Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Qupperneq 10
KYNNING SVEITARFÉLAGA
Lýður Björnsson, sagnfræðingur:
Reykhólahreppur
hinnnýi
Á síöastliönu ári sameinuðust allir hrepparnir
í Austur-Barðastrandarsýslu í eitt sveitarfélag.
Hinn nýi hreppur, Reykhólahreppur hinn nýi,
nær yfir svæðið milli Brekkuár í Gilsfirði og
Skiptiár í Kjálkafirði og Flateyjarhrepp á
Breiðafirði (Vestureyjar). Allt þetta svæði
hefur um langan aldur verið innan takmarka
Barðastrandarsýslu (áður Þorskafjarðarþings),
enda er það alrangt, sem nýlega hefur komizt á
prent í annars ágætu fræðiriti, að Flat-
eyjarhreppur hafi einhvern tímann verið hluti
Snæfellsnessýslu.
Hrepparnir fomu
Austur-Barðastrandarsýsla varð sérstakt
sýslufélag hinn 2. desember árið 1887, en hafði
verið sérstakt sýslumannsumdæmi á árunum um
1620-1718. Fimm hreppar voru á svæðinu um
1700, Geiradalshreppur, Króksfjarðarhreppur,
Gufudalshreppur, Skálmarnesmúlahreppur og
Eyjahreppur. Líkur benda til, að þeir hafi verið
færri í öndverðu, e.t.v. aðeins þrír. íbúar Geira-
dalshrepps sóttu þing í Berufirði í
Króksfjarðarhreppi (Reykhólahreppi eldra) allt
til ársins 1882. Þetta ásamt nafninu
Króksfjarðarhreppur bendir til þess, að Geira-
dalshreppur og Reykhólahreppur eldri hafi
verið eitt sveitarfélag framan af öldum. Einnig
voru sérkennileg tengsl milli austurhluta Múla-
hrepps (Skálmarnesmúlahrepps) og Gufu-
dalshrepps og Flateyjarhrepps (Eyjahrepps) og
Múlahrepps vestan Kvígindisfjarðar. Þau gætu
bent til þess, að þarna hefðu orðið breytingar á
hreppaskipan á fyrri öldum og jafnvel verið
stofnaður nýr hreppur.
Matarkistan
Austur-Barðastrandarsýsla veit mót sól og er
víða varin gegn versta norðannæðingnum af all-
háum og bröttum fjöllum. Loftslag þar er því
hagkvæmt fyrir landbúnað, en á móti vegur, að
undirlendi er yfirleitt lítið, og fjallskriður ganga
víða allt í sjó fram. Helztu undantekningar frá
þessu eru dalir inn af fjarðarbotnum og veruleg-
ur hluti Geiradalshrepps og Reykhólahrepps
eldra. Vestureyjar liggja úti fyrir ströndinni
með öllum sínum hlunnindum, fugli, hrognkels-
um og sel og að ógleymdu útræðinu, en tvær
miklar verstöðvar voru um aldir innan takmarka
Hreppaskipan ■ i Austur-Barðastrandarsýslu fyrir sameining-
una árið 1987. Uppdráttinn gerði Margrét Rafnsdóttir í
Byggðastofnun fyrir Sveitarstjómamiál.
4 SVEITARSTJÓRNARMÁL