Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Page 39
HÚSNÆÐISMÁL
Dvalarheimilið Sólvellir á Eyrarbakka.
er tveggja hæða steinsteypt hús,
byggt árið 1946. Á efri hæðinni var
íbúð læknisins og síðar hjúkrunar-
fræðings, en á neðri hæð lækna-
móttaka. Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið gerði það að skil-
yrði, að húsnæðismál hjúkrunar-
fræðings yrðu leyst, áður en það
gæfi út leyfi til þess að breyta húsinu
og jafnframt, að læknamóttökunni
yrði fundinn framtíðarstaður. Hvort
tveggja leystist farsællega, og var ný
læknamóttaka eða heilsugæzlustöð
tekin í notkun á síðastliðnu sumri.
Læknar koma þrisvar í viku frá Sel-
fossi, og hjúkrunarfræðingur er
starfandi við stöðina. Sinnir hann
heimaþjónustu við aldraða og ung-
barnaeftirliti á Eyrarbakka og á
Stokkseyri og er læknunum til
aðstoðar, þegar þeir hafa viðtals-
tíma.
Þegar á árinu 1986 var hafizt
handa við endurbætur á gamla hér-
aðslæknisbústaðnum, og var húsið
klætt og einangrað að utan, byggð-
ur við það garðskáli, og innandyra
voru reistir nýir milliveggir o. fl. Að
öðru leyti heldur húsið nokkurn veg-
inn upprunalegri gerð sinni. Kostn-
aður við breytingar og lagfæringar,
heimilistæki og þess háttar var áætl-
aður í október á verðlagi þá um 5
milljónir króna, og voru þær fjár-
magnaðar nær eingöngu með gjafa-
fé og vinnuframlögum og framlögum
úr framkvæmdasjóði aldraðra.
Framkvæmdum lauk síðan í október
sl., og hinn 1. nóvember 1987 var
dvalarheimilið svo vígt við hátíðlega
athöfn að viðstöddu miklu fjölmenni.
Á dvalarheimilinu, sem ber nafnið
Sólvellir, er rými fyrir 11 vistmenn í
þremur tveggja manna og fimm eins
manns herbergjum, og eru vistmenn
þegar orðnir 9. Starfsmenn eru sex,
þar af tveir í hálfu starfi. Dvalarheimil-
iö er rekið sem sjálfseignarstofnun.
Dvalarheimilið Sólvellir bætir úr
brýnni þörf á þjónustu við aldraða í
sveitarfélaginu, en fram að þessu
hafa þeir, sem þurft hafa á dvalar-
heimilisvist að halda, að leita út fyrir
byggðarlagið eftir slíku.
Þá hefur það ekki síður gildi, að
þessu heimili var komið. á fót fyrir
frumkvæði, atorku og samstöðu
íbúanna í sveitarfélaginu. Það er
hætt við því, að ef beðið hefði verið
eftir því, að fjárvana hreppssjóður
réðist í framkvæmdir sem þessar.
hefði biðin orðið löng.
Sigríður Gunnarsdóttir i herbergi sínu á Sólvöllum. Magnús Karel Hannesson, oddviti,
tók myndimar með greininni.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 33