Nýtt Helgafell - 01.12.1958, Qupperneq 53
TVÖ BRÉF FRÁ BENEDIKT GRÖNDAL
139
rigna yfir rángláta og réttláta hlýjum hjúfur-
skúrum, rétt eins og á blíðasta vordegi, og
eg nota þessa bása, sem þetta bréfsefni er
niðurskipt í, til þess að ræða ýmisleg mál-
efni, sem nú hafa um stund staðið á dagskrá
lífsins, allt eins og gert er á alþingi, sem er
fyrirmynd okkar í öllu lífinu, í peningabrúk-
uninni, skvnsamlegri notkun tímans, og í alls
konar vizku et cetera.
Já, Jón, þú minnist á fyrirlesturinn minn.
Jeg þekti okkar „Publikum”, og við þekkjum
það báðir. Þess vegna hafði jeg þann Hum-
bugtitil sem þú hefur séð í ísafold, og „ganske
rigtig“ — það streymdi að eins og andskot-
inn liefði lofað því túmarki. So fékk eg seinna
slettur hjá einum „menntamanni“ (einum
af þeim sem eru allra ómenntaðastir), að jeg
hefði narrað þá, því þess konar þjóð vill
ekkert hafa nema tóma „grín“, en því hafði
jeg aldrei lofað. Jeg hafði sett á plakatið
hvað jeg ætlaði að tala um, og það hélt jeg,
og jeg veit að alþýðumönnum líkaði vel að
heyra til mín, og það sögðu margir við mig.
En enginn blaðamaður minntist einu orði á
þetta, sem ekki var von, því eg er ekkert inn
undir hjá þeim hér, og þar að auki talaði jeg
um „kvenfrelsismálið“, og jeg hef aldrei verið
hrifinn af því, heldur álít jeg það helvítis
Humbug, eins og flest af blaðamannabulli;
nema hvað Fjallkonan nefndi mig snöggvast
með ónotum. Jeg nefndi líka ýmislegt annað,
t.a.m. trú og skáldskap, en jeg hef ekki talað
um það í blaðanna anda, því blaðamennirnir
eru rasssleikjur.
Jeg sé á bréfinu þínu, að þar fyrir norðan
muni fólkið vera eins vel upplagt til að
skemmta sér eins og hér. í allan vetur hefur
hér ekkert fiskast og engin atvinna verið
fyrir almenning, og mýmargt fólk hefur víst
ekkert að jeta, en það gerir ekkert til, það
streymir á Kömedíur, Tombola, Bazar og
Auctioner og þá vantar það ekkert, og svona
mundi allt sveitafólk líka gera ef það hefði
tækifæri til þess; púnkturinn er, að allt fólk,
eða öll þjóðin, er orðin vitlaus og ríngluð af
því sem blöðin prédika fram og aptr, alveg
stefnulaus nema í því einu að féfletta fólkið
og svíkja það. Öll okkar eymd og allt okkar
brutl og braml er blöðunum að kenna og
þaðan kemst það inn á alþingið.
Jeg álít það víst að þjóðin hér sé að fara
á hausinn. Þar sem Jón Bjarnason sagði að
ísland væri að blása upp, þá má miklu fremur
segja að íslendingar séu að blása upp, því
þessir sem „færa orðið“ eru annaðhvort al-
vitlausir eða hálfvitlausir og gera svo aðra
vitlausa. í staðinn fyrir að færa sig frá hinu
minna og einfaldara, eins og allar þjóðir hafa
gert — ekki af sjálfsdáðun eða með vilja,
heldur knúðar af kringumstæðunum — þá
byrja þeir ofaná, á Culmination Civilisation-
arinnar. Yfir höfuð er þjóðin alveg á sama
stigi og villiþjóðir, nema hvað búið er að
kenna henni hrokann og barlóminn — aptur
blaðanna verkanir. Blöðin eru árum saman
búin að gylla fyrir fólkinu og segja því að
þetta megi það til að fá, annars geti það ekki
lifað — járnbrautir, háskóla, rafmagn &c, og
segja að þetta sé hægt að fá, það komi sjálf-
sagt — þessu trúir fólkið lengi vel, en þegar
árin b'ða og það sér að ekkert uppfyllist af
þessum glæsilegu fyrirheituin, þá örvæntir
það og ldeypur burt hver sem betur getur,
eða gerir ekkert sér í hag — aptur blöðin,
sem fjandinn hafi.
Já, gufubátaferðirnar. Það cr nú eitt sem
endilega má til að hafa, annars væri engar
„framfarir“ — þó ekkert sé til að flytja nema
drívara sem eru að slaksa híngað og þangað
og hafa ekkert að gera nema rápa landshorn-
anna milli og setjast upp á aðra og tefja
menn, þetta er fjarska áríðandi. En hvað
flytja þessi milliferðaskip að jafnaði? Ekk-
ert, nema svo sem tvisvar á ári kaupafólk
til og frá. Svo þykir þessum „framfaramönn-
um“ ekkert ófært, hjá þeim er aldrei óveður,
ís eða kuldi, og þeir æpa á bak við kakalofn-
ana sína að allt sé fært, það megi fara í kríng-
urn landið á öllum árstíðum, nóg sé til að
að flytja, þó ekkert fiskist og þó allt drepist