Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Síða 15
9
og gómsætast bergjandi vín,
svo örir, svo léttir í lundu
vér litum Jdú allir til þín.
Þótt veizlukvæði liali ef til vill takmarkað heimildagildi, þá
er brugðið þarna upp mynd, sem vera mun nærri sanni. Vér
sjáum þar fyrir oss mælskumann, sem vekur jafnt hrifningu og
fögnuð, og allir viðstaddir heillast af og líta upp til. En svo
var Stefán ætíð á mannfundum til hinnstu stundar.
1 Höfn starfaði þá einnig félagið Velvakandi og bræður
lians. Lét það ýmis þjóðmál til sín taka. Stefán gekk snemma
í það og telur Finnur Jónsson hann meðal helztu manna Jress.
Af dagbók Stefáns 1887 sést, að félagið hefur Joá látið stjórnar-
skrárdeiluna mjög til sín taka. Þá situr ritstjóri vinstri ntanna
í Danmörku, Korsgárd, lund með þeim lélögum og heitir full-
tingi vinstri manna í Jreim málum. Þeir Velvakandamenn
skrifa um íslenzk mál í dönsk vinstri blöð. Einnig virðist, sem
Jreir hafi skipt íslenzku blöðunum milli sín og skrifað í þau
fréttir. Mun mega rekja fréttaritun Stefáns til Norðurljóssins
og Þjóðviljans síðustu Hafnarár hans ti! Jress.
Þá var Stefán bókavörður Bókmenntafélagsins frá því í marz
1886 til heimfarar sinnar og varði til þess miklum tíma.
Öll Hafnarár sín bjó Stefán á Garði. Voru Jreir dr. Valtýr
sambýlismenn nema síðustu mánuði Stefáns, þegar Valtýr var
fluttur út. Bjó hann þá með Adolf S. Jensen, síðar prófessor í
dýrafræði. Þeir Stefán og Valtýr voru vinir frá barnæsku og
liélzt svo rneðan báðir lifðu. í janúar 1887 var Valtýr að undir-
búa meistaraprófsritgerð sína. Þá teiknaði Stefán fyrir hann
myndir af íslenzkum bæjum og hreinskrifaði fyrir hann til-
vitnanir og varði til þess mikium tíma. Munu þær myndir
síðan vera prentaðar í doktorsritgerð Valtýs.
Það var þannig margt, sem dreifði kröftum og huga hins
unga námsmanns. En engu að síður vannst honum tími til að
sinna námi sínu af kostgæfni. Heimspekiprófi lauk hann 1885
með ágætiseinkunn, og náttúrufræðinámið sóttist vel. Af dag-
bók hans frá vetrinum 1887 sést, að hann hefur lesið Jíá af of-
urkappi einkum þó dýrafræði og jarðfræði. Er hann Jrá í