Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 89
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37
89
hafa verið í meðferð á göngudeild Landspítal-
ans fyrir háa blóðfitu eða tekið þátt í afkom-
endarannsókn Hjartaverndar. í upphafi eru að-
eins einstaklingar með mikla hækkun á bæði
kólesteróli og þríglýseríðum athugaðir til að
tryggja rétta sjúkdómsgreiningu og afmarka
upphafshóp rannsóknarinnar (>90 percentíl í
TC og TG). Ættingjum þessara einstaklinga
verður boðin þátttaka í rannsókninni og verður
í fyrstu leitað til ættingja af 1.-3. gráðu (3.
gráða er systkinabörn). Gerðar eru mælingar á
blóðfitu og öðrum þekktum áhættuþáttum krans-
æðasjúkdóma.
Rannsóknin er á byrjunarstigi. Þegar hafa
verið fundnir 26 óskyldir einstaklingar (pro-
bands) sem uppfylla sett skilyrði fyrir sjúk-
dómsgreiningunni. Miðað við reynslu af leit að
skyldum sjúkdómi, arfbundinni kólesteról-
hækkun, má reikna með að prófa þurfi um 800
manns til að finna alla með FCH í ættum þeirra
einstaklinga sem þegar hafa verið skilgreindar.
Ef meingen finnst verður DNA prófum beitt
við að finna flesta af þeim 8000 einstaklingum
sem talið er að hafi FCH á íslandi.
Fyrri reynsla bendir til að leit að FCH með
því að beita ættrakningu og blóðfitumælingum
geti orðið árangursrík. Líklegt er að finna megi
flesta einstaklinga með FCH á íslandi og bjóða
þeim blóðfitulækkandi meðferð.
V-8. Könnun á heilsu, þreki og hreyfíngu
Svaitdís Sigurðardóttir, Jóhannes Helgason,
Þórarinn Sveinsson
Frá námshraut í sjúkraþjálfun HI, Lífeðlis-
frœðistofnun HI
Inngangur: Reglubundin hreyfing telst nú
einn mikilvægasti liðurinn í hollum lífsháttum.
Kannanir á öðrum vestrænum þjóðfélögum
sýna þó að enn eru margir sem hreyfa sig lítið
sem ekkert þrátt fyrir upplýsingastreymið um
heilsueflinguna undanfarna áratugi. Tilgangur
þessarar könnunar er að afla upplýsinga um
stöðu mála hér á landi, því niðurstöður erlendra
rannsókna sýna meðal annars að fjölmargir
þættir ráða því hvort fólk hreyfir sig reglulega
eða ekki. Með upplýsingum um reglubundna
hreyfingu hjá íslendingum og viðhorf þeirra til
heilsuræktar ætti að vera hægt að veita almenn-
ingi markvissari fræðslu í þessum efnum.
Könnunin er gerð að fyrirmynd finnskrar rann-
sóknar og í náinni samvinnu við UKK-stofn-
unina í Tampere í Finnlandi.
Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var
sendur til 645 íslendinga í apríl 1997. Úrtakið
var slembiúrtak úr þjóðskrá úr þremur aldurs-
hópum, 26-28 ára, 41-43 ára og 55-57 ára. Á
listanum eru 49 ítarlegar spurningar um lífs-
hætti, heilsufar og afþreyingu með sérstakri
áherslu á viðhorf til heilsuræktar og eigin
hreyfingar. Itrekunarbréf voru send út þrisvar á
næstu vikum þar á eftir.
Niðurstöður: Heildarsvörunin í aldurshóp-
unum þremur var 49%. Af þeim sem svöruðu í
26-28 ára aldurshópnum stunduðu 39,5% hraða
og líflega hreyfingu að minnsta kosti þrisvar
sinnum í viku, og 33,0% í 41-43 ára aldurs-
hópnum en aðeins 19,1% í 55-57 ára aldurs-
hópnum. Hins vegar stunduðu 40,9% í elsta
aldurshópnum einungis hæga og rólega hreyf-
ingu, 31,9% í miðhópnum, og 22,8% í yngsta
aldurshópnum. I öllum aldurshópunum voru 6-
7% sem töldu sig ekki stunda neina reglu-
bundna hreyfingu.
Ályktanir: Af þessu má draga þá ályktun að
meginþorri Islendinga hreyfi sig reglulega en
lífleg og hröð hreyfing er algengari eftir því
sem fólk er yngra.
V-9. Tannlæknafælni á íslandi. Faralds-
fræðileg könnun
Eiríkur Örn Arnarson'2', Björn Ragnarsson3>,
Sigurjón Arnlaugsson31, Karl Örn Karlsson31,
Þórður E. Magnússon31
Frá "lœknadeild HÍ, 21geðdeild Landspítalans,
3>tannlœknadeild HI
Inngangur: Faraldsfræðileg könnun á tíðni
afmarkaðrar (tannlækna-) fælni var gerð á lag-
skiptu úrtaki íslendinga. Auk tannlæknafælni
fjallaði könnunin um þætti sem kunna að tengj-
ast tannlæknafælni. Á árunum 1972-1973 var
lagskipt úrtak 1641 skólabarns valið til skoð-
unar á bitskekkju auk tann-, bein- og kyn-
þroska.
Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var
sendur 22 árum seinna (1995) til fyrrgreindra
einstaklinga og spurt um ýmsar breytur sem
tengjast munnheilsu svo sem munn- og kjálka-
verki, álagstengd mein í kjálkum, sjálfsmat á
útliti almennt svo og tanna og einnig áætlaða
þörf á tannréttingameðferð. Spurningar grund-
aðar á skilmerkjum bandaríska geðlæknafé-
lagsins (DSM-IV) fyrir afmarkaða fælni voru
notaðar í könnuninni. Af 1529 einstaklingum,
sem unnt reyndist að finna, svöruðu 1192
(svarhlutfall 78%).
Niðurstöður og ályktanir: Niðurstöðurnar