Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 66

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Blaðsíða 66
FJÁRMÁL Framlög til atvinnuleysistrygg- ingasjóðs hækka um 30% Ríkissjóður greiðir helming framlaga til atvinnuleysistryggingasjóðs, en at- vinnurekendur á hverjum stað og hlutað- eigandi sveitarfélag fjórðung hvor um sig. Framlag atvinnurekenda á hverjum stað reíknast sem meðalkaup í hverjum launa- taxta á undanfömu ári og breytist í hlutfalli við unnar vinnuvikur í hverju sveitarfélagi. Framlög sveítarfélaganna, sem eru jafnhá iðgjöldum atvinnurekenda, hækka því misjafnlega mikið í hinum einstöku sveitar- félögum eftir atvinnuástandinu á hverjum stað. Sigurður Flermundarson, deildarstjóri í Ríkisendurskoðun, gerir ráð fyrir, að fram- lög til atvinnuleysistryggingasjóðs hækki milli áranna 1987 og 1988 um 30% til jafnaðar. Hann reiknar með, að framlög sveitarfélaganna verði samanlagt 200 millj. króna. Framlag til sjúkrasamlaga hækkar um 52% Gerf er ráð fyrir því, að sögn Sigurðar Hermundarsonar i Ríkisendurskoðun, að framlög sveitarfélaga til sjúkrasamlaga hækki milli áranna 1987 og 1988 um 52%. Er þá búizt við, að framlög sveitarfélag- anna samanlagt til þessa málaflokks nemi 1.360 millj. króna í ár. Mílli áranna 1986 og 1987 var gerf ráð fyrir 40% hækkun. Er af 'þessu Ijóst, að þessí útgjaldaliður hækkar enn langt umfram verðlagsbreytingar í landinu. Stafar það að sögn Sígurðar að mestu leyti af aukningu á heilbrigðisþjón- ustunni. Milli tveggja seinustu ára varð mest hækkun á kostnaði við lyf og tann- lækningar. Ríkissjóður greiðir 85% kostnaðar vegna sjúkrasamlaga, en sveitarsjóðir 15%. Nokkurt frávik getur verið á hækkunarhlut- fallinu frá einu sveitarfélagi til annars. Þéttbýlisvegaféð 500 krónur á íbúa 1988 Þéttbýlisvegaféð samkvæmt V. kafla vegalaga nam á árinu 1987 fjárhæð sem svarar til 425 króna á hvern ibúa í sveitar- félagi, sem þess nýtur, en það voru á árinu 66 sveitarfélög í kaupstöðum og kauptún- um. Hlutu þau samanlagt 93 millj. króna. Árið á undan hafði framlagið numið sem svarar 391 krónu á ibúa og aðeins hækkað milli ára um 8,6%. ( ár er ætlað, að fram- lagið verði sem svarar 500 krónum á íbúa og hækki því frá síðasta ári um 17,6%, að því er Einar H. Kristjánsson, skrifstofustjóri hjá Vegagerð rikisins, tjáir tímaritinu. Auk hinna almennu framlaga til þéttbýlis- vega, sem skiptast eftir mannfjölda hinn 1. desember á undan greiðsluári, rann 31 millj. króna til 26 þéttbýlissveitarfélaga skv. 34. gr. vegalaga, þ.e. úr svonefndum 25% sjóði, en sú fjárhæð er fjórðungur þéttbýlis- vegafjárins, og er notuð til þess að flýta gerð vega með bundnu slitlagi, þar sem sérstök ástæða þykir til að Ijúka tilteknum áfanga í gatnageró. ( þriðja lagi er af þéttbýlisfé ráðstafað framlögum til bundins slitlags á þjóðvegi í kaupstöðum og kauptúnum. Samkvæmt þeim úthlutunarflokki hlutu 10 sveitarfélög 24 millj. króna á síðasta ári. Hæstu framlög- in voru 5 og 6 millj. króna. Sækja þarf um þéttbýlisvegafé annað en almennu framlögin, sem miðast við íbúatölu, eins og áður segir. Fjárveitinga- nefnd Alþíngis úthlutar fénu, en Jón Rögn- valdsson, yfirverkfræðingur hjá Vegagerð rikisins, veitir umsóknum viðtöku fyrir hönd nefndarinnar. Úthlutun fer jafnan fram á vorin, áður en Alþingi gerir hlé á störfum sínum. Þeir, sem vilja koma til álita við úthlutun í ár, ættu að senda umsókn sína um framlag sem allra fyrst. Fyrirframgreiðsla aðstöðu- gjalda Þrátt fyrir staðgreiðslu útsvara innheimta sveitarfélög aðstöðugjald með sama hætti og áður hefur tíðkazt, og er heimilt að inn- heimta það á tíu gjalddögum, þ.e. hinn fyrsta hvers mánaðar nema í janúar og júní. Þar til álagning liggur fyrir, er gjaldanda gerf að greiða í fyrirframgreiðslu fjárhæð, sem nemur tilteknum hundraðshluta af því aðstöðugjaldi, sem honum var gert að greiða undangengið ár. Skal þessi hundraðshluti fyrir hvert ár ákvarðast með reglugerð, sem fjármálaráðherra setur. Með reglugerð nr. 600 frá 28. desember sl. hefur fjármálaráðherra ákveðið þetta hundraðshlutfall 13,1 af álögðum aðstöðu- gjöldum síðasta árs, og ber að greiða það, þangað til álagning liggur fyrir. Er þetta skv. 8. gr. laga nr. 38/1987. __________________Auglýsing___________________________ um styrki Evrópuráösins á sviöi læknisfræði og heilbrigðisþjónustu fyrir árið 1989 Evrópuráðið mun á árinu 1989 veita starfsfólki í heilbrigðisþjónustu styrki til námsferða í þeim tilgangi, aö styrkþegar kynni sér nýjungar í starfsgreinum sínum í löndum Evrópuráðsins og í Finnlandi. Stjórnarnefnd heilbrigðismála í Evrópuráðinu ákvað, að á árinu 1989 skuli lögð áherzla á verkefnið: ..Hlutverk kvenna í heilbrigðisþjónustunni (í heilsu- gæzlu, meðferð, forvörnum og menntun) bæði sem þiggjendur og gefend- ur“. Umsækjendur um styrki, er tengjast þessu verkefni, munu ganga fyrir á árinu 1989. Styrktímabil hefst 1. janúar 1989 og lýkur 1. desember 1989. Um er að ræða greiðslu ferðakostnaðar og dagpeninga samkvæmt nánari reglum. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 55 ára, hafa gott vald á tungumáli þess lands, sem sótt er um, og ekki vera í launaðri vinnu í því landi. Umsóknareyðublöð fást í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, og eru þar veittar nánari upplýsingar um styrkina. Umsóknir skulu hafa borizt ráðuneytinu fyrir 10. marz nk. Heilbrigðis- og tryggingamáiaráðuneytið 60 sveitarstjórnarmAl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.