Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Side 99
93
annars vitnað í þessa ritgerð Stefáns. Með þessari ritgerð er
lagður fyrsti grundvöllurinn að íslenzkri gróðurlendafræði.
Síðari hluti þessarar ritgerðarinnar er flóra Vatnsdals. Þar
eru taldar 228 tegundir og getið útbreiðslu þeirra. Allmargar
þeirra eru slæðingar, og er hvarvetna tekið fram um það.
Nokkrar þessara tegunda hafa verið felldar niður í Flóru ís-
lands senr ranggreindar. Allar þessar tegundir, nema þrjár,
hafði Stefán sjálfur fundið Jrarna, svo að ekki verður annað
sagt en vel hafi verið að unnið þau sumur, er hann dvaldist
í Vatnsdalnum. Þetta er fyrsta íslenzka héraðsflóran, sem á
prenti birtist, og enn er hún í fremstu röð þeirra.
Aðrar ritgerðir.
Þegar hefur verið getið ritgerðanna tveggja frá ferðum Stef-
áns, För til Héðinsfjarðar og Hvanndala og Frá Möðruvöllum
„Heim að Hólum“. Eins og nöfnin bera með sér eru Jrær báð-
ar úr sama liéraði að kalla má. Önnur frá útsveitum en hin
úr afdölum Eyjafjarðar. í báðum greinununr, sem um margt
eru líkar er margan fróðleik að finna, og mikill skaði fyrir
síðari tímann, að Stefáni skyldi ekki auðnast að skrifa fleiri
slíkar lýsingar. Ekki sízt þar sem dagbækur lians frá ferðun-
um munu ýmsar vera glataðar eða ef til vill allar. Allmörg-
um árum seinna skrifaði hann stutta lýsingu á gróðri í ná-
grenni Sprengisandsvegar fyrir Daniel Bruun, og var hún
prentuð inni í ritgerð Bruuns um Sprengisand, og hefur því
farið framhjá mörgum. En Jrar er í stuttu máli lýst höfuðein-
kennum gróðurs á leiðinni frá Vatnahjalla suður um Laugar-
fell og umhverfis Arnarfell. Einkunr er góð lýsingin frá Arn-
arfellsbrekkunni og hinu þroskalega blómlendi þar. Lýsing
Stefáns af flánni í Eystri Pollum er fyrsta gróðurlýsing af flá,
sem birzt hefur á prenti. Sveinn Pálsson hafði að vísu lýst llá
í Ferðabók sinni, en hún var fáum kunnug í þann tíma.
Árið 1910 birti hann stuttorða lýsingu á Glámu, til leiðrétt-
ingar ummælum Þorvalds Tlioroddsens um jökul á Glámu.
I.ítið er þar gróðurfræðilegs efnis, en sennilega er þetta kafli
úr ferðalýsingu lians um Vestfirði.
Þá er vert að minnast alþýðlegrar fræðigreinar, sem Stefán