Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1978, Qupperneq 97
REYNSLA FYRSTA ARSINS AF RANNSÖKNAKERFI FYRIR SVIMASJdKLINGA
ölafur Pétur Jakobsson
Frá háls- nef og eyrnadeild
Kynning
Arið 1975 eignaðist háls- nef- og eymadeild Borgarspítalans taakjasamstæðu til
rannsókna á jafnvægisskynfærum innra eyrans. Fljótlega varð ljóst, að til þess
að svimasjúklingar, sem til deildarinnar leituðu, gætu fengið sambærilega þjónustu
og best gerist erlendis varð að þróa upp skipulegt kerfi rannsókna, sem sjúkling-
unum var beint í gegn um eftir því sem kvartanir þeirra og niðurstöður fyrri
rannsókna gáfu tilefni til.
Rannsóknirnar voru valdar saman með megináherslu á að staðsetja sjúkdóminn, og ef
staðsetningin reyndist vera eyra eða heyrnartaug, að greina hann nánar.
Þetta er fyrsta rannsóknarkerfið fyrir svimasjúklinga sem reynt er hérlendis.
Val sjúklinga
Öllum sjúklingunum var vísað til deildarinnar af sérfræðingum háls-, nef- og
eymadeildar Borgarspítalans, en til þeirra höfðu þeir leitað vegna svima, óstöðug-
leika, suðu fyrir öðru eða báðum eyrum eða heymartaps á öðru eða báðum eyrum,
sem ekki fannst með einföldum hætti skýring á.
Aðferðir
Þeim aðferðum, sem beitt er, héfur áður verið lýst ítarlega (17). I meginatriðum
er rannsókn hvers sjúklings skipt í eftirtalda þætti (1,8,9,10,16).
1. Tekin er nákvæm sjúkrasaga og gerð klínisk skoðun með sérstöku tilliti til
sjúkdóma í jafnvægiskerfinu. Lögð er áherzla á að láta sjúklinginn skilgreina
kvörtun sína nákvænlega, lýsa öllum meðfylgjandi einkennum, t.d. höfuðverk,
heymardeyfu og suði fyrir eyr'um og einnig geta þess hvort með einhverju til-
teknu athæfi mætti framkalla þau einkenni, sem kvörtunin snýst um, eða breyta
þeim á einhvem veg.
2. Heymarmæling er gerð með fimm mismunandi prófum. Þau voru valin saman til að
gefa hugmynd um starfsemi miðeyrans, innra eyrans og "retro-cochlear" stöðva
og þannig greina að skemmdir á þessum stöðum.
Prófin eru þröskuldsnaani fyrir loft- og beinleiðslu, stapedius reflex próf,
tone decay próf, S.I.S.I. próf og talgreiningarhæfni (6,15).
3. Varmapróf (caloric test) með electronystagmography er framkvémt þannig, að lofti
er blásið í eyru sjúklinganna (5) og síðan er lesið úr ritinu á staðlaðan hátt
(13,23). Þetta felst í að "nystagmografið" er skoðað m.t.t. skemmda á litla
heila og út frá mesta hraða hæga þáttar augnsláttarins er reiknað "labyrinthine
preponderance", "directional preponderance" og "optical fixations index".
Fæst á þennan hátt hlutfallslegur nœlikvarði á þá ertingu milli eyrna sem
jafnvægiskerfið skynjar.
Auk þessa má lesa úr ritinu merki um ýmsar skemmdir á hálsi eða miðtaugakerfi
(2,3,4,7,12,20,22).
• Þegar niðurstöður framangreindra athuganna gáfu tilefni til voru teknar röntgen-
myndir af höfði og hálsi sjúklinganna með sérmyndum af innri eyrnagöngum. Hja
95