Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Qupperneq 67
FJÁRMÁL
Enn batnar árangur
Innheimtustofnunar
Innheimtustofnun sveitarfélaga innheimti á
árinu 1987 476 milljónir króna í bamsmeðlög-
um, og hækkaði sú fjárhæð um 41 % frá árinu á
undan, er innheimtan nam 337,5 millj. króna.
Innheimtan svarar til 8444 meðlaga eða 709
fleiri en árið á undan, er innheimtan svaraði til
7735 ársmeðlaga. Hvert meðlag hækkaði um
29,2% milli áranna. Árangurinn í innheimtunni
er því mun betri en árið á undan og batinn meiri
en svarar til verðlagsbreytinga. Kemur það
sveitarsjóðunum til góða í hærra framlagi úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, því sjóðurinn greiðir
Tryggingastofnun ríkisins þá fjárhæð, sem ekki
tekst að innheimta af bamsmeðlögum.
Árangurinn á sér m.a. rætur í því, að sögn
Áma Guðjónssonar, forstjóra Innheimtustofn-
unarinnar, að nú hefur skilað sér ávinningurinn
af tölvuvæðingu stofnunarinnar í ársbyrjun
1986 og að árið 1987 varfyrsta heila árið, sem
dráttarvextir voru reiknaðir af vangreiddum
meðlögum, en þeir voru teknir upp 1. júlí 1986.
„Annars hefur innheimtan ávallt farið batnandi
frá ári til árs, og vona ég eindregið, að svo verði
áfram og að sífellt meira skili sér af meðlögun-
um.“ Sem dæmi um umsvif Innheimtustofnunar
nefnd Ámi, að til jafnaðar innheimtust 1,9 millj.
króna á dag og 39,7 millj. kr. á mánuði.
Gjald fyrir gerlarannsóknir
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
heíur hinn 31. desember sl. sett gjaldskrá
fyrir veitta þjónustu á rannsóknarstofu
Hollustuvemdar ríkisins. Samkvæmt henni
ber að greiða 600 krónur fyrir hvert sýni,
sem rannsakað er vegna geriarannsókna
fyrir heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. Gjald
þetta, sem gildir frá byrjun þessa árs, hafði
verið 500 krónur frá ársbyrjun 1985.
Gjaldheimta tekin til starfa á
Suðurnesjum
Gjaldheimta Suðumesja var stofnuð 2. des-
ember sl. sem sameignarfyrirtæki ríkissjóðs og
sjö sveitarfélaganna á Suðumesjum, eins og
sagt var frá í síðasta tölublaði. Hún tók til starfa
21. janúar og er til húsa að Grundarvegi 23 í
Njarðvík, í sama húsi og Sparisjóðurinn í
Njarðvík. Fyrst um sinn er afgreiðslan opin frá
kl. 9.15 til 12.00 og milli kl. 13 og 16 alla virka
daga. Símanúmer þar er 92-15055.
Til að byrja með sér Gjaldheimta Suðumesja
aðeins um móttöku og innheimtu á stað-
greiðslu opinberra gjalda samkvæmt lögum nr.
45/1987, en mun einnig innheimta fasteigna-
gjöld fyrir þau sveitarfélög, sem þess óska.
Einnig er heimilt að fela gjaldheimtunni inn-
heimtu annarra gjalda samkvæmt nánara sam-
komulagi við stjórn hennar.
Gjaldheimtustjóri hefur verið ráðinn Ásgeir
Jónsson, lögfræðingur. Hann er fæddur í
Njarðvík 21. janúar 1959, sonur hjónanna Sig-
rúnar Helgadóttur og Jóns Ásgeirssonar, sem
var sveitarstjóri í Njarðvík frá 1955 til 1974 eða
í 19 ár. Ásgeir lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1978 og embættis-
prófi frá lagadeild Háskóla Islands vorið 1986.
Samhliða laganámi og að því loknu hefur hann
starfað á tveim málflutningsstofum í Reykja-
vík. Ásgeir hefur tekið þátt í félagsmálum og
m.a átt sæti í stúdentaráði H.l. og í háskólaráði
og í stjóm Háskólabíós.
öllum landshlutum, þar sem fyrirkomulag gjald-
heimtu í staðgreiðslu hefur ekki þegar verið
ákveðið eða stofnuð sameiginleg gjaldheimta
ríkis og sveitarfélaga, eins og á Suðurnesjum
og ÍVestmannaeyjum. Hafa landshlutasamtök-
in sett á stofn sérstakar nefndir til þess að vinna
að málinu í anda þeirra hugmynda um skiptingu
landsins í gjaldheimtuumdæmi, sem lýst var í 5.
tbl. siðasta árgangs.
BÆKUR OG RIT
Hefur byggðastefnan brugðizt?
Byggðastofnun og sambandið hafa í
samstarfi gefið út rit með framsöguerind-
um þeim, sem flutt voru á ráðstefnunni,
sem haldin var á Selfossi 13. og 14. nóvem-
ber með yfirskriftinni: Hefur byggðastefnan
brugðizt? Bókin er númer 10 í flokki
fræðslurita sambandsins.
HEFUR
BYGGÐASTEFNAN
BRUGÐIZT?
Vramjógue'índi flutt á ráftstofnu sem haldin var
i félagsheimilmu ArsOlurn á Sdfossi
13.-1A. nove.-nber 1987
Gjaldheimta í
Vestmannaeyjum
Samkomulag er orðið milli fjármálaráðuneyt-
isins og Vestmannaeyjabæjar um stofnun
gjaldheimtu í samrekstri rikisins og bæjarins.
Verið er að breyta svokölluðu HB-húsi í stjóm-
sýsluhús, og tekur gjaldheimtan til starfa þar,
þegar húsnæðið verður tilbúið, að því er Am-
aldur Bjamason, bæjarstjóri, skýrði Sveitar-
stjómarmálum frá í samtali.
Gjaldheimtur í undirbúningi í
öllum landshlutum
Verið er að undirbúa stofnun gjaldheimta í
w
Samband islenzkra sveitarlélagB
[ bókinni eru 12 framsöguerindi og að
auki fjögur erindi um markmið nýrrar
byggðastefnu, sem flutt voru að loknum
hinum eiginlegu framsöguerindum. Að auki
eru birtar nokkrar ræður, sem aðrir þátttak-
endur fluttu.
Bókin er 10 arkir að stærð eða 160 blað-
síður. Hún fæst bæði hjá Byggðastofnun
og á skrifstofu sambandsins og kostar 400
krónur hvert eintak.
SVEITARSTUÓRNARMÁL 61