Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Blaðsíða 115
LÆKNABLAÐIÐ 1998: 84/FYLGIR1T 37
115
með propidium iodide (PI) sem er kjarnsýrulit-
ur. Tiltekinn fjöldi af flúrljómandi latex kúlum
(beads) í tilraunaglasinu og áveðið rúmmál
sýnisins við litun gerir mögulegt að ákvarða
rauntjölda hvítfrumna í blóðhlutanum.
Niðurstöður: Raunfjöldi hvítfrumna í blóð-
flögueiningum eftir síun var í öllum tilvikum
langt innan þeirra marka sem talin eru æskileg
(0,2x1 OVeiningu) samkvæmt mælingum með
frumuflæðisjá. Fjöldinn var hins vegar of lítill
til að hægt væri að meta hann með blóðfrumu-
teljara.
Alyktun: Talningu hvítfrumna í blóðflögu-
þykkni eftir síun er hægt að framkvæma með til-
skilinni nákvæmni og næmi með frumuflæðisjá.
Venjuleg hvítfrumutalning með CellDyn er ein-
ungis möguleg við gæðaeftirlit fyrir síun. Niður-
stöður benda til þess að áreiðanleiki síunar sé
góður í blóðbanka, en árangur hvítfrumusíunar
verður metinn frekar í framhaldsrannsókn.
V-57. Mótefnaframleiðandi frumur í
naflastrengsblóði og blóði fullorðinna.
Áhrif Epstein-Barr veirunnar og inter-
leukin-4
Kristbjörn Orri Guðmundsson'1, Leifur Þor-
steinsson", Sveinn Guðmundsson", Asgeir
Haraldsson’’
Frá "Blóðbankanum, 21Barnaspítala Hringsins
Inngangur: Mótefnaframleiðsla B-frumna í
naflastrengsblóði (NSB) gefur innsýn í þroskun
ónæmissvars hjá nýburum. B-frumur í NSB
framleiða nánast eingöngu mótefni af IgM
flokki. Ekki er ljóst hvort um vanþroskun á B-
frumum, T-frumum eða báðum er að ræða. 1
mörgum rannsóknum á hæfileika B-frumna úr
NSB til mótefnamyndunar hafa verið notaðar
beinar mælingar á mótefnum í sermi. Markmið
þessarar rannsóknar var að ákvarða fjölda mót-
efnamyndandi B-frumna í NSB með ELISPOT
aðferðinni og bera saman við fjöldann úr blóði
fullorðinna.
Efniviður og aðferðir: Blóð var fengið úr 10
heilbrigðum blóðgjöfum og 10 naflastrengjum.
B-frumur voru einangraðar með segulkúlum
húðuðum mótefnum gegn CD19. Einangraðar
B-frumur voru umbreyttar (transformed) með
Epstein-Barr veirunni (EBV) í æti með eða án
interleukin-4 (IL-4). Fjöldi IgA, IgM, IgG og
IgE myndandi B-frumna var ákvarðaður með
ELISPOT aðferð.
Niðurstöður: í blóði fullorðinna var fjöldi
IgA myndandi frumna 107,8/105 einkjarna
hvítfrumur en af IgM 19,5 og IgG 37,6. Við Ep-
stein-Barr veiru umbreytingu jókst fjöldi mót-
efnamyndandi frumna af þessum flokkum veru-
lega. í NSB var lítili fjöldi IgA (5,1), IgM
(25,4) og IgG (15,6) myndandi frumna. Við
Epstein-Barr veiru umbreytingu jókst hins veg-
ar fjöldi IgM myndandi frumna (13123,0), en
fjölgun IgA (31,9) og IgG (80,1) myndandi
frumna var lítil en greinanleg. Án umbreyting-
ar voru engar greinanlegar IgE framleiðandi
frumur í NSB eða blóði fullorðinna. Fjöldi IgE
framleiðandi frumna eftir Epstein-Barr veiru
umbreytingu að viðbættum IL-4 var 44,7/5xl05
frumuríNSB og 25,3/5xl05 íblóði fullorðinna.
Ekki var marktækur munur á fjölda IgE fram-
leiðandi frumna milli hópanna.
Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til að í
NSB sé að finna lítinn en greinanlegan fjölda
IgA og IgG myndandi B-frumna auk IgM
myndandi frumna. Þessar frumur má örva til
frekari mótefnaframleiðslu. Niðurstöðurnar
benda einnig til að B-frumur úr NSB hafi sam-
bærilegan hæfileika til IgE myndunar og B-
frumur úr fullorðnum.
V-58. Samanburður á sýklalyfjanotkun
barna 1993 og 1998
Vilhjálmur A. Arason, Aðalsteinn Gunnlaugs-
son, Helga Erlendsdóttir, Karl G. Kristinsson,
Eggert Sigfússon, Sigurður Guðmundsson, Jó-
hann A. Sigurðsson
Frá Heilugœslustöðinni Sólvangi Hafnarfirði,
sýklafrœðideild og lyflœkningadeild Landspít-
alans, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu, heimilislœknisfræði læknadeild HÍ
Inngangur: Á síðustu árum hefur verið rennt
frekari stoðum undir þær tilgátur að mikil
sýklalyfjanotkun hér á landi leiði til aukins
ónæmis sýkla gegn algengum sýklalyfjum. í
framhaldi af því hefur verið beitt markvissri
fræðslu meðal fagfólks og almennings gegn
óhóflegri sýklalyfjanotkun barna. Sérstaklega
hefur verið ráðlagt að ekki þurfi alltaf að með-
höndla vægar eyrnabólgur og varað við notkun
trímetóprím-súlfa.
Efniviður og aðferðir: Safnað var upplýs-
ingum um: a) sýklalyfjasölu frá Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu og reiknaðar breyt-
ingar á sölu sýklalyfja í mixtúruformi milli ára;
b) sýklalyfjnotkun úr slembidreifðu úrtaki úr
þýði barna á aldrinum eins til sex ára með lög-
heimili í Vestmannaeyjum, Bolungarvík, Hafn-
arfirði og á Egilsstöðum og þær bornar saman