Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 48

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 48
HEILBRIGÐISMÁL i heilbrigdisáætluninni er gert ráö fyrir, að heilsugæzlustöðvarnar séu hornsteinn heilsugæzlunnar. Myndin er af heilsugæzlustöðinni á Seltjarnarnesi. Ljósm. Gunnar G. Vigfússon. stöövar annist geðsjúklinga í aukn- um mæli, ekki sízt meö tilliti til þess, hve mikla þýðingu það hefur, að meðferð þeirra sé í heimaum- hverfi, ef þess er nokkur kostur. 26. markmiö er, að öldrunarþjón- ustan verði tengd heilsugæzlu- stöðvum og félagslegri aðstoð sveitarfélaga, svo sem lög gera ráð fyrir. Lögð verði áherzla á endur- hæfingu aldraðra og að þeir geti dvalizt í heimahúsum sem lengst með heilbrigðis- og félagslegri að- stoð samfélagsins. 27. markmiö er, að endurskoðuð verði ýmis ákvæði almannatrygg- ingalaga þ.m.t. um örorkumat, sjúkradagpeninga og greiðslur sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu. Við endurskoðun verði þess sér- staklega gætt, að fólki sé ekki mismunað eftir því, hvar það er bú- sett á landinu. Parf í því sambandi að taka tillit til ferða- og uppihalds- kostnaðar sjúklinga og aðstand- enda (fylgdarmanns), sé um að ræða sjúkdóm, sem ekki er hægt að rannsaka eða meðhöndla í heimabyggð. 28. markmió er að taka öll málefni lyfsölu og lyfjaneyzlu til sérstakrar athugunar. Sérstaklega verði athugaðir möguleikar heilsu- gæzlustöðva á að annast lyfsölu og ráða til þess lyfjafræðinga á sama hátt og lækna og annað heil- brigðisstarfslið. Upplýsingar til fólks um lyf og lyfjaneyzlu verði stórauknar. Sérstakar ráðstafanir verði einnig gerðar til þess að draga úr ónauðsynlegri og óhóf- legri lyfjaneyzlu, hvort sem hún er á kostnað sjúkratrygginga eða ekki. 29. markmió er, að settar verði reglur um rétt sjúklinga til bóta, ef þeir verða fyrir heilsutjóni vegna læknismeðferðar eða vegna veru á sjúkrastofnun, þegar rekja má heilsutjón til óhapps, sem þó ekki stafar af vítaverðu gáleysi heil- brigðisstarfsmanns. Framlög til heilbrígöis- mála og mannafli 30. og 31. markmiö eru um áætl- anagerð í heilbrigðismálum, ann- ars vegar um byggingar og hins vegar um mannaflaþörf. Lagt er til, að námsskrár skóla almennt og skóla heilbrigðisstétta sérstaklega verði endurskoðaðar með sér- stöku tilliti til þeirrar áherzlu, sem leggja skal á heilsugæzlu og heil- brigðisfræðslu. Rannsóknir og alþjóólegt samstarf 32. markmiö er, að fullnægjandi upplýsingakerfi til eftirlits og mats á heilbrigðisþjónustunni verði skipulagt fyrir árið 1990. Heil- brigðisrannsóknir verði efldar og tryggð nauðsynleg aðstaða og fjölgun fólks, sem stundar þær rannsóknir. Sérstaklega verði sinnt rannsóknum á sambandi lífs- máta fólks og umhverfis á heilsufar þess sem og rannsóknum á heil- brigðisþjónustunni, hvernig hún starfar og hver sé árangur þess starfs fyrir almennt heilsufar í land- inu. Að lokum er í 33. markmiöi lagt til, að áætlun verði gerð um þátt- töku íslands í alþjóðlegu samstarfi um heilbrigðismál. Lokaord Markmið Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar, Heilbrigði allra árið 2000, er háleitt og göfugt. Það snertir ísland ekki síður en þau ríki, þar sem heilbrigði er af skorn- um skammti og mjög misskipt. Þeim fer fjölgandi, sem gera sér grein fyrir, að heilbrigðismál og heilbrigði landsmanna eru ekki einkamál heilbrigðisstétta. fs- lenzka heilbrigðisáætlunin markar að því leyti tímamót, að þar eru boðaðar breyttar áherzlur m.a. með virkri þátttöku almennings við að stuðla að betra heilsufari öllum til handa. Því er það vel við hæfi að kynna sveitarstjórnum í sem stytztu máli helztu atriði áætlunar- innar, eins og hér hefur verið gert. Verkið er hafið. Framhald þess ræðst af viðtökum ráðamanna, heilbrigðisstétta og almennings. Erum við tilbúin að stíga þau skref, sem lagt er til í þeim tilgangi að: - stuðla að heilbrigðu líferni - draga úr hættum, sem valda heilsutjóni - reka heilbrigðiskerfi, sem þjónar fólkinu i landinu? Þeirri spurningu er beint til þín, lesandi góður. 42 SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.