Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Page 26

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Page 26
20 Hinn ungi kennari setur markið hátt, og liann vann ósleiti- lega að því að því yrði náð, unz hann að lokum átti drjúgan þátt í setningu fræðslulaganna 1907, og gekk þar gegn meiri hluta samflokksmanna sinna. Þótt augljóst sé, að straumhvörl' verða í sögu Möðruvalla- skóla, þegar eftir komu Stefáns þangað, var sarnt enn mikil barátta fyrir hendi. Haustið 1889 eru nemendur orðnir 27. Dregið hefur úr námskostnaði með stofnun matarfélags, sem gert var með ráðurn og atbeina Stefáns. Lítilsháttar náms- styrkur hefur fengizt úr landssjóði, vorið 1890 stofna nem- endur og kennarar Nemendasjóð Möðruvallaskóla. Átti Stef- án frumkvæði að því og ræddi það mál við nemendur, sem síðan samþykktu það á skólafundi. Af ýmsu má þannig sjá, að nýr andi er kominn í skólann, og hróður hins nýja kenn- ara berst frá rnanni til manns, hvar sem Möðruvellingar fara. En samt er vegið að skólanum úr ýmsum áttum. Þingvalla- fundur, sem haldinn var 1888, samþykkir áskorun til alþingis um að leggja Mciðruvallaskóla niðtir, og á Alþingi 1889 flyt- ur hinn mikli menntafrömuður, Páll Briem, frumvarp um að Hytja skólann til Reykjavíkur, og lá nærri að það yrði sam- þykkt. Nú linnir árásunum í bráð. En á Alþingi 1895 gerast þau furðulegu tíðindi, að skólastjórinn sjálfur, Jón A. Hjaltalín, gerist formælandi að stjórnarfrumvarpi um afnám Möðru- vallaskólans. Torvelt er að gera sér grein fyrir, hvað því hefur valdið. Skólinn er nú á stöðugri uppleið, og vinsældir hans aukast með hverju ári, sjálfur hefur Hjaltalín barizt fyrir til- veru hans árum saman og sér nú fyrst verulegan árangur þeirr- ar baráttu. Sennilegast er, að heimilishagir hafi valdið. Kona hans undi sér aldrei á Möðruvöllum og mun liafa átt þá ósk heitasta að komast þaðan. Sjálfur hefur hann vafalaust verið orðinn þreyttur, og ef til vill eygt möguleika á starfi í Reykja- vík. Þetta sama ár ritar Stefán athyglisverða grein um skólamál í Eimreiðina. Þar er fast kveðið að orði um gagnsemi Möðru- vallaskólans, en annars setur hann þar fram tillögur um að Latínuskólanum verði breytt í þriggja vetra ,,realdeild“ °g
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.