Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 117
FÉLAGSBREF
115
tveggja farandverkamanna, sem lifa á táldraumum sínum um
frið og öryggi, þegar þeir hafi safnað sér fyrir jarðarskika,
hvað þeim aldrei tekst.
Þessi stutta skáldsaga ásamt þeirri næstu, The Grwpes of
Wrath (Þrúgur reiðinnar í þýðingu Stefáns Bjarmans) er af
mörgum talin hátindurinn í skáldferli Steinbecks. Þrúgur reið-
innar er mikil skáldsaga og
safarík. Hún vakti óhemju
umtal, þegar hún kom út árið
1939. Hún var brennd og bönn-
uð, en umfram allt lesin. Hér
er aftur fjallað um þjóðfélags-
vandamál, en það er gert í ep-
isku formi, þannig að vanda-
málin og persónurnar fá algilda
merkingu. Sagan er hiklaust
eitt af öndvegisverkum banda-
rískra bókmennta.
Síðan má segja, að hallað
hafi undan fæti hjá Steinbeck.
Á stríðsárunum sendi hann frá
sér The Moon is Down (Mán-
inn Uður) um hernám Þjóð-
verja í Noregi, lélega bók. Síð-
an nokkrar fleiri, þeirra á meðal The Pearl (Perlan), sem er
misheppnuð mexíkönsk „þjóðsaga". East of Eden (Austan Edens)
er líklega bezta bók hans síðan fyrir stríð.
Og þá komum við að síðasta verki Steinbecks, The Short Reign
of Pippin IV. (Hundadagastjórn Pippins IV.), sem nú kem-
ur út í íslenzkri þýðingu hjá Almenna bókafélaginu. Bók-
in er eiginlega satíra eða ádeila í búningi skopsögu. Sag-
an gerist einhvern tíma á síðara helmingi þessarar ald-
ar, þegar Frakkar hafa loks sannreynt, að lýðræðisskipu-
lagið er úrelt og óhæft stjórnarfyrirkomulag. Leiðtogar flokk-
anna ákveða að taka konung, og fyrir valinu verður miðaldra
maður, sæmilega efnaður, sem hefur það áhugamál eitt að leita
John Steinbeck.