Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Page 34

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Page 34
STJÓRNSÝSLA Hallgrímur Guðmundsson, sveitarstjóri Haíharhrepps: Héraðsnefnd í Austur- Skaftafellssýslu Héraðsnefnd tók til starfa í Aust- ur-Skaftafellssýslu um síðastliðin áramót. Héraðsnefndin er stofnuð samkvæmt ákvæðum sveitarstjórn- arlaga nr. 8 frá 1986 og tekur við verkefnum eldri sýslunefndar, eftir því sem við á. Að héraðsnefndinni standa öll sveitarfélög Austur- Skaftafellssýslu, og munu þau eftir sem áður mynda eitt þjónustusvæði innan Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Sex hreppar ( Austur-Skaftafellssýslu eru sex hreppar. Þeir eru: íbúafjöldi 1. des. 1986 Bæjarhreppur 65 Nesjahreppur 295 Hafnarhreppur 1520 Mýrahreppur 86 Borgarhafnarhreppur 136 Hofshreppur 112 Alis: 2214 Héraðsnefndin er stofnuð með samþykkt á sameiginlegum fundi sveitarstjórna í Austur-Skaftafells- sýslu, sem haldinn var 11. desem- ber sl., svo og með sérstakri sam- þykkt hverrar sveitarstjórnar. Samstarf sveitarstjórna í Austur- Skaftafellssýslu hefur verið mjög náið og farið vaxandi undanfarin ár. Eldri sýslunefnd Austur-Skaftafells- sýslu hefur unnið ötullega á ýmsum sviðum, en auk hennar hafa sveitar- félögin haft um árabil samstarf sín í milli um lausn einstakra rekstrar- þátta, þ.e. byggðasamlög, sem nú eru nánar skilgreind í nýjum sveitar- stjórnarlögum. Horfið var frá þessu fyrirkomulagi fyrir allnokkru, og var jáá mynduð sameiginleg rekstrar- stjórn fyrir alla rekstrarþætti, en hún var yfirleitt skipuð oddvitum sveitarfélaganna. Auk stjórnar sam- eiginlegs rekstrar starfaði að sjálf- sögðu sýslunefnd, eins og lög gerðu ráð fyrir. Setning sveitarstjómarlag- anna nr. 8/1986 skapaði sveitar- stjómunum svigrúm til að sam- eina starf sýslunefndar og stjórn sameiginlegs rekstrar og einfalda þannig enn frekar sameiginlegt stjómarform sveitarfélaganna. Verkefni héraðsnefndar Héraðsnefndin mun taka við öll- um hefðbundnum verkefnum eldri sýslunefndar, sem ekki eru falin öðr- um með lögum. Má þar nefna t.d.: sýsluskjalasafn, byggðasafn, elli- og hjúkrunarheimilið Skjól- garð (sjálfseignarstofnun), útgáfu Skaftfellings. Jafnframt tekur héraðsnefndin við öllum rekstrarþáttum sameiginlegs rekstrar sveitarfélaganna, sem nú eru helztir: Brunavarnafélag Austur- Skaftafellssýslu, Byggingarfulltrúi Austur- Skaftafellssýslu, Heilbrigðisfulltrúi Austur- Skaftafellssýslu, Tónskóli Austur- Skaftafells sýslu, Heilsugæzlustöð og rekstur sjúkrabifreiðar. Sveitarfélögin skipa einn fulitrúa til setu í héraðsnefnd nema Hafnar- hreppur, sem skipar tvo. Fram- kvæmdastjóri héraðsnefndarinnar er sveitarstjóri Hafnarhrepps, nema nefndin samhljóða ákveði annað. Virk stjórnskipun ( samstarfssamningi sveitarfélag- anna er lögð áherzla á einfalda og virka stjómskipun, og er héraðs- nefndinni ætlað að koma saman a.m.k. ársfjórðungslega. Fyrir þá fundi skal leggja bráðabirgðareikn- ingsstöðu frá áramótum til næstlið- inna mánaðamóta. Héraðsnefnd kýs úr sínum hópi í sérstakt fram- kvæmdaráð, sem er hliðstætt byggðarráðum, og getur það tekið fullnaðarákvörðun fyrir hönd héraðs- nefndar í ýmsum tilvikum. Jafnframt koma allir kjörnir fulltrúar í sveitar- stjórn sýslunnar árlega saman til fundar. Fyrir þá fundi skal m.a. leggja ársreikninga til úrskurðar. Hér að neðan er gerð grein fyrir meginuppbyggingu stjórnkerfis hér- aðsnefndar sýslunnar. Það er kunn- uglegt, en í sérstökum viðauka stofnsamnings eru ákvæði um stefnumótandi vettvang, svokölluð ráð, þar sem leitazt skal við að sam- ræma aðgerðir hinna ýmsu nefnda innan ramma langtímaáætlunar- gerðar. Kjarni ráðanna er þriggja manna starfshópur, sem getur kall- að til sín formenn nefnda og for- 28 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.