Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 112
110
FELAGSBREF
Sums staðar er í þessari bók fjallað um afmörkuð efni, sem
höfundurinn hefur að öðru leyti krufið til mergjar í stærri rit-
verkum sínum, svo sem bók sinni um Njálu og Sturlungaöld.
Þá er hér meðal annars að finna ritgerðir um sagnaritarana
miklu, Ara fróða og Snorra Sturluson, rannsókn á heimildum
um lestrarkunnáttu íslendinga í fornöld, um dróttkvæðahátt og
rímur og enn eina um þjóðsög-
ur, sem höfundur hefur tekið við
miklu ástfóstri og ritað margt um
ýmsar greinar þeirra. Þá eru
þrjár ritgerðir um Jónas Hall-
grímsson, skáldskap hans og þýð-
ingar. Ritgerðir um erlent efni
reka lestina. Þar er ritað um at-
riði úr Hamlet Shakespeare’s, er-
indi um Goethe og H. C. Ander-
sen, og um Rask og skipti hans
við íslendinga.
Af því, sem nú var sagt, má
að vísu ljóst vera, að höfundur
hefur ekki haft bók í huga, er
hann samdi ritgerðir þessar.
Þær eru hver um sig barn síns
tíma og tækifæris, en allar sam-
an bera þær af þeim sökum enn skýrari vott um margvísleg
hugðárefni og alhliða þekkingu á þeim efnum, sem tekin eru
til meðferðar. íslenzkir höfundar og íslenzkar bókmenntir er
skoðað frá fleiri hliðum en verða mundi í bók, sem rituð væri
um samstæðari efni.
Á þetta ritgerðasafn má líta sem lykil að stærri og veiga-
meiri verkum höfundarins. Einnig fyrir þá sök er það girnilegt
til fróðleiks. Það eru kvíslar að meginstraumum.
Einar Ól. Sveinsson.