Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 21
KYNNING SVEITARFÉLAGA Frá jólaskemmtun í Reykhólaskóla. Ljósm. Steinunn Ó. Rasmus, skólastjóri. áfanga voru heimavistir, íbúðir og mötuneyti, 285 fermetrar á þremur hæðum. Aðalkennslu- álman var byggð tæpum áratugi síðar. Að þessum framkvæmdum stóðu allir hreppar Austur- Barðastrandarsýslu nema Múlahreppur. Fram- kvæmdir þessar hvíldu á skólastjóranum, en mest þó á þáverandi oddvitum, Inga Garðari Sigurðs- syni, tilraunastjóra, sem var oddviti 1966—1978, og á Vilhjálmi Sigurðssyni, sem var oddviti 1978—1986. Eins og fyrr er greint frá, sinnti löggjafinn lítið skólamálum héraðsins fram undir 1970. Þrátt fyrir það létu heimamenn ekki deigan síga. Strax upp úr 1950 var hafinn rekstur ungl- ingaskóla, sem stóð fram til 1969. Allir embættismenn staðarins með aðstoð annarra heimamanna tóku sig saman og greiddu úr öllum vandamálum, því lítill opinber styrkur fékkst. Skólinn var rekinn á faglegri og fjárhagslegri ábyrgð Sigurðar Elíassonar, tilraunastjóra, og síðar sr. Þórarins Þórs, en með einhverjum ríkisstyrk. Skólinn var fyrst til húsa í Til- raunastöðinni, en síðar á heimili sóknarprests- ins. Nemendafjöldinn náði tveimur tugum, þegar flest var. Nú eru í Reykhólaskóla 57 nemendur, þar af 7 í skólaseli í Króksfjarðarnesi. Nýtingjarðhitans Margir hverir og mismunandi heitar upp- sprettur eru kringum hólana á Reykhólum, og ber staðurinn því nafn með rentu. Flestar eiga laugarnar sitt nafn, og er áður getið um Grettis- laug. Frá þeim féllu áður volgir lækir til sjávar, og í einum þeirra er lítill hver, kallaður Fríður, þar sem ungir og gamlir suðu sér egg á vorin. Þegar læknisbústaðurinn var reistur á Reyk- hólum á árinu 1929, var lögð í húsið hitaveita, og frá þeim tíma voru öll hús á staðnum hituð upp með hveravatni, sem hver húsbyggjandi sótti í næsta hver. Á árinu 1947 byggði Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga sundlaug á Reykhólum, sem þá þótti veglegt mannvirki. Laugin er 25 x 8 metrar að stærð, og í henni hefur sund verið kennt síðan. Á sumrum er hún opin um miðjan dag og á kvöldin heimafólki og ferðamönnum til afnota. Þegar núverandi skólahús var reist á árinu 1970 var lagður í það hiti úr borholu, sem boruð var á vegum hreppsins. íbúðarhús á staðnum voru síðan tengd við þessa lögn, og var þetta upphaf sameiginlegrar hitaveitu. Býlin í hreppn- um hafa einnig verið tengd hitaveitunni, fyrst Miðhús, árið 1982, síðan Grund, á árinu 1985 og loks Mávatún, sem fékk hita frá samveitunni sl. haust. Tilraunastöðin hefur sína eigin borholu svo og Þörungaverksmiðjan hf. Að öðru leyti eru öll hús á staðnum tengd hitaveitu, sem er eign hreppsins, en með sjálfstæðu reikn- ingshaldi. Oddviti hreppsins hefur jafnframt verið hitaveitustjóri. Pörungaverksmiðjan í Karlsey Með lögum nr. 107/1972 var heimilað að hefja undirbúning þörungavinnslu og verksmiðju- byggingar að Reykhólum. Margvíslegar rann- sóknir höfðu staðið yfir sl. tvo áratugi meðal áhugamanna, en einkum hafði þó Sigurður V. Hallsson, efnaverkfræðingur, þær með höndum. Með samþykkt þessara laga komst fyrst fullur sveitarstjórnarmAl 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.