Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Page 57
51
Heyvinnufólk á Möðruvöllum um nldnmótin.
ystumaður og þreyttist aldrei á að hvetja bændur til umbóta
á því sviði. Einnig hóf hann framkvæmdir um bætta meðferð
mjólkur og lét gera bæði osta og smjör til sölu áður en rjóma-
bú sveitarinnar var stofnað. í stuttu máli sagt: búskapurinn
á Möðruvöllum var fyrirmyndarbú í hvívetna, og hefur vafa-
lítið haft nokkur áhrif út í frá. Voru þau hjón bæði mjög
samhent í búskapnum, en mjög féll bústjórn í hlut frú Stein-
unnar, þegar Stefán \'ar langdvölum að lieiman, í rannsóknar-
ferðum eða á þingi. Höfðu þau og lengi ágætan ráðsmann,
Þorstein Jónsson, sem síðar bjó lengi á Bakka í Öxnadal.
Kunni hann rnanna bezt bæði til verkstjórnar og fjárgeymslu.
Elmgengni öll var til fyrirmyndar, bæði utan liúss og inn-
an, enda þoldi Stefán engum manni hirðuleysi í þeinr efnum.
Sjálfur kunni hann vel til sveitavinnu og liafði hinar beztu
forsagnir á um verk, þegar liann var heima, annars mun hann
lítt liafa gengið til erfiðisvinnu, nema helzt við heyþurrk og
binding. Tók hann löngum sjálfur á móti heyi, og var lengi
síðar til þess vitnað, liversu vel hann bar upp hey, svo að fáir
4*