða. Þetta verkefni verður lagt í hendur samninga- nefnda ineð stuðningi stjórna heildarsamtaka lækna. IV Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra sýndi aðalfundi Læknafé- lags Islands þann heiður að vera gestur fundarins og flytja þar er- indi sem fyrst og fremst fjallaði um þróun útgjalda ti! heilbrigð- ismála og þá meðal annars með tilliti til aðgerða sem viðhafðar hefðu verið til þess að útgjöld færu ekki úr böndunum. Erindi ráðherra mátti teljast faglegt og í kjölfar þess urðu langar og gagnlegar umræður. Fulltrúar á aðalfundi lýstu almennt þeirri skoðun sinni að þeir væntu þess að ráðherra hefði rneira samráð við Iæknasamtökin um skipulag í heilbrigðiskerfinu og að læknasamtökin væru reiðubúin að vinna með ráðuneytinu á fag- legum grunni að slíku skipulagi og axla ábyrgð með ráðu- neytinu á ráðstöfunum sem taldar væru faglega réttar þótt augljóslega myndu þær stund- um koma við einhvern og bitna stundum jafnvel á læknum sjálf- um að einhverju Ieyti. Var ekki annað að skilja á ráðherranum en hann væri reiðubúinn til þess að hyggja einlæglega að slíku fyrirkomulagi og skipulegu samstarfi við læknasamtökin og er vonandi að það gangi eftir. Fundað verður með ráðherra fljótlega, meðal annars til að kynna honum nánar ályktanir aðalfundarins og gengið eftir því að samvinna af þessu tagi geti orðið að skipulegum veru- leika. Sú staðreynd stendur eftir að heilbrigðiskerfið á íslandi er til- tölulega farsælt og skilvirkt. Um það er sæmilega góð sátt,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.