Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 104
104
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLG1RIT 37
tveimur sýklódextrínsameindum. Leysanleiki
lyfsins vex þá í öðru veldi með sýklódextrín-
styrknum. Þegar slíkar 1:2 fléttur myndast er
ekki einungis um að ræða víxlverkun milli lyfs
og sýklódextrína, heldur einnig víxlverkun milli
sýklódextrínsameindanna og það getur haft
áhrif á fléttumyndunina.
Markmið: Víxlverkandi áhrif sýklódextrína
í 1:2 sýklódextrínfléttum voru rannsökuð með
því að nota jónuð og ójónuð sýklódextrín. Einn-
ig voru rannsökuð áhrif jónstyrks og vatnsleys-
anlegra fjölliða á fléttumyndunina.
Aðferð: í rannsókninni voru notuð tvenns
konar ójónuð sýklódextrín (HPþCD og
RMþCD), tvenns konar jónísk neikvætt hlaðin
sýklódextrín (SBpCD og CMþCD) og eitt jón-
ískt jákvætt hlaðið sýklódextrín (TAþCD).
Áhrif mismunandi styrks þessara sýklódextrína
á leysni kólesteróls, kólíkalsíferóls og sinnar-
asíns voru rannsökuð. Einnig voru rannsökuð
áhrif blöndu neikvætt og jákvætt hlaðinna
sýklódextrína.
Niðurstöður: Öll efnin gátu myndað 1:2
fléttur við sýklódextrín. í RMpCD lausn fékkst
50.000-föld aukning í leysni kólesteróls. Jón-
ísk sýklódextrín mynduðu 1:2 fléttur tregar en
óhlaðin sýklódextrín vegna neikvæðrar víxl-
verkunar. Þegar neikvætt og jákvætt jónuðum
sýklódextrínum var blandað saman fékkst allt
að 220% aukning í leysni miðað við hrein jón-
uð sýklódextrín.
Ályktanir: Greinileg víxlverkun var milli
sýklódextrína í 1:2 fléttum. Ef mögulegt væri
að auka víxlverkunaráhrifin fimm- til tífalt
gæti það haft hagnýta þýðingu við hönnun
lyfjaforma.
V-39. Samtenging sýklódextrínglýseról-
etera og rannsóknir á fléttumyndandi
eiginleikum þeirra
Már Másson", Þorsteinn Loftssonn, JosefPitha2>
Frá "lyfjafrœði lyfsala HI,2> 417 Anglesea Street,
Baltimore, MD 21224 USA
Inngangur: Sýklódextrínafleiður sem eru
notaðar í lyfjaiðnaði koma fyrir sem flókin
blanda senr innheldur mismunandi ísómera
sýklódextrínsameinda nreð mismunandi fjölda
hliðarhópa. Hliðarhópur sem tengdur er inn á
hýdroxýlhóp sýklódextríns getur haft tvenns-
konar áhrif á holrúmið í miðju sýklódextríns-
ins. í stöðu þar sem hópurinn er úti í lausninni
sem umlykur sýklódextrínið, verkar hópurinn
eins og framlenging á holrýmið, sem leiðir til
sterkari fléttumyndunar við vatnsfælin lyf. í
stöðu þar sem hópurinn gengur inn í holrýmið,
minnkar holrýmið, og það leiðir til tregari
fléttumyndunar við vatnsfælin lyf. Sýnt hefur
verið fram á að hýdroxýprópýl-B-sýklódextrín
(HP8CD) geta haft betri eða verri fléttumynd-
andi eiginleika en hreint 6-sýklódextrín háð því
hve hliðarhóparnir eru margir á hverri sameind.
Markmið: Samtenging og prófun á fléttu-
myndandi eiginleikum sýklódextrínglýseról-
etera (GlycCD). I þessum afleiðum var hring-
laga hliðarhópur læstur í stellingu sem leiddi til
stækkunar á sýklódextrínholrýminu.
Efniviður og aðferðir: Glýseróleterafleiður
af B-sýklódextríni (GlycBCD) og y-sýklódextr-
íni (GlycyCD) voru myndaðar með því að
hvarfa sýklódextrín við epiklórhýdrín í mildum
alkalínskum lausnum. Helmingur innfærðra
hliðarhópa var hringtengdur. Fléttumyndandi
eiginleikar þessara afleiða voru bornir saman
við fléttumyndandi eignleika hýdroxýprópýl-
sýklódextrína og náttúrulegra sýklódextrína
með leysnitilraunum og niðurbrotstilraunum.
Niðurstöður: Leysnitilraunir sýndu að
hýdrókortisón og asetasólamíð mynduðu stöð-
ugri fléttur við GlycCD en við önnur sýkló-
dextrín. Niðurbrotstilraunir nreð indómetasíni
og klórambúsíli sýndu að GlycBCD myndaði
stöðugri fléttu við indómetasín en önnur 6-
sýklódextrín. GlycCD sameindirnar vernduðu
lyfin jafnvel fyrir niðurbroti og önnur sýkló-
dextrín.
Ályktanir: GlycCD sameindirnar nrynduðu
stöðugar fléttur við lyfjasameindir sem höfðu
stóra vatnsfælna kjarna, sem sýndi að miðju-
holrýmið var að meðaltali stærra en í HPCD og
náttúrulegum sýklódextrínum.
V-40. Þróun og prófanir á lyfjaformum
sem innihalda veirudrepandi fítuefni
Þórdís Kristmundsdóttir", Sigrún Edwald",
Halldór Þonnar'
Frá "Lyfjafrœðistofiiun HÍ, 21Líffrœðistofnun HÍ
Rannsóknir hafa sýnt að fitusýrur af ýmsu
tagi og 1 -mónóglýseríð af þeim eru rnjög virk
gegn hjúpuðum veirum svo sem vesicular
stomatitis veiru (VSV), herpes simplex veiru
(HSV), cýtómegalóveiru, respiratory syncytial
veiru, visnuveiru og alnæmisveirunni HIV í
frumuræktaræti í tilraunaglösum. Meðallangar
fitusýrur (6-12 kolefnisatóm) og langar ómett-
aðar fitusýrur eru mjög virkar en virkust eru 1-
mónóglýseríð af meðallöngum fitusýrum, eða