Læknablaðið - 15.06.1997, Page 94
446
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
ingu reglugerða er dragi úr tó-
baksneyslu og styðja almennt
við bakið á þeim sem sinna for-
vörnum, meðal annars til að
draga úr þeirn mikla kostnaði
sem fylgja erfiðum og oft ban-
vænum sjúkdómum er fylgja
neyslu þess.“
í ljósi þessa boðskaps spyr ég
hvort eðlilegt geti talist að í
stjórn ÁTVR sé maður sem eft-
ir stjórnarfund þar skellir sér í
hvítan slopp og svo í hina vinn-
una sína og berst þar gegn notk-
un vörunnar sem ÁTVR selur?
Gæti ekki komið upp sú staða
að erfitt yrði fyrir hann að vera
heiðarlegur gagnvart báðum
sínum herrum og hvað þá? Eða
hvað felst í eftirfarandi orðum
Hildar Petersen formanns
stjórnar ÁTVR er hún lét falla í
útvarpi 30.01. 1997?: „Það er í
raun og veru mjög erfitt að reka
fyrirtæki sem má helst ekki selja
vöruna sína. Mér er það eigin-
lega alveg gjörsamlega ómögu-
legt.“ Ég get ekki betur skilið en
að þessi félagi þinn í ÁTVR
finni sig þurfa að velja milli þess
hverjum ber að hlýða, herran-
um sem vill selja eitrið eða hin-
um sem vill selja sem minnst.
Og hverjir eru svo herrarnir í
ÁTVR? Leitum svarsins með
tilvitnun í næstu setningu í þinni
grein í Mogganum: „I reynd er
staðan hérlendis nú sú að ríkis-
valdið, sem samnefnari þjóðar-
innar, hefur tekið á sig þá
ábyrgð sem innflutningi tóbaks
fylgir og starfar nú sem þjón-
ustuaðili við framleiðendur tó-
baks og umboðsaðila þeirra
hvað innflutning og dreifingu
vörunnar varðar". Er hægt að
skilja þessi orð öðruvísi en svo
að þú lítir þannig á að sem
stjórnarmaður í ÁTVR sért þú í
þjónustu tóbaksframleiðenda?
Mikil játning það. í símtalinu
kom frarn sú skoðun þín að það
væru Islendingar allir, þar sem
við eigum okkar litlu hlutdeild í
ríkinu hvert og eitt. Orðaleikir
eru ágætir en ekki við hæfi í
svona dauðans alvöru. Vitnum
enn í Moggann og þá í niðurlag
greinarinnar, rúsínuna í pyslu-
endanum, en þar segir: „Verði
þannig að málum staðið og rík-
isvaldið ekki lengur beggja
vegna borðsins, munu tóbaks-
varnir fá byr undir báða vængi,
því ljósara verður þá en áður,
hverjir ábyrgð í reynd bera á
innflutningi og dreifingu tó-
baksvara“. Tilvistarréttur lækn-
is sem stjórnarmanns í ÁTVR
breytist lítið, þó þér takist að
einkavæða innflutning og dreif-
ingu tóbaksins. Eftir sem áður
verður það svo að ríkið mun
hafa af tóbakinu umtalsverðar
tekjur, og á sama tíma bera
skyldur til að vinna að tóbaks-
vörnum. Að þetta verði til þess
að efla tóbaksvarnir er vægast
sagt mjög hæpin fullyrðing.
Með því að gera einstaklinga
ábyrga fyrir innflutningi og
dreifingu tóbaks, gerist það líka
að þeir ásamt fjölskyldum sín-
um verða háðir því að geta selt
sem allra mest af því. Slíkur
söluaðili mun þaulhugsa leiðir
til markaðssetningar, gjarnan
feta gráa geirann milli þess sem
er löglegt og hins sem er ólög-
legt, til dæmis reyna að snið-
ganga auglýsingabann, rétt eins
og umboðsaðilar bjórs gera í
dag. Þetta yrði því fremur til að
styrkja en veikja stöðu óvin-
anna - tóbaksframleiðendanna.
Lokaorð
Hvernig sem ég reyni fæ ég
ekkert jákvætt séð við það að
læknir sitji í stjórn ÁTVR. Þvert
á móti getur í því falist mikill
ávinningur fyrir tóbaksfram-
leiðendur. Umsvif þeirra og
markmið krefjast þess að gera
sem flest ungmenni að níkótín-
fíklum. Að hafa yfirlækni
krabbameinsdeildar Landspít-
alans í stjórn þess fyrirtækis sem
hefur einkarétt á innflutningi og
dreifingu á tóbaki er eitthvað
sem þeir gætu notað og munu þá
gera það, hvort sem þér líkar
eða ekki. Tilvist læknis í stjórn
ÁTVR gefur að mínu mati sterk
skilaboð til tóbaksfíkla um að
tóbak geti nú þrátt fyrir allt ekki
verið svo slæmt. Sama skilnings
má vænta meðal æskufólks, sem
eru verðandi fíklar fái tóbaks-
iðnaðurinn sitt fram. Mál er að
linni. Frá og með 01.02. 1997
tóku gildi nýjar reglur ÁTVR
um innkaup á tóbaki. Afleiðing
þeirra mun verða umtalsverð
fjölgun reyktóbakstegunda sem
til sölu eru á íslandi, 11 nýjar
sígarettutegundir og fimm
vindlategundir. Þetta er aðgerð
sem ekkert minnir á læknis-
fræði, hvað svo sem þær „tak-
markandi reglur“ sem þú nefnir
í Mogganum koma hugsanlega
til með að þýða í fyllingu tím-
ans. Nýtt tóbak kallar eftir nýj-
um neytendum og reynslan seg-
ir okkur að þeir verða úr hópi
æskufólks. Undirritaður ásamt
mörg hundruð öðrum heilbrigð-
isstarfsmönnum mótmæltu
þessum reglum skriflega, en við
höfðum ekki erindi sem erfiði.
Vertu nú svo vænn að útskýra
fyrir okkur í hverju læknisfræði-
legt ágæti þessara reglna felst.
Jafnvel enn torskildara er að
þú sem læknir skulir af fúsum og
frjálsum vilja taka sæti í stjórn
ÁTVR og það á sama tíma og
þú ert þeirrar skoðunar að fyrir-
tækið vinni sem þjónustuaðili
við tóbaksframleiðendur. í ljósi
þess skilnings þíns ríkir nú það
ástand að tóbaksvarnir á íslandi
deila yfirlækni krabbameins-
deildar Landspítalans með
fyrirtæki sem er í þjónustu tó-
baksframleiðenda. Er það
ásættanlegt?
04. 04. 1997
Pétur Heimisson