Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 58

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 58
LANDSHLUTASAMTÚKIN 29 fjórðungsþing Norðlendinga: Sveitarfélögin taki við auknum verkeínum Fjórðungsþing Norðlendinga, hið 29. í röðinni, sem haldið var á Dalvík dagana 26. og 27. ágúst 1987, hvatti til þess, að aðlögunartími nýju sveitarstjórnarlaganna varðandi sýslufélög yröi lengdur þannig, að sýslunefndir gætu starfað alit til loka yfirstandandi kjörtímabils árið 1990. Þingið taldi, að samfara flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga þurfi að skoða nánar ýmsar hugmyndir um þriðja stjórnsýslustigið til að leiða í Ijós, hvort hugsanleg tilkoma þess sé sú leið, sem bezt er, til að færa aukið vald og þjónustu út um landið. Þá var því beint til samtaka sveitar- félaga, að látin verði í té aðstoð við stofnun héraðsnefnda og til sveitar- félaga, að þau kanni, hvort haga eigi uppbyggingu nefndanna þannig, að þær stuðli að eða annist svæðis- bundið samstarf sveitarfélaga um til- tekin verkefni og myndi þannig stærri einingar. Um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga gerði þingið svofellda ályktun: „Fjórðungsþingið telur álitsgerð stjórnskipaðra nefnda um breytt verkefna- og fjármálaskil á milli ríkis og sveitarfélaga vera grundvöll til umræðu um næstu sporin í tilfærslu verkefna frá ríkinu til sveitarfélaga. Á hinn bóginn leggur þingið áherzlu á, að áður en ákvörðun verður tekin um breytt verkefna- og fjármálaskil, þurfi að liggja fyrir tölur um áhrifin á stöðu einstakra sveitarfélaga. Rétt þykir að benda á, að sú leið er ófær að skerða tekjur sveitarfélaga úr jöfnunarsjóði þeirra vegna útgjalda ríkissjóðs. Fjórðungsþingið telur, að sveitarfétögin eigi að taka við aukn- um verkefnum, og því sé aðkallandi, að á næstunni verði stigin spor í þá átt að færa þau til þeirra ásamt til- svarandi tekjum. “ I framhaldi af þessari ályktun beindi þingið því til fjórðungsstjórn- ar, að hún hefði forgöngu um, að gerð yrði úttekt á áhrifum tillagna um breytta verkaskiptingu fyrir sveitar- félög á Norðurlandi og að þeirri úttekt yrði hraðað svo sem kostur væri. Þetta voru niðurstöðurnar um helztu dagskrármál þingsins, sem stóð í tvo daga í íþróttasalnum á Dalvík. Valtýr Sigurbjarnarson, bæjarstjóri í Ólafsfirði og formaður Fjórðungs- sambands Norðlendinga, setti þing- ið og flutti skýrslu stjórnarinnar, og Áskell Einarsson, framkvæmdastjóri þess, flutti einnig skýrslu og kynnti ársreikning og fjárhagsáætlun næsta starfsárs. Við upphaf þingsins fluttu ávörp Árni Gunnarsson, alþingismaður, sem flutti kveðjur félagsmála- og fjármálaráðherra, Sigurgeir Sigurðs- son, sem flutti kveðjur stjórnar Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga, og Guðjón Ingvi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé- laga í Vesturlandskjördæmi. Þingforseti var Trausti Þorsteins- son, forseti bæjarstjórnar Dalvíkur, og varaforsetar Sveinn E. Jónsson, oddviti Árskógshrepps, og Magnús Stefánsson, hreppsnefndarmaður í Arnarneshreppi. Ritarar þingsins voru Birgir Þórðarson, oddviti Öng- ulsstaðahrepps, og Björn Þórleifs- son, oddviti Svarfaðardalshrepps. Ráðinn fundarritari var Hreinn Bern- harðsson, kennari í Ólafsfirði. Framsöguerindi Sigurður Helgason, bæjarfógeti á Seyðisfirði og sýslumaður Norður- Múlasýslu, flutti framsöguerindi um þriðja stjórnsýslustigið. Sigurgeir Sigurðsson ræddi um breytingar á verkefna- og fjárhagsskilum ríkis og sveitarfélaga og um staðgreiðslu- kerfi gjalda. Áskell Einarsson kynnti álit starfshóps, sem fjallað hafði um héraósnefndir og byggðasamlög. Lárus Jónsson, fv. alþm., kynnti loks hugmynd Þróunarfélags íslands hf. um þróunar- og fjárfestingarfélög í landshlutum. Álit nefnda og ályktanir Um framsöguerindin og framlagð- ar tillögur var síðan fjallað í starfs- nefndum þingsins. Þær voru fimm og talsmenn þeirra eins og hér segir: Valtýr Sigurbjarnarson hafði orð fyrir fjórðungsmála- og allsherjar- nefnd þingsins. Að tillögu nefndar- innar voru gerðar þær samþykktir, sem sagt er frá fyrst í þessari frásögn. Ennfremur var að tillögu nefndar- innar tekið undir hugmyndir Náttúru- fræðistofnunar Norðurlands á Akur- eyri og talið brýnt að taka upp við- ræður við ríkisvaldið um vísinda- og gagnamiðstöð á Akureyri. Guðmundur Sigvaldason, sveitar- Sigurdur Helgason, bæjarfógeti, flytur framsöguerindi á þinginu. Ljósm. Jóhann Ó. Halldórsson. 52 SVEITARSTJÓRNARMÁL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.