Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Síða 18

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Síða 18
KYNNING SVEITARFÉLAGA þessum jaröakaupum. Margir höfðu látið sig dreyma um stórfelldar framfarir í atvinnu- og menningarmálum fyrir byggðarlagið. Menn höfðu ekki gleymt áhuga Eggerts á Nautabúi og trú hans á framtíðarmöguleika á þessu forna höfuðbóli. Á Reykhólum þótti sjálfsagt að koma upp héraðsmiðstöð í atvinnu- og menningarmál- um. Brátt er hafizt handa, og þann 31. okt. 1939 fyrirskipar þáverandi forsætisráðherra Bún- aðarfélagi Islands að framkvæma mælingar á jörðinni og skoðun á öðru því landi, er kaupun- um fylgdi. Heimaland er talið 580 ha, tún 8,4 ha. Túnið er slétt, fremur grasgefið, en gamal- ræktað. Nýbýlið Grund hefur 2,3 ha ræktað tún. Engjar og ræktanlegt land er 242,7 ha. Barma- hlíðin er hið ágætasta beitiland. ,,Hlídin mín fríða, hjalla meður grœna” er skógi vaxin, en skógurinn verður fyrir ágangi búfjár, og má telja hina mestu nauðsyn að friða hann, segir í þessari álitsgjörð Bún- aðarfélags íslands. Hvannahlíðar í Þorskafirði tilheyra Reykhólum. Landi þessu fylgir veiði- réttur fyrir landinu í Þorskafjarðará. í eyjunum eru slægjur nokkrar, en alveg sérstaklega góð hagaganga bæði fyrir sauðfé og hross. Væntan- lega mætti hafa 300 til 400 hesta heyskap úr eyj- unum. Jarðhitasvæðið er í næsta umhverfi túns- ins. Vatn sýður í 5 hverum, en laugar 40—80°C eru á nokkrum öðrum stöðum. í lok þessarar skoðunargerðar eru eftirfarandi tillögur lagðar fram og hafa verið stefnu- markandi fyrir síðari ákvarðanir með jörðina: ,,að jörðin verði ekki leigð til erfðaábúðar, að Grund fái nýbýlaréttindi með 50 ha, Grettislaug á Reykhólum, kennd við Gretti Ásmundarson. sem þar gekk til baða, er hann dvaldist á Reykhólum. að tekið verði frá land, 2—3 ha, fyrir heima- vistarbarnaskóla, að ríkið fái ráðstöfunarrétt yfir jarðhitasvœði læknisbústaðarins, að Hvannahlíðar verði leigðar sérstaklega, að ábúð á aðaljörðinni verði skilyrt m.t.t. framtíðarnota jarðarinnar, svo sem stofnunar tilraunastöðvar, fleiri nýbýla og hagnýtingar hveraorkunnar, að hverasvæðið allt sé undan ábúðinni skilið, nema til heimilisnota, að ríkið byggi upp á jörðinni hús við hæfi þess búrekstrar, er núverandi bændur hafa á Reykhólum, að afgjald sé 3% af fasteignamati jarðar og mannvirkja, að jörðin verði byggð tveim bœndum, en öðrum til lífstíðar. ” Tillögugerð þessi er dagsett 5. febrúar 1942. í byggingarbréfi Tómasar Sigurgeirssonar, sem dagsett er 6. júní 1943, er flestallt staðfest, sem hér er lagt til. Afgjald 1942— 1943 var kr. 822 af hálflendunni. Framtíðarnot jarðarinnar Alþingi ákvað með ályktun 12. apríl 1943 að skipa nefnd til þess að semja tillögur um framtíðarafnot jarðarinnar Reykhóla sem skóla- seturs og tilraunastöðvar fyrir Vesturland. Formaður hennar var Gísli Jónsson, þingmaður Barðstrendinga. Aðrir nefndarmenn voru Pálmi Einarsson, landnámsstjóri, frá Búnaðarfélagi íslands; Júlíus Björnsson í Garpsdal, frá sýslunefnd Austur-Barðastrandarsýslu; Aðal- 12 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.