Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Síða 108
102
og Stefán tók það í Flóru. í 2. útg. Flóru býr liann þó til nafn-
ið flagahnoðri. En svo var ekki óalgengt að sama tegundin var
nefnd mörgum nöfnum. Þá valdi hann það nafnið sem hon-
um þótti falla hezt á plöntuna eða algengast var. Má ætíð um
slíkt deila, hversu vel hefur tekizt. En undantekningarlítið
liafa hæði nafngiftir og val nafna Stefáns tekizt vel og mjög
mörg með ágætum. Nöfnin fara vel í munni, eru íslenzk og
segja oft nokkuð um tegundina. Rétt hefði þó verið um marg-
nefndar plöntur, að færa til fleiri nöfn en gert er að jafnaði.
Stefán einnefndi allar plöntur undantekningarlaust og var það
rnikil framför. Flann leitaðist og af fremsta megni við að láta
ættkvíslaheitin vera síðari lið í tegundarnöfnum, og tekst hon-
um það yfirleitt mjög vel, til dæmis ættkvíslin sóley með öll-
um sínum sóleyjartegundum, hrennisóley, skriðsóley, jökla-
sóley, dvergsóley o. s. frv.
Þótt margt væri erfitt með plöntunöfnin voru þó fræði-
orðin að ýmsu leyti enn erfiðari viðureignar. Þar varð einn-
ig að reisa frá grunni. Þess er þó skylt að geta, að Oddur
Hjaltalín hafði í Grasafræði sinni samið fræðiorðakerfi, og
mörg þeirra orða fengið nokkra festu í íslenzku rnáli. Þannig
notar Páll Jónsson þau óbreytt að mestu í Ágripi sínu af nátt-
úrufræði, og sömuleiðis Bjarni Sæmundsson í barnaskólabók
sinni. En ekki var það fræðiorðakerfi gott allt um það. Stefán
segist í formála Flóru svo sem ekkert hafa getað notazt við
fræðiorð Hjaltalíns. Að vísu hefur hann þó getað notað nokk-
ur fræðiorð Odds óbreytt, og önnur hefur hann lagað til, en
vitanlega er langmestur hluti orðakerfisins nýsmíði, og það
svo vel gert, að naunrast verður um hætt. Sjást þess hezt merki
á því, að þær fáu breytingar, senr síðan hafa gerðar verið eru
fæstar til bóta, hvorki nrálfræðilega né grasafræðilega.
Ekki verður sagt, að nafngiftir og fræðiorðakerfi Flóru lrafi
komið í einu vetfangi fullskapað úr penna Stefáns eins og
Aþena úr höfði Seifs. Það átti sér langan aðdraganda og ald-
ur, verður það bezt séð á því að bera eldri ritgerðir hans sanr-
an við Flóru og Plönturnar. Hér er ekki unnt að gera því nráli
full skil, en þar senr ég hefi safnað allmiklu efni unr íslenzk
plöntunöfn og fræðiorð vonast ég eftir að geta gert þess nán-