Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.1997, Side 66

Læknablaðið - 15.06.1997, Side 66
420 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 læknar taki að sér rekstur stofnana eða ein- stakra eininga. Sú þróun sem sett er fram hér að ofan hefur þegar farið af stað sjálfkrafa vegna þeirra fram- fara sem orðið hafa í læknisfræði og mun halda áfram óháð aðperðum stjórnvalda. Það er því mikilvægt að LI taki virkan þátt í þessari þróun til að hún geti orðið markviss og gætt sé að faglegum þáttum. Læknisþjónusta utan sjúkrahúsa, frumheilsugæsla Staðan í dag Þá sem veita lœknisþjónustu utan sjúkrahúsa í dag má flokka í: * heimilislækna á ríkisreknum heilsugæslu- stöðvum með ákveðin upptökusvæði, * heimilislækna á einkastofum, * sérgreinalækna á einkastofum, * sérgreinalækna með aðstöðu á sjúkrahús- um eða göngudeildum. Sérstök vandamál: * mikið framboð er af sérgreinalæknum en skortur er á heimilislæknum, * vaxandi erfiðleikar eru við mönnun læknis- staða í dreifbýli bæði heimilislækna og sér- greinalækna. Þarfír íslenskrar heilbrigðisþjónustu Þarfir íslands fyrir læknisþjónustu miðast við að íbúar utan stærstu þéttbýlisstaða eiga jafnan rétt og aðrir um aðgang að læknisþjón- ustu þegar alvarleg veikindi eða slys ber að höndum. Þannig er ekki hægt að þjappa allri þjónustu á þéttbýlisstaði heldur verður að miða læknisþjónustu við að hún taki tillit til búsetu fbúa landsins. Vinnumarkaður íslenskra lækna er allur heimurinn og því er ekki hægt að mennta lækna með það markmið fyrir augum að þeir muni eingöngu starfa á íslandi, en hins vegar er hægt að byggja læknanám þannig upp að kynntar verði sérstaklega þarfir Islands og reynt að gera þær áhugaverðar. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir að vandamál við skipan læknisþjónustu á íslandi bæði í þéttbýli og dreifbýli og skipting milli frumþjónustu / frumheilsugæslu (primary care) og annars stigs þjónustu (secondary care) eru einnig vel þekkt erlendis frá. íslenskt heil- brigðiskerfi getur nýtt sér að víðtæk umræða hefur átt sér stað erlendis meðal alþjóðlegra heilbrigðisstofnana og læknasamtaka um hag- kvæmustu og jafnframt skilvirkustu læknis- þjónustu. Hvort þær hugmyndir henta jafnvel hérlendis eða hvort einangrun landsins veldur því að aðkoma sérgreinalækna að heilsugæslu verður önnur, hefur verið umdeilt. Skilyrðin sem þarf að uppfylla er að heil- brigðisþjónusta og þar með læknisþjónusta verður að mæta þörfum þjóðarinnar. Til þess verður að beita aðferðum við notkun fjár- magns, mannafla og tæknivæðingar sem með rannsóknum hafa sýnt sig í að bæta heilbrigði. Beita þarf skynsamlegri fjármagnsstefnu sem hvetur til að heilbrigði einstaklinga og samfé- laga sé bætt og verðlaunar hagkvæma nýtingu fjármagns. Grunnforsendan er: Hver einstaklingur þarf persónulega þjónustu sem er í höndum eins ábyrgs læknis. Uppbygging slíkrar þjónustu á að leggja áherslu á forvarnir, árangursríka meðferð bráðaveikinda og langvinnra sjúk- dóma og tryggja hámarks færni og sjálfstæði einstaklinga. Áhersla á að vera á gæði, sam- fellda og samræmda meðferð sem og ásættan- lega og vel aðgengilega þjónustu sem skapi ánægðan neytanda. Þessi markmið hafa verið talin nást best með öflugri heilsugæslu. Þörf þjóðarinnar fyrir öfluga heilsugæslu leiðir til þess að stefna ber að því að fjölga sérmenntuðum heimilislæknum. Heimilis- læknar þurfa framhaldsnám og símenntun eins Þórir B. Kolbeinsson gekk frá erindinu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.