Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1981, Page 46
44
brustu, er gaskútur sprakk, þegar ihann var
að logsjóða. Kaðall slóst í auga verkamanns
í stálsmiðju og vélvirkjanemi missti auga í
ótilgreindu vinnuslysi.
Tveir slösuðust við vinnu í niðursuðuverk-
smiðju. Yíir annan helltist vítissódi, er
hann vann við hreinsun, en hinn rak hníf í
auga í kaffitíma, er hann var að opna öl-
flösku með hnífi og hlaut hann holund.
Einn fékk maurasýru í augu við sútunar-
vinnu og annar rak koparvír í auga, er hann
var að vírbinda ullarknippi, hlaut af þvi
holund.
Unglingur fékk vítissóda í auga við flösku-
þvott í gosdrykkjaverksmiðju og starfsmað-
ur i verksmiðju fékk asbestduft í auga.
Starfsmaður í lýsisbræðslu fékk vítissóda í
auga og kaðall slóst í auga verkamanns við
tógvinnu.
9.3.5 ViÖ landbúnaöarstörf slösuöust 9:
Af þeim meiddust þrír af völdum húsdýra.
Kýr stangaði gamlan sjóndapran bónda og
hefur hann nú aðeins ljósskynjun á auganu.
Kind stangaði einn við rúningu og í annan
sparkaði kálfur.
Þrír slösuðust við girðingarvinnu. Missti
einn þeirra auga er gaddavír reif það, en
hinir hlutu minniháttar augnáverka.
Drengur í sveit fékk heykvísl í auga og er
sjón á því nú 6/60 Snellen vegna slysadrers.
Strá stakkst í gegnum glæru eins við heyskap
og bóndakona fékk lút í auga við þvott á
mjaltavél. Hlaut hún af þvi ör á glæru og er
sjón á því 6/24 Snellen.
9.3.6 Viö ýmis konar vinrm uröu fyrir
augnslysum 7:
Af þeim voru þrír, sem fengu háþrýsti-
vatnsbunu í auga, tveir slökkviliðsmenn og
einn unglingur. Hlaust af því slæmt augn-
mar í öllum tilfelium.
Ungur maður fékk málmbút í auga við há-
spennulínuvinnu, hlaut af því holund og
slysadrer.
Hafnarverkamaður fékk slæmt högg á
auga við uppskipun og er sjón á auganu að-
eins handarhreyfing. Einn rak sig á og fékk
við það gat á veitukúf (filtrationsblöðru),
sem hann hafði á auganu eftir glákuaðgerð.
Leikari hlaut minniháttar augnbruna af
völdum gerviblóðs á leikæfingu.
9.4 Slys tengd umferð.
Tuttugu og tvö slysanna eða 4% voru tengd
umferð. Dreifing meðal kynja var jöfn, 11
karlar og 11 konur. Holund hlutu 45.6%,
31.8% augnmar og 22.7% minniháttar augn-
áverka.
1 umferðarslysunum töpuðust fjögur
augu, tvö hafa aðeins ljósskynjun og níu
hlutu eitthvert sjóntap.
Fjórtán slösuðust i bilslysum sem far-
þegar: Af þeim voru 11 sem skullu í fram-
rúðu og hlutu níu holund á auga og eru
þrjú þeirra ónýt.
Eitt framsætaslysanna er sérlega lær-
dómsrikt. 1 því slasaðist 18 ára piltur. Hlaut
hann marga skurði í andliti og var gert að
slysum hans á sjúkrahúsi úti á landi. Mikið
mar og bjúgur var í augnlokum, og ekki
litið á augun fyrr en rúmri viku síðar, að í
ljós kom að hann hafði hlotið holundir á
bæði augu og er annað sennilega ónýtt.
Sjö ára stúlka hljóp fyrir bíl á leið í skól-
ann og ekið var á gamlan bónda, á þjóðvegi
gegnum hlaðið. Hlaut hann töluverð andlits-
meiðsli og missti annað augað.
Tólf ára drengur hlaut slæmt mar á auga,
þegar grjóthnullungur spýttist undan aftur-
hjóli bils, sem spólaði af stað.
Bóndi, sem ók dráttarvél eftir þjóðvegi
fékk stein í auga undan bíl, sem ók fram úr.
Tveir slösuðust við notkun bifhjóla. 1
öðru tilfellinu ók ungur maður út af vegi og
rotaðist, hlaut einnig augnmar. 1 hinu til-
fellinu skall krókur á farangursgrindar-
teygju í auga unglings, er verið var að
draga bifhjólið með henni. Hlaut hann slæmt
augnmar með slysadreri.
Maður fékk krók í auga, er hann var að
spenna fastan farangur á farangursgrind
með þar til gerðri teygju. Sjón á því auga er
aðeins handarhreyfing.
Kona hlaut lömun á augnvöðvataug eftir
höfuðkúpubrot, er hún var farþegi á skipi.
9.5 Slys í sambandi við skemmtanir og
áfengisneyslu.
Slys við skemmtanir og áfengisneyslu
voru 41 eða 7.5% slysanna. Nær eingöngu
karlmenn eru i þessum flokki. Langflestir
voru á aldrinum 16—50 ára. Aðeins einn var
15 ára og fimm eldri en 50 ára. Holund hlutu
22.0%, 34.2% augnmar, 7.3% augnbruna og