Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 30

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 30
liggja fyrir frá tryggingarfélögum. Til frádráttar á viðgerðarkostnaði koma greiddar tjónabætur tryggingafélaganna. Upplýsingar um kaup á bifreiðavarahlutum fást úr innflutningsskrám Hagstofunnar en viðgerðar- vinnan er áætluð út frá kaupum á varahlutum með ákveðnum margfaldara sem breytist eftir þróun launa og varahluta. Staðvirðing útgjalda vegna einkafarartækja er gerð með verðvísitölu fyrir hvern útgjaldalið eða með a.m.k. 12 vísitölum fyrir reksturinn og fleiri vísitölum fyrir kaup bifreiða og varahluta til þeirra. Frá 1982 hefur áætlunaraðferðum verið breytt og nú er rekstur einkabifreiða áætlaður með þeim hætti að margfalda kostnað á hvern ekinn kílómetra, eins og hann er í bifreiðavísitölu Hagstofunnar, með fjölda einkabifreiða í landinu og áætluðum akstri á ári. Afskriftir eru þó ekki meðtaldar enda teljast bifreiðakaupin til útgjalda í einkaneyslu á kaupári. Útgjöldin eru þá miðuð við fjölda einkabifreiða allt að 7 manna, samkvæmt skrám Bifreiðaeftirlits ríkisins, og 80% af eðlilegum meðalakstri. Með hlutfalli þessu er jafnframt tekið tillit til lækkandi meðalaksturs bifreiða, m.a. vegna þess hversu almennt er að heimilisbifreiðar séu fleiri en ein. Rekstrarkostnaður einkabifreiða á föstu verði er reiknaður á grundvelli verðvísitölu sem mælir verðhækkanir rekstrarkostnaðar í bifreiðavísitölu Hagstofunnar. Eru þá afskriftirnar undanskyldar eins og áður. 6.3 Almenn flutningaþjónusta. Almenn flutningaþjónusta skiptist í fólksflutninga á landi og farþegaflutninga á sjó og í lofti. Fólksflutningar á landi eru áætlaðir út frá innkomnum tekjum SVR og annarra strætisvagnafyrir- tækja, tekjum sérleyfishafa, svo sem Landleiða o.fl., og tekjum af hópferðaakstri samkvæmt tölum BSÍ. Útgjöld vegna hópferða eru einnig meðtalin, en upplýsingar þarum komafrá Pósti og síma. Byggt er á innheimtu sérleyfisgjalda af hópferðaakstri er nemur tilteknu hlutfalli af fargjaldatekjum. Arið 1983 var skattskyldu af hópferðaakstri breytt á þann veg að í stað 2,92% gjalds, sem reiknaðist af fargjaldatekjum, var tekið upp sætisgjald mishátt eftir stærð bifreiðar. Frá 1983 eru áætlanir gerðar í samráði við Félag íslenskra sérleyfishafa. Til að reikna útgjöld á föstu verðlagi vegna ferða með strætisvögnum, sérleyfisbifreiðum og hópferðabifreiðum eru notaðar verðvísitölur úr vísitölu framfærslukostnaðar. Annars vegar er um að ræða vísitölu sem byggir á útgjöldum framfærsluvísitölunnar til strætisvagnaferða og hins vegar er vísitala sem mælir verðbreytingar á fargjöldum með sérleyfis- og hópferðabifreiðum. Aðrir fólksflutningar á landi eru áætlaðir með hliðsjón af tekjum í atv.gr. 713 sem eru m.a. leigubifreiðastöðvar og bílaleigur, en tæplega helmingur tekna bifreiðaleiganna er talinn utan einkaneyslunnar. Fastaverðið er reiknað með verðvísitölu leigubifreiðaútgjalda samkvæmt fram- færsluvísitölunni. Flugferðir innanlands og milli landa eru áætlaðar eftir upplýsingum frá flugfélögum og með tölum úr ársreikningum þeirra. Útgjöldin á föstu verði eru reiknuð með vísitölum samkvæmt framfærsluvísi- tölunni. Um er að ræða tvær vísitölur fyrir flugfargjöld. Önnur mælir verðbreytingar á flugfargjöldum innanlands og hin byggist á flugfargjöldum í millilandaflugi. Frá áætluðum tekjum af farþegaflugi flugfélaga, öðrum en leiguflugi, eru dregin 30% vegna áætlaðra viðskiptaferða í almennu farþegaflugi. Til að reikna frádráttinn á föstu verði er þessari sömu 30% reglu beitt. 6.4 Póstur og sími. Áætluð símaútgjöld eru reiknuð út frá upplýsingum um fjölda einkasíma. Ársfjórðungsgjöld og stofngjöld eru áætluð skv. þessum upplýsingum og jafnframt með tölum úr vísitölu framfærslukostnað- ar. Aukaskref eru áætluð rúmlega 2500 skref á tæki og útgjöld reiknuð á grundvelli skrefaverðs og 28
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.