Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
49
mjög virk gegn þeim sýklum sem á að verjast og
valda ekki ertingu í slímhimnu legganga. Aug-
ljós kostur er sá að virka efnið er náttúrulegt
fituefni sem er meðal annars til staðar í mjólk og
því ólíklegt að það valdi líkamanum skaða.
E-54. Frásog og aðgengi á 17-beta estrad-
íóli gefíð undir tungu í sýklódextrín
flækju
Ragnheiður Arnadóttir", Jens A. Guðmunds-
son2,i Þorsteinn Loftsson", Matthías Kjeld41
Frá "lœknadeild HI, 21kvennadeild Landspít-
alans, "lyfjafrœði lyfsala HI, 41rannsóknastofu
Landspítalans í blóðmeinafrceði
Inngangur: Notkun estrógena um og eftir
breytingaskeið kvenna hefur aukist stöðugt
undanfarna tvo áratugi. Algengast hefur verið
að gefa estrógen í töfluformi til frásogs um
meltingarveg. Helst galli við þá íkomuleið er
að mikið af hormóninu brotnar niður í þörmum
og lifur í veikari form. Til að komast hjá fyrsta
niðurbroti er hægt er að gefa estrógen í formi
stungulyfs í vöðva eða sem hlaup og í plásturs-
formi, með frásogi gegnum húð. Mismunandi
aðferðir hafa kosti og galli og þörf er á að auka
fjölbreytileika í íkomuleiðum hormónsins.
Sýklódextrín sameindir eru hringlaga fjölsykr-
ungar og með því að tengja þær við lyfjasam-
eindir eykst leysanleiki lyfja og stöðugleiki.
Tilgangur þessarar tilraunar var að kanna
frásog og fráhvarf estradíóls (E2) og umbrot
þess yfir í veikara formið estrón (El), þegar
það er gefið undir tungu í sýklodextrín flækju.
Einnig að athuga hvort lágir skammtar (50-100
pg) myndu nægja til að bæla seytrun á heila-
dingulshormónunum follíkúlotrópíni (FSH) og
lúteótrópíni (LH).
Efniviður og aðferðir: Fimm konur, 50-67
ára, sem komnar voru meira en eitt ár framyfir
tíðahvörf og voru ekki á hormónameðferð,
tóku þátt í tilrauninni sem tók tvo daga. Fyrri
daginn fengu konurnar tungurótartöflu með 50
pg af E2 í sýklódextrín komplex og síðari dag-
inn voru gefin 100 pg af E2 á sama hátt. Blóð-
sýni voru tekin fyrir töflugjöf og síðan eftir 15,
30, 45 og 60 mínútur og eftir eina og hálfa,
tvær, fjórar, sex, átta og 12 klukkustundir til
mælinga á El, E2, FSH og LH.
Niðurstöður: Frásog og fráhvarf hormónsins
var hratt eftir báða skammtana og hámarks-
þéttni fékkst eftir um 30 mínútur. Meðal s-E2
var 434±71 pinól/1 (SEM) eftir 50pg og
1082+243 pmól/ eftir 100 pg. Eftir fjórar til sex
klukkustundir var blóðþéttni E2 orðin sú sama
og fyrir töflugjöf. Estrón hækkaði í samræmi
við hækkun á E2, en fráhvarfsfasi þess var
hægari. Marktæk lækkun varð á blóðþéttni
FSH eftir stæm skammtinn af E2 og LH lækk-
aði eftir báða skammtana.
Umræða: Með því að tengja estradíól við
sýklódextrín og gefa það í tungurótartöflum
fæst hratt frásog á hormóninu. Þéttni estradíóls
eftir 50 pg samsvarar blóðþéttni eins og hún
mælist í fyrri hluta eðlilegs tíðahrings, en eftir
100 pg fást gildi sem samsvara háum gildum í
miðjum tíðahring við egglos. Fráhvarf horm-
ónsins var hratt.
Alyktanir: Sú litla en marktæka bæling á
FSH og LH sem sást gefur vísbendingu um að
ná megi klínískum árangri í meðferð á estró-
genskorti með þessum lágu hormónaskömmt-
um í tungurótartöflum.
E-55. D-vítamínhagur og árstíðabundnar
sveiflur í ýmsum aldurshópum kvenna á
Islandi
Leifur Franzson'-21, Gunnar Sigurðsson'Jl,
Hólmfríður Þorgeirsdóttir41, Laitfey Stein-
grímsdóttir"
Frá "rannsóknastofu Sjúkrahúss Reykjavíkur
um beinbrot og beinþynningu,2)rannsóknadeild
og "lyjlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur,
41Manneldisráði Islands
Inngangur: D-vítamín er nauðsynlegt til að
tryggja eðlilega þéttni kalks og fosfats í blóði
og útfellingu þessara jóna í bein. D-vítamín
myndast fyrir tilstuðlan sólarljóss í húð en fæst
einnig úr fæðu. Þéttni 25-OH-vítamín-D (S-25-
OH-D) í sermi er talin gefa bestar upplýsingar
um D-vítamínbúskap einstaklingsins. Ætla má
að breytilegur sólargangur á íslandi hafi veru-
leg áhrif á þéttni S-25-OH-D. Tilgangur rann-
sóknarinnar var að kanna magn og árstíðar-
bundnar sveiflur í S-25-OH-D meðal kvenna á
aldrinum 12-70 ára og bera saman við D-víta-
mínneyslu.
Efniviður og aðferðir: S-25-OH-D var mælt
(RIA) í eftirfarandi aldurshópum kvenna: I. 12-
15 ára (n=315), II. 16, 18 og 20 ára (n=247),
III. 25 ára (n=86), IV. 34-48 ára (n=107) og V.
70 ára (n=308). Sýnataka hópa I. og V. var á
tímabilinu september-júní til að meta árstíðar-
bundnar sveiflur. Neysla á D-vítamíni í fæðu
var könnuð með stöðluðum spumingalista í öll-
um hópum nema I. Kalkhormón (PTH) var
mælt (IRMA) í hópi V.