Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Blaðsíða 68
66
Sigurður Þorgrímsson, Árni Björnsson
BRUNASJÚKLINGAR Á LANDSPlTALANUM
ÁÁRUNUM 1964 til 1973
Fyrri grein
INNGANGUR
Landspítalinn hefur undanfarna áratugi
gegnt sérstöku hlutverki, þegar brunasjúk-
lingar eru annars vegar. Hefur það verið
regla, þegar sjúklingar brennast og þurfa að
leggjast inn á sjúkrahús, að þeir eru sendir á
Landspítalann og er spitalinn ætíð opinn
fyrir slíka sjúklinga. Ástæða fyrir þessu er
fyrst og fremst sú sérhæfða aðstaða, sem
lýtalækningar hafa haft á Landspítalanum
fyrir meðferð bruna. Má reikna með, að í
efnivið þeim, sem hér um ræðir, séu lang-
flestir þeirra, sem hafa orðið að leggjast inn
á sjúkrahús vegna brunasára hérlendis á at-
hugunartimabilinu. Þar sem hér er um all-
stóran sjúklingahóp að ræða, þykir okkur
ástæða til að gera nokkra grein fyrir honum.
Ætlunin er að birta efnið i tveim greinum.
Sú fyrri, sem hér birtist, fjallar fyrst og
fremst um fjölda sjúklinga, kyn og aldurs-
skiptingu þeirra, orsakir slysanna og hvar
þau verða, svo og legudagafjölda. 1 síðari
greininni1 verður gerð grein fyrir meðferð
sjúklinga, brunaveikinni sjálfri og fylgi-
kvillum hennar, svo og afdrifum sjúklinga.
Ástæða þess að þessi athugun er bundin
árabilinu 1964—1973 er sú, að eftir þann
tíma verður sú breyting á aðstöðu, að gjör-
gæsludeild Landspítalans tekur til starfa,
svo og lýtalækningadeild með aðstöðu til að
meðhöndla einn sjúkling í einangrun. Á því
timabili, sem athugunin nær yfir, urðu ekki
neinar meiri háttar breytingar á brunameð-
ferð í heiminum, en á síðari áratug hafa
gerst þeir hlutir, sem orðið hafa til þess að
breyta viðhorfum manna til meðferðar á
brunasjúklingum og brunasárum.
EFNIVIÐUR
Farið var í gegnum sjúkraskrár allra
þeirra, sem fengið höfðu sjúkdómsgreining-
arnar combustio eða ambustio og legið höfðu
Frá Barnadeild Hringsins og Lýtalækninga-
deild, Landspítalanum.
á handlækningadeild eða barnadeild Land-
spítalans á árunum 1964 til 1973. Reyndust
þeir vera 329 talsins.
NIÐURSTÖÐUR
l..Aldur og kyn: Aldurs- og kyndreifing
er sýnd í töflu I. 1 þeirri umfjöllun, sem fer
hér á eftir, er greint milli tveggja hópa,
barna og fullorðinna. Þeir eru taldir fúll-
orSnir, sem lögðust inn á handlækningadeild
TAFLA I. Aldurs- og kyndreifing brunasjúk-
linga jsem vistaSir voru á Landsyítalanum 1964
—1913.
Aldur Karlar Konur
0—4 97 76
5—9 25 10
10—14 10 2
15—19 17 7
20—24 11 4
25—29 10 2
30—39 17 6
40—49 6 4
50—59 10 2
60—69 3 3
70 + 4 3
Alls 210 119