Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Síða 17
KYNNING SVEITARFÉLAGA
Gamli Reykhólabærinn, sem Bjami
Þóröarson reisti á árunum 1873 - 1874.
Þar munu hafa veríð allt að fjörutíu
manns í heimili á stundum, og þótti
bærínn til fyrirmyndar um stærð og
rausn. Hann stóð fram yfir 1950.
,,Sex hundruð af sauðkindum
sett er á hjá karlinum
fimmtán gripir fjósi í
flestir munu trúa því
fimmtán hross með folöldum
og fimmtíu manns í húsunum.”
Hákon Magnússon, tengdasonur Bjarna, bjó
á Reykhólum 1899 til 1920. Vel hefur hann
haldið í horfinu með búskapinn, því árið 1919
segir Júlíus Sigurðsson:
,.Rœktaðir eru Reykhólar með rausn og prýði
ég segi fyrir seinni lýði
í sannkölluðu heimsins stríði.”
Árið 1920 verða eigendaskipti á Reykhólum.
Eggert Jónsson frá Nautabúi í Skagafirði kaupir
jörðina af börnum Bjarna Þórðarsonar. Kunn-
ugir sögðu mér, að hlunnindavísa Reykhóla
hefði heillað þennan mikla hugsjóna- og at-
hafnamann. Á Reykhólum sá hann fyrir sér
mikla möguleika fyrir alhliða stórbýli, en m.a.
vildi hann hefja hrossaræktina til vegs. Vegna
hrapandi verðlags í útgerð varð Eggert að láta
kaupin ganga til baka árið eftir. Ráðskona
Eggerts var Steinunn Hjálmarsdóttir, en hún
átti síðar eftir að koma við sögu Reykhóla. Hún
og seinni maður hennar, Tómas Sigurgeirsson,
fengu ábúð á hálflendu Reykhóla árið 1939 og
hafa haldið heimili og ábúð þar síðan, en hann
lézt á síðastliðnu ári.
Á árunum 1920 til 1939 hnignaði staðnum.
Kom þar margt til; afgjald jarðarinnar var mjög
hátt, tíð ábúendaskipti og krepputímar. Upp-
bygging varð þó á einu sviði. Árið 1929 var
læknisbústaður reistur. Var það fyrsta stein-
húsið á Reykhólum. Mannvirki frá eldri tíma
eru nánast engin. Enn er til brunnur, sem var
brunnhús, er heitir Runkahúsabrunnur. Austur-
garðabrunnur er nú horfinn. En einhvern af
Reykhólabrunnum vígði Guðmundur biskup
Arason.
,,Par vígði hann brunn, þann er þeir migu í
síðan til háðs við hann. En þó batnaði eigi að
síðr en áðr við þat vatn.”
Grettislaug hefur þó haldizt fram á þennan
dag, reyndar vatnslaus vegna jarðhitaborunar í
grennd, en mannvirki enn vel merkjanleg.
Gömul naust og uppsátur fyrir báta eru á nokkr-
um stöðum, m.a. í Hvalhausshólma, þar sem
Grettir og fóstbræðurnir Þormóður og Þorgeir
lentu með nautið. Hefur það væntanlega verið
notað í jólasteik þeirra Reykjahólamanna árið
1016. Góð heimaslátrun á þeim bæ. Það var í
þessari sjóferð, sem hin fleygu orð Grettis féllu:
,,Eigi skal skutrinn eftir liggja, ef allvel er róit
í fyrirrúminu. ”
Ríkissjóður kaupir Reykhóla
Hinn 13. maí 1939 verða mikil kaflaskipti í
sögu Reykhóla. Þá kaupir ríkissjóður íslands
jarðirnar Reykhóla ásamt Börmum og Stagley í
Flateyjarhreppi með öllum húsum og mann-
virkjum, svo og landréttindum öllum, sem
eignunum fylgja, ásamt kúgildum, er voru 144
ær, allt fyrir 46.000 kr.
Meðal heimamanna var mikill áhugi fyrir
SVEITARSTJÓRNARMÁL 11