Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 85

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 85
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 425 Annað Vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna Egilsstöðum 28.-30. október 1994 Annað Vísindaþing Félags ís- lenskra heimilislækna verður haldið á Egilsstöðum dagana 28.-30. október næstkomandi. Fyrsta þingið var haldið á Flúsa- vík haustið 1992. A þinginu verða kynntar rannsóknir og rannsóknaráætl- anir í heilsugæslunni, bæði í formi frjálsra fyrirlestra og veggspjalda. Einnig halda fyrirlestra lækn- arnir Sigurður Hektorsson, Sig- urður Guðmundsson, Olafur Ólafsson landlæknir og Calle Bengtsson prófessor í heimilis- lækningum í Gautaborg. Þingið er opið öllum læknum. Gert er ráð fyrir að hver frjáls Hallgrímsson H. Sveppakverið. Reykjavík: Garðyrkjufélag Is- lands. 1979. Knudsen H. Politikens Svampebog. Köbenhavn: Poiitiken Forlag. 4th ed.1992. Lange M. Soppflora. NKS-Forlag- et. 4th ed. 1981. Lassen JF, Ravn HB, Lassen SF. Hallucinogene psilocybinholdige svampe. Ugeskr Læger 1990; 152: 5. Rold JF. Mushroom madness. Psychoactive fungi and the risk of fatal poisoning. Postgrad Med 1986; 79. Schwartz RH, Smith DE. Hallucin- ogenic Mushrooms. Clin Pediatr 1988; 27. Spoerke DG, Hall AH. Plants and Mushrooms of Abuse. Emer- gency Med Clin N Am 1990; 8. fyrirlestur taki 15 mínútur með umræðu. Ágripum skal skila á A-4blöðum, þarsem fram kem- ur heiti erindis, höfunda og undirstrikað nafn flytjanda. Agripunum skal skipt í tilgang, efnivið og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Agripin verða birt í sérstöku blaði, sem gefið verður út fyrir þingið á sama hátt og fyrir fyrsta þingið. Er því óskað eftir vönd- uðum frágangi. Agrip skal senda prófessor Jóhanni Ag. Sigurðssyni, Heilsugæslustöðinni Sólvangi, 220 Hafnarfirði, fyrir 1. októ- ber. Þátttaka tilkynnist Sveini Magnússyni, Heilsugæslustöð- inni, 210 Garðabæ fyrir 10. októ- ber. Hann gefur einnig frekari upplýsingar. Þátttökugjald verður kr. 5.000,- FÍH mun greiða niður hluta annars kostn- aðar fyrir félagsmenn sína. Stefnt er að því að flugferðir verði í tengslum við þingið frá Reykjavík 28. október kl. 14:00 og til baka frá Egilsstöðum 30. október kl. 15:00. Undirbúningsnefnd Jóhann Ág. Sigurðsson Stefán Þórarinsson Sveinn Magnússon Forvarnir í heilsugæslu Barna- og unglingaheilsuvernd Fimmtudaginn 24. nóvember 1994 verður haldinn samráðsfundur á vegum landlæknisembættisins um nýj- ungar í forvörnum á sviði barna- og unglingaheilsuvernd- ar. Fjallað verður um heilsuvanda barna og unglinga, áhættuhegðun ungs fólks, áhersluþætti í skólaheilsu- gæslu, áfallahjálp og ofát/lystarstol svo nokkuð sé nefnt. Þess er vænst að sem flest heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur með börnum og ungmennum sjái sérfært að sitja fundinn. Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusölum ríkisins, Borgartúni 6, Reykjavík. Hann mun hefjast kl. 09:00 og fyrirhugað að honum Ijúki um kl. 16:00. Landlæknisembættið

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.