Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 28
28
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
Niðurstaða rannsóknarinnar er að þannig
þekkja frumur sem svara M-prótíni einnig kera-
tínpeptíð með sameiginlegar raðir. Þetta styrkir
þá tilgátu okkar að einstaklingar með sóra hafi
víxlvirkar T-frumur sem þekkja sömu epitóp
M-prótína og keratína sem gætu þannig stuðlað
að viðhaldi sjúkdómsins.
E-13. Ónæmisglæðar, verkunarmáti
Sveinbjörn Gizurarson, Vera Guðmundsdóttir
Frá lyfjafrœði lyfsala HÍ
Inngangur: Hjálparefni flokkast undir óvirk
efni sem ekki hafa neina líffræðilega virkni.
Þessi skilgreining er að fyrnast og á meðal ann-
ars ekki lengur við um ónæmisglæða. Því þótt
þeir séu flokkaðir sem hjálparefni, þá byggir
virkni þeirra á beinum áhrifum á ónæmiskerfið.
Rannsóknir og þróun á nýjum ónæmisglæðum
hefur verið að aukast síðastliðin ár og nú eru
þær farnar að beinast að efnafræðibyggingu
ónæmisglæðanna, eðlisefnafræðilegum áhrif-
um þeirra og hegðun þeirra í návist frumna
ónæmiskerfisins.
Fyrir nokkrum árum var þróað burðarefni
fyrir bóluefni, sem virkar vel á slímhimnur eins
og nefslímhimnuna. Þetta burðarefni er blanda
af polysorbate 20 og C8/C10 fitusýrum í formi
mónó- og díglýseríðs. Glýseríðarnir virðist örva
myndun ónæmissvars mjög sérhæft. Hugsan-
lega geta fitusýrurnar á glýseríðnum verkað
sem boðefni á slímhimnur en vitað er að fitu-
sýrur gegna mikilvægu hlutverki sem boðefni
frá sýklum. Fitusýrurnar hafa einnig mjög
kröftug áhrif á frásog efna yfir slímhimnuna og
þar er verulegur munur á verkunarmáta C8
annars vegar og C10 fitusýrunnar hins vegar.
Niðurstöður: Rannsóknir á þessum ónæm-
isglæðum hafa sýnt að þegar mýs hafa verið
bólusettar með inflúensubóluefninu (HA), í nef
og í formi innspýtingar þá fæst 6,1 U/ml IgG í
blóði eftir innspýtingu en 45,6 U/ml IgG eftir
inngjöf í nef. Magn IgA í nefslími mældist
svipað viku eftir endurbólusetningu, en mæling
á IgA seytandi frumum gaf allt aðra mynd af
árangri bólusetningarinnar. Þar mældust þrjár
frumur í innspýtingarhópnum en 172 í nef-
hópnum. Þessar niðurstöður eru í samræmi við
það að fyrstu 6-24 klukkustundir eftir að sýkill
sést í nefholi, örvast ónæmiskerfið og verulegt
magn IgA og musín seytist út í nefholið.
Þessar niðurstöður sýna að einni viku eftir
endurbólusetningu er svipað magn IgA á nef-
™fmote/0' Eiginleikar: Verkunarháttur: Formóteról er öflugur sértækur
beta2-örvi sem veldur slökun á sléttum vöðvum í berkjum.
v/A/D Formóteról hefur þess vegna berkjuvíkkandi áhrif hjá
(&=Wllfí‘lh)iiiihnltzr* siúklingum með tímabundna þrengingu í öndunarvegum.
