Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 34
34
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
hjá fóstri. Greindir hjartagallar voru: vanþroska
vinstra hjarta (7), lokuvísagalli (4), flókinn
samsettur hjartagalli (3), op milli slegla (3),
hjartavöðvasjúkdómur (3), ferna Fallots (2), op
inilli gátta (2), lungnaslagæðarþrengsli (2),
sameiginlegur slagæðastofn (1), víxlun megin-
slagæða (1), þríblöðkulokun (1) og víxlun
meginslagæða samfara opi milli slegla (1).
Sautján meðgöngum lauk með framkallaðri
fóstureyðingu. Eitt fóstur dó í móðurkviði en
þrjú skömmu eftir fæðingu. Þrettán fóstur eru
lifandi og hafði greining fyrir fæðingu áhrif á
meðferð þeirra við og eftir fæðingu .
Alyktanir: Greiningu á hjartasjúkdómum
hjá fóstrum er hægt að framkvæma um og eftir
miðja meðgöngu með umtalsverðu öryggi. Af-
brigðileg skimskoðun í 19. viku meðgöngu er
helsta ábending fyrir ómskoðun á fósturhjarta
og gegnir veigamiklu hlutverki hérlendis í
greiningu hjartasjúkdóma fyrir fæðingu. Horf-
ur barna sem greinast með hjartasjúkdóm fyrir
fæðingu eru ekki góðar en slík greining getur
skipt miklu máli fyrir meðferð og horfur á
læknanlegum hjartagöllum. Greining á hjarta-
sjúkdómum fyrir fæðingu hefur haft áhrif á
tíðni meðfæddra hjartagalla á Islandi.
E-24. Lokun á opinni fósturæð í hjarta-
þræðingu
Hróðmar Helgason", Gunnlaugur Sigfússon",
Herbert Eiríksson", Kristján Eyjólfsson21
Frá "Barnaspítala Hringsins, 2,lyflœkninga-
deild Landspítalans
Inngangur: Opin fósturæð (PDA) er al-
gengur meðfæddur hjartagalli og í íslenskri
rannsókn frá 1989-1995 var opin fósturæð um
7% allra meðfæddra hjartagalla. Til skamms
tíma var meðferðin opin skurðaðgerð þar sem
æðin var undirbundin og henni skipt. A árinu
1994 var ný aðferð við að loka opinni fósturæð
tekin upp hér á landi. 1 hjartaþræðingu er kom-
ið fyrir í æðinni stálgormi með íofnum dacron
tjásum. Við kynnum árangur þessarar meðferð-
ar á árunum 1994 til 1998 á Landspítalanum.
Efniviður og aðferðir: Við skoðuðum sjúkra-
skrár og þræðingarskýrslur þeirra sjúklinga
sem lagðir voru inn á Landspítalann frá því í
nóvember 1994 til 30. september 1998 og höfðu
greininguna opin fósturæð. Skoðuð var kynja-
skipting, aldur og meðferð í hjartaþræðingu (teg-
und og stærð gorma, stærð PDA) og fylgikvillar.
Niðurstöður: Fjörutíu og sex sjúklingar, 31
stúlka/kona og 15 drengir (kynhlutfall 2,1:1) á
aldrinum 0,8-65 ára (miðtala 4,5 ár) gengust
undir'lokun í þræðingu. A árinu 1994: fimm
sjúklingar, 1995: 13 sjúklingar, 1996: níu sjúk-
linga, 1997: átta sjúklingar og 1998: 10 sjúk-
lingar. Lokun á opinni fósturæð fékkst í 43
sjúklingum (91,5%). Afdrif hinna sjúklinganna
voru: 1) Gorminn rak út í vinstra lunga og var
skilinn þar eftir og hætt við lokun í þræðingu.
Var æðinni lokað með skurðaðgerð síðar. 2) I
tveimur sjúklingum fékkst ófullnægjandi lega
er gormurinn hafði verið staðsettur og var hann
því dreginn út aftur, annar sjúklingurinn gekkst
síðar undir aðgerð en hinn hefur ekki gengist
undir aðgerð. Hjá hinum sjúklingunum 43 var
stærð opnu fósturæðarinnar sem var lokað; 1
mm: 12 sjúklingar, 1,5 mm: 11 sjúklingar, 2
mm: 11 sjúklingar, 2,5 mm: fimm sjúklingar, 3
mm: fimm sjúklingar og >3 mm: tveir sjúk-
linga mælt í æðamyndatöku (angiography).
Fylgikvillar voru gormarek út í lungnaslagæð
hjá fjórum sjúklingum og náðist að taka þá út
aftur hjá þremur. Þrjátíu sjúklingar af 46 voru
útskrifaðir samdægurs af sjúkrahúsinu, hinir 16
voru útskrifaðir næsta dag.
Alyktanir: Við ályktum að lokun opinnar
fósturæðar í hjartaþræðingu sé örugg og virk
aðferð með minni háttar fylgikvillum.
E-25. Ferna Fallots á íslandi 1968-1997
Herbert Eiríksson, Gunnlaugur Sigfússon,
Hróðmar Helgason
Frá Barnaspítala Hringsins
Inngangur: Ferna Fallots (tetralogy of Fal-
lot) er einn algengasti meðfæddi hjartagallinn
sem veldur bláma. Rannsókn þessi nær til allra
barna með þennan sjúkdóm á Islandi á árabil-
inu 1968-1997.
Efniviður og aðferðir: Gagna var aflað úr
sjúkraskrám sem innnihéldu hjartaómskoðun-
ar-, hjartaþræðingar- og krufningaskýrslur.
Skoðað var nýgengi sjúkdómsins, greining,
meðferð og horfur.
Niðurstöður: Þrjátíu og átta börn reyndust
hafa fernu Fallots á þessu 30 ára tímabili, eitt á
hverjar 3.444 fæðingar. Tveir þriðju hlutar
sjúklinga greindust fyrir eða innan viku frá
fæðingu, þar af tveir á fósturskeiði. Kynja-
skipting var jöfn, 19 drengir og 19 telpur. Þrjá-
tíu og tveir einstaklingar höfðu hefðbundið
form fernu Fallots, þrír höfðu að auki fullkom-
lega heft blóðflæði frá hægri slegli til lungna
(pulmonal atresia) og þrjú börn höfðu flóknari
galla. Níu böm höfðu aðra meðfylgjandi sköpu-