Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Qupperneq 12

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Qupperneq 12
KYNNING SVEITARFÉLAGA Flatey. Fremst á myndinni sést Grýluvogur og Silfurgarður, sem Guðmundur Scheving lét gera og greiddi verkamönnunum fyrir með silfri. Verzlunarhúsið sést á miðri mynd, en til vinstrí við það er stöpull undan vind- rafstöð og Vertshúsið. Ljósm. Páll Jónsson. 19. aldar, en þilskipaútgerð var síðan fóturinn undir atvinnulífi í eynni talsvert fram á 20. öld. Flatey var síðan verzlunarmiðstöð svæðisins alls allt til ársins 1911 og vesturhlutans fram yfir heimsstyrjöldina síðari. Kaupfélag var stofnað í Króksfjarðarnesi árið 1911 og að frumkvæði þeirra feðga Ólafs Eggertssonar og Jóns Ólafssonar og fleiri bænda. Þar var verzlunarmiðstöð austurhlutans allt til loka heimsstyrjaldarinnar síðari og meginhluta svæðisins upp frá því. Reykhólar, hið forna höfuðból, urðu læknissetur árið 1929 og prests- setur tveimur áratugum síðar. Þar var stofnsett tilraunastöð í jarðyrkju á árunum 1946-1947. Þetta er upphaf þéttbýlismyndunar á Reykhól- um, en hún tók fyrst fjörkipp með tilkomu þörungaverksmiðjunnar á árunum 1974-1976. Reykhólar eru nú eina þéttbýlissvæðið innan takmarka Reykhólahrepps hins nýja. Aldan frá Flatey Ekki er Ijóst, hvort þilskipaútgerðin í Flatey og þær efnahagslegu framfarir, sem henni fylgdu, eru meginorsök þeirrar menningaröldu, sem reis í eynni á fyrri hluta 19. aldar og hafði áhrif víða um land, eða að aðrir þættir hafi ráðið meira um þetta. Víst er, að lestrar- kunnátta var ekki meiri en í ná- grannabyggðarlögum, er Ludvig Harboe biskup kannaði það atriði laust fyrir miðja 18. öld. Nokkrum árum síðar sendi þó bóndinn í Svefn- eyjum, Ólafur Gunnlaugsson, þrjá syni sína til háskólanáms í Kaupmannahöfn, Eggert skáld, Magnús lögmann og Jón fornritafræðing. Einnig hefur dr. Lúðvík Kristjánsson ýjað að því, að Móðuharðindin kunni að hafa sáð fræjum menningar og félagshneigðar á svæðinu, a.m.k. í Gufudalshreppi, og væri sú skýring mjög í anda hins þekkta brezka sagnfræðings, sr. Arnolds Toynbees. Víst er á hinn bóginn, að bókleg og verkleg menning tók mjög að blómstra á svæðinu, eftir að þau hjón Ólafur Sivertsen prófastur og Jóhanna Friðrikka Eyjólfsdóttir fluttu til Flateyjar árið 1819. Sr. Eyjólfur, faðir Jóhönnu, kemur mjög við Sjöundármál, en móðir hennar var systurdóttir Eiríks Kúlds eldra kaupmanns í Flatey. Sjálfur var sr. Ólafur fæddur að Núpi í Haukadal í Dalasýslu, en fluttist með foreldrum sínum norður að Melum í Hrútafirði árið 1804, þá fjórtán ára gamall. Þau hjónin stofnuðu Ólafs Sigurðssonar og Jóhönnu Friðrikku Flateyjar framfaralegat árið 1833, en markmið þess var að stuðla að eflingu upplýsingar, siðgæðis og dugnaðar í Flat- eyjarhreppi. Meginstofn Framfaralegatsins var bókasafn, alls 100 bindi, fyrsta almennings- bókasafn á íslandi, en jafnframt verðlaunaði stofnunin árlega þá menn, sem sköruðu fram úr ,,í nytsamlegri þekkingu, siðgæði og dugnaði" innan sóknar. Síðar, eða árið 1852, bauð Ólafur prófastur ásamt ýmsum fyrirmönnum í Flat- eyjarhreppi og nágrannasveitarfélögum Gísla sagnritara Konráðssyni til Flateyjar, og skyldi hann eftirláta Framfaralegatinu öll handrit sín og bækur og það, sem hann kynni að rita eftir þetta, gegn því, að séð yrði fyrir honum og hans fólki upp frá því. Þetta varð að samningum. 6 SVEITARSTJÓRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.