Vgy IIUIIlB)UÍIUIGr Berkjuvíkkun hefst fljótt, innan 1-3 mín. eftir innúðun og
verkunarlengd er að meðaltali 12 klst. eftir einn skammt Lyfjahvörf: Frásog: Innúðað
formóteról frásogast hratt. Hámarksþéttni i plasma næst um 15 mín. eftir innúðun. i
rannsóknum hefur komið fram að meðalmagn af formóteróli sem berst til lungna eftir
innúðun með Turbuhaler-tæki er um 21-37% af mældum skammti. Heildaraðgengi
(sýstemískt) fyrir það magn sem berst til lungna er um 46%. Dreifing og umbrot Plasma-
próteinbinding er um 50%. Formóteról er umbrotið með beinni glúkúróníðtengingu og 0-
afmetýleringu. Ensímið sem veldur O-afmetýleringu hefur ekki verið greint. Heildar-
plasmaklerans og dreifingarrúmmál hafa ekki verið ákvörðuð. Útskilnaður: Formóteról
skilst að mestu leiti út sem umbrotsefni. Eftir innúðun, útskilst 6-10% af gefnum skammti í
þvagi á óbreyttu formi. Um 20% af skammti gefnum í æð skilst út í þvagi á óbreyttu formi.
Lokahelmingunartími eftir innúðun er áætlaður 8 klst. Ábendingar: Einkenni um
berkjuþrengingu hjá sjúklingum með astma. Oxis Turbuhaler má gefa til að lina berkju-
þrengingu þegar meðferð með barksterum hefur ekki reynst árangursrík. Frábendingar
Ofnæmi fyrir formóteróli. Meðganga og brjóstagjöf: Takmörkuð reynsla er af notkun
lyfsins hjá konum á meðgöngutíma. í dýrarannsóknum á formóteróli hefur það valdið
fylgjulosi sem og dregið úr lífslíkum nýbura og fæðingarþyngd. Þessi áhrif komu fram við
talsvert hærri þéttni lyfsins en fást við klíníska notkun Oxis Turbuhaler. Þar til frekari
upplýsingar liggja fyrir skal einungis nota Oxis Turbuhaler á meðgöngutima að vel ihuguðu
máli. Ekki er vitað hvort formóteról berst í brjóstamjólk kvenna. Oxis Tubuhaler skal því
ekki gefa konum með barn á brjósti. Formóteról hefur fundist í litlu mæli i mjólk rotta.
Varúð: Astma-sjúklingar, sem þurfa meðferð með beta2-örva, ættu einnig að fá hæfilega
bólgueyðandi meðferð með barksterum. Sjúklingum skal ráðlagt að taka áfram bólgu-
eyðandi lyf eftir að meðferð með Oxis Turbuhaler er hafin, jafnvel þó að dragi úr
einkennum. Ef einkennin hverfa ekki, eða ef auka þarf skammta af beta2-örvum, bendir
það til þess að sjúkdómurinn sé að versna og að endurmeta skuli astmameðferðina.
Hvorki skal hefja meðferð né auka skammta við versnun sjúkdóms. Gæta skal varúðar hjá
sjúklingum með skjaldvakaóhóf (thyrotoxicosis) eða alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma
eins og blóðþurrðar hjartasjúkdóma (ischemic heart diseases), hraðsláttarglöp
(tachyarrhythmias) og alvarlega hjartabilun. í byrjun er mælt með tiðari blóðsykurs-
mælingum hjá sykursjúkum vegna hættu á blóðsykurshækkun af völdum beta2-örva.
Alvarleg kalíumþurrð getur orðið við beta2-örva meðferð. Sérstakrar varúðar skal gæta
hjá sjúklingum með bráðan alvarlegan astma, þar sem sú hætta sem er til staðar getur
aukist við súrefnisskort (hypoxia). Kalíumþurrð getur aukist við samtímis meðferð með
xantínafleiðum, sterum og þvagræsilyfjum. Þess vegna skal fylgjast með kalíumgildum í
sermi. Oxis Turbuhaler inniheldur 450 pg af mjókursykri í hverjum skammti. Þetta magn
hefur venjulega ekki í för með sér hættu fyrir sjúklinga með mjólkursykuróþol. Engin gögn
eru fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá bömum. Áhrif skertrar lifrar- eða
nýrnastarfsemi á lyfjahvörf formóteróls og lyfjahvörf hjá öldruðum eru óþekkt. Þar sem
brotthvarf formóteróls byggist aðallega á umbrotum má búast við hærri gildum hjá
sjúklingum með alvarlega skorpulifur. Aukaverkanir: Algengar (>1 %): Miðtaugakerfi:
Höfuðverkur. Hjarta- og æðakerfi: Hjartsláttarónot. Beinagrindarvöðvar: Skjálfti. Sjald-
gæfar (0,1-1%): Miðtaugakerfi: Æsingur, eirðarleysi, svefntruflanir. Beinagrindarvöðvar:
Vöðvakrampar. Hjarta- og æðakerfi: Hraðsláttur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Húð: Útbrot,
ofsakláði. öndunarvegir: Berkjusamdráttur. Efnaskipti: Kalíumþurrð/-blóðkalíumhækkun.
