Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Side 19
13
segist hann liafa verið veikur fyrir í jarðfræðinni. Að loknu
prófinu sendi hann urasókn um kennaraembættið ásamt vitn-
isburðunt og meðmælum kennara sinna til landshöfðingja.
Jafnframt skrifaði hann Halldóri Kr. Friðrikssyni, yfirkenn-
ara, og bað hann að tala máli sínu. En allt um þetta er liann
enn sýnilega á báðum áttum. Hann langar til að dveljast leng-
ur í Höfn, en sér erfiðleikana á því, og brennur í skinninu
eftir að komast heim, til að vinna landi sínu og þjóð. En nám
sitt stundar hann af hinu mesta kappi um sumarið. Þegar
liann svo loks fær að vita það 22. ágúst, að með honum sé mælt
til starfans, skrifar hann í dagbók sína: „Eg varð hálfskúffað-
ur, því mér liafði ekki dottið þetta í hug. Er í vandræðum,
livort ég á að taka þetta.“ Mun þar einnig hafa nokkru vald-
ið um að hann var innstilltur til 2. kennaraembættisins en
Halldór Briem til 1. kennara. Er jafnvel að sjá, að hann liafi
búizt við, að Briem yrði áfram 2. kennari.
í þessari frásögn er að öllu fylgt dagbók Stefáns sjálfs. En
Sigurður Guðmundsson hefur það eftir biirnum Stefáns, að
Ólafur Halldórsson, skrifstofustjóri, hafi fengið Stefán til að
sækja, sennilega eftir ósk að lieiman, og þá líklega frá Hjalta-
lín skólastjóra.* Ef hér er ekki um einhverja missögn að ræða,
þá liefur þáttur Ólafs gerzt fyrir áramót 1887, því að hvergi
er á hann minnst í oftnefndri dagbók. Og þegar Stefán leitar
til stjórnarskrifstofunnar í Höfn á hann viðræður við Jón Fin-
sen, sem þá var þar starfsmaður ásamt Ólafi, en Ólafs er hvergi
við getið.
Það kann að gegna nokkurri furðu, að Stefán skuli Iiverfa
frá hálfloknu námi, sent átti hug lians allan, og hann halði
þegar getið sér góðan orðstír við. Ekki var eftir feitu embætti
að slægjast. Annar kennari á Möðruvöllum var lægra launað-
ur en kennarar í Reykjavík, og var þó ekki liátt á þeim risið.
Stefán segir sjálfur á Alþingi 1909, er hann berst fyrir hækk-
un á launum 2. kennara við Gagnfræðaskólann á Akureyri:
„Ég veit af eigin reynslu, að laun þau, sem ætluð eru 2. kenn-
ara eru of lág, þau eru 1600 krónur. Ég hef haft þessi laun í
Skýrsla M. A., VI. árg., bls. 12.