Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 99
BALDUR J ÓNSSON
Nokkrar ævisögur ársins 1956
Ásgrímur Jónsson: MYNDIR OG MINNINGAR. Tómas
Guðmundsson færði í letur. — Almenna bókafélagið, 222 bls.
Benedikt Gíslason: PÁLL ÓLAFSSON SKÁLD, 7. Ætt
og ævi. — Leiftur, ÍUU bls.
Gunnar M. Magnúss: SKÁLDIÐ Á ÞRÖM, ævisaga Magn-
úsar Hj. Magnússonar. — Iðunn, 392 bls.
FORELDRAR MÍNIR. Endurminningar nokkurra íslend-
inga vestan hafs. Finnbogi Guðmundsson bjó til prentunwr.
— Bókaútg. Minning, 235 bls.
Valtýr Stefánsson: ÞAU GERÐU GARÐINN FRÆGAN.
Viðtöl við 3Jt þjóðkunna íslendinga. — Bókfellsútgáfan,
3i2 bls.
Vilhjálmur Finsen: ENN Á HEIMLEIÐ. — Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, 38Jt bls.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson: VIÐ SEM BYGGÐUM
ÞESSA BORG, I. Endurminningar níu Reykvíkinga. —
Setberg, 258 bls.
Þórbergur Þórðarson: STEINARNIR TALA. — Helga-
fell, 315 bls.
Myndir oq
qar.
SGRÍMUR JÓNSSON er einn af okkar elztu og kunnustu
listamönnum, og fáir njóta svo almennrar viðurkenningar
og virðingar landsmanna sem hann. Ungur gerðist hann einn
af brautryðjendum myndlistar á Islandi, og hefur hann langa
ævi verið hljóðlátur og hógvær þjónn þeirrar listar, sem hann
helgaði sig ungur. Það var vel til fundið af Almenna bókafélag-
inu að hafa forgöngu í því, að láta skrásetja og gefa út endur-
minningar Ásgríms. Ásgrímur valdi sjálfur Tómas Guðmunds-