Skjálfti og hjartsláttarónot geta komið fram en eru venjulega væg og minnka við
áframhaldandi notkun. Eins og við á um alla meðferð með innúðalyfjum, getur þverstæður
(paradoxial) berkjusamdráttur komið fram í einstaka tilvikum. Mílliverkanir: Engar
sértækar rannsóknir á milliverkun hafa verið gerðar á Oxis Turbuhaler. Samtímis meðferð
með öðrum adrenvirkum lyfjum getur aukið óæskileg áhrif Oxis Turbuhaler. Samtímis
meðferð með xantínafleiðum, sterum eða þvagræsilyfjum geta aukið hættuna á kalíum-
þurrð við notkun beta2-örva. Kalíumþurrð getur aukið hættu á hjartsláttartruflunum hjá
sjúklingum á meðferð með digitalis. Kínidín, dísópýramíð, prókainamíð, fentiazín,
andhistamin (terfenadín) og þríhringlaga geðdeyfðarlyf geta lengt QT-bilið og aukið hættu
á sleglahjartsláttartruflunum. Beta-blokkarar geta dregið úr eða komið í veg fyrir verkun
Oxis Turbuhaler. Oxis Turbuhaler skal þess vegna ekki gefa samtimis beta-blokkurum
(þ.m.t. augndropar) nema brýna nauðsyn beri til. Ofskömmtun: Engin reynsla er á meðferð
ofskömmtunar. Að likindum leiðir ofskömmtun til áhrifa sem eru einkennandi fyrir beta2-
örva: Skjálfti, höfuðverkur, hjartsláttarónot og hraðsláttur. Lágþrýstingur, efnaskipta-
blóðsýring (metabolic acidosis), kaliumþurrð og blóðsykurshækkun geta einnig komið
fyrir. Veita skal stuðningsmeðferð og meðferð gegn einkennum. Skammtastærðir handa
fullorðnum: Venjulegir skammtar: 4,5-9 pg einu sinni til tvisvar á dag. Skammtinn má gefa
að morgni og/eða að kvöldi. Skammt að kvöldi má gefa til þess að koma í veg fyrir að
sjúklingur vakni vegna einkenna næturastma. Sumir sjúklingar geta þurft 18 pg einu sinni
eða tvisvar á dag. Forðast skal stærri skammta en 18 }ig. I kliniskum rannsóknum hefur
verið sýnt fram á að verkunarlengd lyfsins er um 12 klst. Ávallt skal leitast við að gefa
lágmarks skammt sem verkar. Skammtastærðir handa börnum: Engin gögn eru
fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Athugið: Oxis Turbuhaler er tæki
sem er drifið með innöndun. Það þýðir að þegar sjúklingur andar að sér í gegnum
munnstykki tækisins berst lyfið með innöndunarloftinu til loftvega. Mikilvægt er að
leiðbeina sjúklingum um að anda kröftuglega og djúpt að sér í gegnum munnstykkið til
þess að tryggja hámarksskammt. Þar sem litið magn af lyfinu er gefið í hverjum skammti,
er mögulegt að sjúklingur finni hvorki bragð né verði á annan hátt var við lyfið við gjöf.
Upplýsingar um lyfið fylgja hverri pakkningu þess. Geymsla: Lyfið skal geyma í
umbúðunum vandlega lokuðum. Pakkningar og verð (október 1997): Innúðaduft 4,5
míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 3712 (hluti sjúklings 1.499 kr.).
Innúðaduft 9 míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 4512 (hluti
sjúklings 1.500 kr.
Greiðslufyrirkomulag B.
Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco h.f.