Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 42

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 42
ÝMISLEGT Gjaldið varhuga við erlendum viðskiptavígorðum og vörumerkjum Dómsmálaráöherra, Jón Sigurðs- son, hefur ritaö borgarráöi Reykja- víkur bréf og óskaö liðsinnis þess til þess aö íslenzk tunga veröi eigi und- ir í höfuðborg landsins fyrir vöru- merkjum og viðskiptavígorðum á erlendum tungumálum. Jafnframt hefur ráðherrann farið þess á leit við samþandið, að það beini því til annarra sveitarstjórna, að þær íhugi, hvað unnt sé að gera til þess að sporna gegn því, að erlend vörumerki og viðskiptavígorð ein- kenni byggðir landsins. Ráðherrann hefur beint því til skrásetjara fyrir- tækja, að þeir geri það, sem í þeirra valdi stendur, til þess að lagaákvæði um þetta efni verði eigi brotin. ,,Til viðbótar leyfi ég mér“, segir í bréfi ráðherra til sambandsins, ,,að hreyfa þeirri hugmynd, að bygging- aryfirvöld beiti ákvæðum byggingar- reglugerðar þannig, að ekki sé leyfð uppsetning auglýsingaskilta á er- lendum málum utanhúss á fyrirtækj- um, nema hinu íslenzka heiti fyrir- tækis, vöru eða þjónustu, sem á boðstólum er, sé gert jafnhátt undir höfði." Loks segir í bréfi dómsmálaráð- herra til sambandsins: „Alþekkt er áminningin, sem Stef- án Gunnlaugsson, bæjarfógeti, lét lögregluþjóna kalla upp með bumþuslætti á götum Reykjavíkur í febrúarmánuði 1848: „(slenzktunga á bezt við í íslenzkum kaupstað, hvað allir athugi." Þessi áminning á enn við um allar byggðir landsins, og von mín er, að við getum sameinazt um að hlýða henni." Á fundi hinn 18. desember sam- þykkti stjórn sambandsins að taka undir þessi tilmæli dómsmálaráð- herra og að koma erindinu á fram- færi við sveitarstjómir. UMFERÐARMÁL Umferðarnefnd lögboðin fráf.marz Frá 1. marz í ár er sveitarfélögum í kaupstöðum og kauptúnahreppum skylt að skipa umferðarnefnd, en ekki aðeins heimilt, eins og fyrir gild- istöku nýju umferðariaganna 1. marz. f öðrum sveitarfélögum er það á valdi hreppsnefndar, hvort hún kýs sérstaka umferðarnefnd. (116. gr. laganna segir, að umferðarnefnd geti verið sameiginleg fyrir fleiri en eitt sveitarfélag. I sömu grein segir einn- ig, að sveitarstjórnum beri að fræða almenning um umferðarmál, eftir því sem staðhættir gefa efni til, svo og þær sérreglur, sem gilda á hverjum stað. í sömu lagagrein er gert ráð fyrir, að sveitarstjórn setji nánari regl- ur um skipun og starfssvið umferð- arnefnda. Á skrifstofu sambandsins og hjá Umferðarráði er fáanleg fyrir- mynd að slíkri samþykkt. Þjóðarátak í umferðaröryggi I tilefni af gildistöku nýrra umferð- arlaga samþykkti Alþingi hinn 18. marz 1987 þingsályktun um þjóðar- átak í umferðaröryggi. Umferðarráð, bifreiðatryggingafélögin og þingkjör- in nefnd, þjóðarátaksnefnd, beita sér sameiginlega fyrir því, að lands- menn noti þetta tilefni til þess að auka öryggi í umferðinni. Má gera ráð fyrir, að umferðarnefnd hvers þéttbýlissveitarfélags komi saman til fundar á þessum tímamótum og aðgæti sérstaklega, hvort unnt sé með einhverjum hætti að bæta öryggi vegfarenda, t.d. að því er snertir umferðarmerki eða aðrar aðstæður s.s. í nágrenni skóla eða dvalarheimili aldraðra. Sveitarfélögin láta ekki sitt eftir liggja í því þjóðar- átaki, sem nú verður stofnað til. Sarnafi! VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI Á ÞÖK - Á ÞAKSVALIR ÁBYRGÐ Á EFNI OG VINNU - varanleg lausn UNNIÐ ALLT ÁRIÐ - SUMAR SEM VETUR FAGTÚN HF. BRAUTARHOLTI8, REYKJAVIK, S'lMI 621370 36 SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.