Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 105
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
105
allt að tífalt virkari en tilsvarandi fitusýrur.
Langtímamarkmið þessarar rannsóknar er að
þróa sýkladrepandi lyfjaform sem innihalda
fitusýrur, mónóglýseríð og afleiður af þeim
sem virk efni. Slík lyfjaform má nota sem for-
vörn gegn smiti af völdum HIV og annarra
veira og baktería sem smita um slímhimnur,
einnig til meðferðar á bakteríu-, veiru- og
sveppasýkingum í slímhimnum og húð. Mikil-
vægt er að slík veirueyðandi efni hafi breiða
virkni þannig að þau drepi aðrar veirur og bakt-
eríur sem sýkja slímhimnur kynfæra og valda
kynsjúkdómum. Astæðan er meðal annars sú
að sýkingar í slímhimnum auðvelda innrás
HIV veirunnar og þar með alnæmissmit.
Miðað var við að lyfjaformin ynnu á miklum
fjölda veira eða baktería á stuttum tíma, helst
þannig að það næðist tíu þúsundföld lækkun í
veiru/bakteríutíter á einni til fimm mínútum.
Prófuð var virkni ýmissa fitusýra og mónóglýs-
eríð þeirra gegn HSV-1 í eina mínútu við her-
bergishita. Fram kom að mónókaprín, mónó-
glýseríð af kaprínsýru hafði mest virkni. Þróuð
voru hlaup (hydrogel) sem innihéldu mónó-
kaprín í 20 mM styrkleika. Við samsetningu
hlaupanna voru notaðir ýmsir flokkar hjálpar-
efna til að ná mónóglýseríðinu í lausn, meðal
annars yfirborðsvirk efni, komplexmyndandi
efni svo og blöndur leysiefna. Virkni mismun-
andi samsettra hlaupa var prófuð gegn HSV-1
og sýndu niðurstöður að einungis þau hlaup þar
sem mónókaprín var leyst upp í glýkófúróli
voru nægilega virk.
V-41. Kítósan forðatöflur. Áhrif fram-
Ieiðsluaðstæðna á leysnihraða lyfs
Þórdís Kristmundsdóttir, Rannveig Guðleifs-
dóttir
Frá Lyfjafrœðistofnun HI
Forðalyfjaform er þannig gert að lyfið losnar
hægt úr því og þess vegna er hægt að viðhalda
blóðþéttni lyfsins í lengri tíma en þegar um
venjulegt lyfjaform er að ræða. Með forðalyfja-
formum er oft hægt að bæta lyfjagjöf og gera
hana markvissari. Til þess að geta haldið blóð-
þéttni lyfs stöðugri þarf að ná góðri stjórn á
losunarhraða lyfs úr lyfjaformi. Forðalyfjaform
geta verið samsett á marga vegu, meðal annars
sem töflur, hylki eða stungulyf, eftir því hvern-
ig á að nota þau og hversu langri verkun lyfsins
verið er að sækjast eftir. Matrixtöflur er ein ein-
faldasta leiðin til framleiðslu forðalyfjaforms
til inntöku. Matrixtöflur eru þannig gerðar að
lyfinu er dreift um burðarefni, en hvernig lyfið
losnar eftir inntöku töflunnar fer eftir
eiginleikum matrixburðarefnisins. Lyfið getur
losnað með flæði um matrixinn og svo við það
að matrixinn leysist upp eða eyðist.
Tilgangur verkefnisins var að kanna áhrif
ýmissa þátta á losun lyfja úr kítósan matrixtöfl-
um, en margt bendir til þess að kítósan henti
vel sem hjálparefni í lyfjaform. Kítósan er fjöl-
sykra sem er til í miklu magni í náttúrunni og er
samrýmanleg líkamanum, það er ertir ekki vefi
og brotnar niður fyrir áhrif ensíma. Hversu
leysanlegt kítósan er í vatni fer eftir því hversu
mikið það er afasetýlerað.
Tvær leiðir voru farnar við framleiðslu tafln-
anna, annars vegar bein slátta og hins vegar
kyrning duftblöndunnar. Tvö lyf voru notuð,
diltíazem klóríð og natríum salicýlat, sem bæði
eru auðleysanleg í vatni en hafa gagnstæða
hleðslu. Mismunandi gerðir af kítósani voru
notaðar til að fá fram hver áhrif mólþunga og
afasetýleringar burðarefnisins væru.
Niðurstöður benda eindregið til þess að kít-
ósan hafi ýmsa kosti fram yfir hydroxýprópýl-
metýlsellulósu (HPMC) sem hefur verið mest
rannsakaða fjölliðan í matrixtöflur fram til
þessa. Kítósan gefur jafnari losun lyfjanna en
HPMC og virðist þar að auki henta betur sem
burðarefni fyrir sum lyf, til dæmis natríum sal-
icýlat. Það virðist þó geta verið gagnlegt að
blanda saman fjölliðum með mismunandi eig-
inleika til að fá fram betri stjórnun á losuninni
eins og til dæmis kítósani og HPMC.
V-42. Hönnun og prófanir á kítósanlyfja-
hlaupum
Þórdís Kristmundsdóttir, Sonja Guðfinnsdóttir
Frá Lyfjafræðistofnun HI
Kítósan er fjölsykra sem er framleidd með
N-afasetýleringu á kítíni en kítíni er unnið úr
skel krabbadýra svo sem rækju-, humar- og
krabbaskel. Kítín er torleysanlegt í vatni en
leysni kítósans í vatni fer eftir því hversu mikið
það er afasetýlerað. Kítín og kítósan eru sam-
rýmanleg líkamanum, það er erta ekki vefi og
brotna niður fyrir áhrif ensíma. Bæði kítín og
kítósan hafa fram til þessa verið notuð í ýmsum
tilgangi en notkun í lyfjaiðnaði hefur verið lítil
þó margt bendi til að þessi efni geti hentað vel
sem hjálparefni við lyfjaframleiðslu. Nýjar
rannsóknir hafa sýnt að kítósan loðir mjög vel
við líffræðilegar himnur (bioadhesive), í raun
betur en þau hjálparefni sem hafa verið notuð í