Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 17

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 17
að sé vöruflokkun lítið sundurliðuð er sú hætta ávallt fyrir hendi að gæðabreytingar „týnist" við staðvirðingu og komi því fram sem verðbreyting. í því tilviki mundi framleiðsla eða innflutningur á betri og dýrari vöru ranglega koma fram sem verðhækkun. Ein lausn á vandamáli af þessu tagi er sú, að líta á verðhlutfallið á milli nýja og gamla afbrigðisins af sömu vöru sem vísbendingu um gæðabreytingu. Ef nýja afbrigðið er t.d. 10% dýrara en gamla afbrigðið er sagt að gæðin séu 10% meiri og þessi gæðabreyting kemur þá fram sem magnbreyting. Þessa lausn mætti nota þegar gamla afbrigðið er fáanlegt samtímis hinu nýja. En jafnvel þótt svo sé verður að nota þessa aðferð með varúð því þess eru mörg dæmi að nýtt afbrigði sé í fyrstu verðlagt mjög hátt, en lækki síðan smám saman. Þá kemur upp sú spurning hvaða verðhlutfall eigi að nota sem vísbendingu um gæðabreytingu. Gæðabreytingar geta einnig oft haft það í för með sér að eldra afbrigði sömu vörutegundar er tekið af markaðnum jafnskjótt og hið nýja kemur til sögunnar. Gott dæmi af þessu tagi eru nýjar árgerðir af bílum. Þegar þannig háttar til er ekki unnt að meta gæðabreytinguna á grundvelli verðhlutfalla milli nýja og gamla afbrigðisins. Þá er gripið til annarra ráða. Eitt er að áætla breytingar á framleiðslukostn- aði milli nýja og gamla afbrigðisins. Aðferðir af þessu tagi eru þó ýmsum annmörkum háðar. Þannig má segja að þær taki ekkert tillit til þess sem neytandinn vill né heldur til hugsanlegra gæðabreytinga sem ekkert kosta. Þótt hér sé vissulega um grófar nálgunaraðferðir að ræða er auðvelt að réttlæta þær með því að hinn kosturinn væri sýnu lakari, þ.e. að líta framhjá þessum gæðabreytingum, en þá kæmu þær ranglega fram sem verðbreyting. Annað vandamál, sem upp kemur, er meðferð á nýjum vörum. Með nýjum vörum er átt við vörur sem eru það frábrugðnar öllum eldri vörum að magn þeirra, metið í einhverjum þyngdar- eða rúmmálseiningum eða stykkjafjölda, verður ekki tengt eldri vörum. Af þessari skilgreiningu leiðir að magn hinnar nýju vöru getur hæglega verið núll á grunnári. Eftir stendur hins vegar það vandamál að ákveða verð vörunnar á grunnári, þegar varan var ekki til. Ein lausn þessa vandamáls er sú að gefa sér þá forsendu, að verðþróun þessarar nýju vöru mundi hafa orðið sú sama og hún varð í reynd fyrir skyldar vörur sem framleiddar voru bæði á grunnári og líðandi ári. Hér þarf að taka afstöðu til þess hvað eru skyldar vörur. Réttara er talið að leggja til grundvallar skyldleika í framleiðslutækni og þeim hráefnum sem notuð eru við framleiðsluna fremur en skyldleika að því er tekur til notkunarsviðs. Þriðja vandamálið við staðvirðingu, sem hér verður fjallað um, er val á grunnári. Almennt má segja að meðan verðhluföll milli vörutegunda breytast ekki frá ári til árs sé ekki ástæða til þess að skipta um grunnár. í því tilviki yrðu magnbreytingar þær sömu hvaða grunnár sem notað væri. Hins vegar er þetta skilyrði nánast aldrei uppfyllt í reynd. Vegna þessara breytinga í innbyrðis verðhlutföllum er nauðsynlegt að skipta um grunnár öðru hverju. Við val á grunnári er því sjónarmiði oft haldið fram að grunnárið eigi að vera „venjulegt“ í sem flestum skilningi. Mjög kann að orka tvímælis hvað er „venjulegt" í þessu sambandi og hæpið að hafa slíkt að leiðarljósi. Frá því að reglubundnar einkaneyslurannsóknir hófust hér á landi um 1960 hafa grunnár staðvirðingar verið þrjú, þ.e. 1960, 1969 og 1980. í framhaldi af þeim helstu vandamálum, sem upp koma við staðvirðinguna, verður nú farið nokkrum orðum um áðurnefndar tvær aðferðir, þ.e. einingarverðsaðferð og vísitöluaðferð. 4.2 Einingarverðsaðferð. Einingarverðsaðferðin felst í því að reikna fastaverðið sem margfeldi á magni og verði. Magn vöru, sem neytt er á tilteknu ári, er margfaldað með verði þessarar vörutegundar á grunnárinu. Lýsa má þessari aðferð í eftirfarandi jöfnu: V=P0*Qt V : verðmæti vörunnar á verðlagi grunnársins P0 : einingarverð vörunnar á grunnárinu Qt : magn tiltekinnar vöru á árinu t 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.