Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Page 19

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Page 19
KYNNING SVEITARFÉLAGA steinn Eiríksson, skólastjóri í Reykjanesi, fyrir hreppsnefnd Reykhólahrepps, og Jóhann Jónas- son frá Öxney, frá Breiðfirðingafélaginu í Reykjavík. Allir höfðu þeir sýnt áhuga fyrir málefninu. Nefndin kynnti sér öll gögn, er fram höfðu komið á Alþingi, á Búnaðarþingi, í héraði og annars staðar. Hún samdi frumvarp til laga um skólasetur og tilraunastöð í jarðrækt á Reykhól- um (þingskjal nr. 359/1944). Skólasetrið var ekki samþykkt, en lög voru sett um tilraunastöð í jarðrækt á Reykhólum (1. nr. 57/1944), enda byggðust þau á eldri lögum nr. 64/1940. Tilraunastöðin eignaðist endurgjalds- og kvaðalaust 165 ha úr austanverðri landar- eigninni, nauðsynleg hitaréttindi við Kötlulaug og þrjár eyjar, Hrútey og Skarðseyjar, ef þyrfti vegna tilrauna. Tilraunastöðin var byggð árið 1946. Búfjárrækt varð snar þáttur í starfsemi hennar. 300 kinda fjárhús voru byggð árið 1955. Landið er framræst. Fullræktað land er nú yfir 30 ha, og sauðféð er 330. Árið 1944 var heyfengur á Reykhólum 554 teningsmetrar, en búfé á fóðrum 446. Árið 1945 var rýmt til og öðrum Reykhólabóndanum, Skúla Júlíussyni, byggt út. Landnám ríkisins hófst handa Með bréfi 10. febrúar 1950 fól dóms- og kirkjumálaráðuneytið nýbýlastjórn ríkisins m.a. þetta: ,, Ráðuneytið vill hér með fela nýbýlastjórn ríkisins umráð yfir landi ríkisjarðarinnar Reykhóla í Reykhólahreppi að undanskildu því landi, sem varanlega hefur verið ákveðið eða fyrirhugað er, að ráðstafað verði á annan hátt til opinberra framkvœmda, s.s. til embættismannabústaða, skóla o. fl. skv. skipulagi staðarins. Umráð nýbýlastjórnar yfir framangreindu landi Reykhólajarðar gilda, meðan framkvœmdir standa yfir við undirbúning og hagnýtingu lands og jarðhita til búreksturs og stofnunar býla í landi Reyk- hólajarðar. ” Með þessu er skipt umráðum yfir Reykhólum. Stóð svo um áratugi og stundum til óþæginda. Jarðeignadeildin réð yfir leifum býlisins. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið réð yfir „Skipulaginu”, en landnámsstjóri yfir „Landnáminu” og ennfremur öllu sjávar- og eyjagagni Reykhóla. Skipulagsnefnd Reykhóla og nýbýlastjórn héldu sameiginlegan fund á Reykhólum 11. júlí I Tilraunastöðinni enj gerðar búveðurathuganir fyrir Veður- stofu Islands. Hér athugar Ingi Garðar Sigurðsson, tilraunastjóri, jarðvegshitann. Ljósm. Jónas Jónsson, bún- aðamnálastjóri. Ingl Garðar Sigurðsson, tilraunastjóri, ber á einn af til- raunareitunum. Ljósm. Jón Steingrímsson. Á undanfömum árum hefur verið ræktaður upp alhvítur, ull- armikill og afurðasamur fjárstofn í Tilraunastöðinni. Ljósm. Jón Steingrimsson. SVEITARSTJÓRNARMÁL 13

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.