Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 69

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 69
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 409 Aukning á meningókokkasjúkdómi Farsóttanefnd ríkisins hafa borist upplýsingar frá sýkla- deild Landspítalans um skyndi- lega aukningu á greindum til- fellum af meningókokkasjúk- dómi á undanförnum vikum. A fyrstu átta mánuðum þessa árs hafa greinst 18 sjúklingar með sjúkdóminn (13 sjúklingar voru sýktir af A'. meningitides, hjúpgerð B en fimm voru sýktir af A'. meningitides, hjúpgerð C). Af þessum 18 sjúklingum greindust níu á tímabilinu 4.-31. ágúst (sjö með N. meningitides, hjúpgerð B og tveir með N. meningitides, hjúpgerð C). Þaö sem af er septembermán- uði hafa enn greinst þrjú tilfelli af meningókokkasjúkdómi þannig að í heild hefur 21 sjúk- lingur greinst með sjúkdóminn á árinu. Undanfarin fimm ár hefur ríkt hástaðsótt (hyperendemísk útbreiðsla á meningókokka- sjúkdómi á Islandi. Fjöldi greindra tilfella hefur farið hægt vaxandi og er fjöldi greindra til- fella á þessu ári að nálgast fjölda greindra tilfella á öllu síðast- liðnu ári. Það eru því vísbend- ingar um að stefni í farsótt af völdurn N. meningitides á Is- landi. í ljósi þessara upplýsinga vill Farsóttanefnd hvetja alla lækna til aukinnar árvekni gagnvart þessum sjúkdómi og veita sér- staklega athygli sjúklingum með hita, skert meðvitundar- ástand og húðútbrot. Sjúklingar grunaðir um heilahimnubólgu og blóðsýkingu skulu þegar í stað sendir á sjúkrahús til grein- ingar og meðferðar. Þá er einnig mikilvægt að meðhöndla nánustu fjölskyldu- meðlimi og aðra, sem hafa haft náin samskipti við sjúklinginn síðustu 10 dagana fyrir veikind- in, með sýklalyfjum (cípró- floxacín, rífampicín eða ceftri- axon) til að uppræta sýklana í nefkoki. Einnig kemur bólu- setning til álita ef tveir eða fleiri einstaklingar veikjast í afmörk- uðum hópi (til dæmis í skóla eða á vinnustað). Flafa ber þó í huga að bóluefni gegn hjúpgerð B er enn ekki komið á almennan markað. Ólafur Ólafsson landlæknir, formaður Farsóttanefndar Haraldur Briem yfirlæknir, ritari Farsóttanefndar 30-50% á meðan á címetidín meðferð stendur. Einfaldast hefði verið að gefa ranitidín eða famótidín í stað címetidíns, þar sem það milliverkar ekki við teófýllín. I könnuninni sést að árið 1988 fengu 228,6 sjúklingar einhverja H2-blokkara samhliða teófýllíni, þar af 10,7% címeti- dín. Fimm árum seinna sést að 135,4 sjúklingar fengu einhverja H, blokkara samhliða teófýllíni en nú einungis 6,0% címetidín. Tíðni samtímis notkunar erý- trómýcíns og astemizóls (flokk- ur A) hefur aukist úr 7.1 árið 1988 í 24,2 árið 1994. Það hefur komið í ljós, að samtímis notk- un þessara lyfja getur valdið hjartsláttartruflunum sem í mörgum tilfellum hafa verið lífshættulegar. Frekar alvarleg- ar ECG breytingar eru skráðar eftir notkun þessara lyfja sam- tímis. Úr flokki B mætti nefna díg- oxín og fúrósemíð en það ka- líumtap sem verður af völdum fúrósemíðs eykur streymi ka- líums úr hjartafrumum sem síð- an leiðir til aukinnar næmni fyrir dígoxíni. Tíðni samtímis notkunar þessara lyfja hefur aukist um 78%, eða úr 213,3 sjúklingum (1988) í 397,0 (1993). Aukin lyfjaneysla, meira val í lausasölulyfjum og stöðugur straumur nýrra lyfja gera það að verkum, að lyfjafræðingar og læknar þurfa að fylgjast sérstak- lega vel með þeim hliðarverk- unum sem geta komið fram. Þess má geta, að í könnuninni var ekki hægt að sjá þau lyf sem notuð voru á sjúkrahúsum/ heilsugæslustöðvum eða seld í lausasölu. Það er ábyrgð þeirra sem hafa þessi efni undir hönd- um, að vera vakandi fyrir því að sjúkdómar geta verið af völdum lyfja og gefa sjúklingum hagnýt- ar ráðleggingar um þá lyfjameð- ferð sem þeir eru á. Tölurnar sem birtar eru hér að ofan yfir tíðni ávísana á milliverkandi lyf, sýna að vert er að veita þessu vandamáli meiri athygli. Verkefnið var unnið í sam- vinnu við lyfjamáladeild Heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins, landlækni, NM Pharma og Geir R.Jóhannesson kerfisfræðing. Tölvunefnd veitti heimild fyrir könnuninni.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.