Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Síða 69
ÝMISLEGT
hæfingarstofnanir og fræöslustofn-
un heymarskertra, skoða skrif-
stofuhúsnæði Sambands finnskra
bæja og taka þátt í síödegisboöi
félags- og heilbrigöismálaráöherra
og borgarstjórans í Helsinki.
Formaður finnska bæjasam-
bandsins, Raimo llaskivi, borgar-
stjóri í Helsinki, setur ráðstefnuna,
og félags- og heilbrigðismálaráð-
herra Fínnlands flytur ávarp, en
lokaávarp hennar flytur Jussi-Pekka
Alanen, framkvæmdastjóri sam-
bandsins, sem er formaður undir-
búningsnefndarinnar.
Nánari upplýsingar eru fáanlegar
á skrifstofu sambandsins, svo og
eyðublöð undir þátttökutílkynningu.
Ráðstefna um áhrif
sorphauga á grunnvatn og
yfirborðsvatn
Ekki fer framhjá neinum sá vandi,
er fylgir þvi að koma hvers kyns
mengandi efnum fyrir á tryggilegan
hátt, hvort sem um er að ræða olíu,
sorp eða annan úrgang. Ekki sízt
verður að gæta þess að menga ekki
neyzluvatn eða vatn til fiskeldis.
Sem betur fer, eigum við ekki við
sama vanda að striða og sumar
frændþjóðir okkar, eins og t. d.
Danir eða Svíar. í Danmörku hafa
menn miklar áhyggjur af því, af of-
notkun áburðar í landbúnaði leiði til
stórfelldrar mengunar neyzluvatns,
og í Svíþjóð hefur verið mikil um-
ræða um það, hvemig fara beri með
geislavirkan úrgang frá kjam-
orkuverum. Eiga þó margar þjóðir
raunverulega í meiri erfiðleikum en
Svíar í því efni.
Áhrif sorphauga á grunnvatn og
yfirborðsvatn verða tíl umfjöllunar á
alþjóðlegri ráðstefnu, sem haldin
verður i sumar í Kaupmannahöfn á
vegum dönsku Vatnafræðinefnd-
arinnar, en hún heyrir undir ráðu-
neyti og stofnun, sem kennd ern við
umhverfismál. Pessi ráðstefna er
einn þáttur í víðtæku samstarfi um
vatnafræði innan Efnahags- og
framfarastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO), sem bæði fer
fram á alþjóðlegum og á norrænum
vettvangi.
Alþjóðlegt vatnafræöisamstarf á
sér einnig tengílíð á íslandi, og fer
íslenzka vatnafræðinefndin með það
hlutverk. Framkvæmdastjóri hennar
er Kristinn Einarsson, vatnafræðing-
ur á Orkustofnun.
Ráðstefnan verður haldin í Kaup-
mannahöfn 15.-19. ágúst í sumar,
og þeir, sem vilja fá nánari
upplýsíngar, ættu að hafa samband
sem fyrst víð framkvæmdastjórann i
sima 91-83600 á Orkustofnun eða
bréflega á Grensásveg 9, Reykjavík.
Peir, sem um skipulags-, sorp- og
vatnsmál fjalla, eru sérstaklega
boðnír velkomnir á þessa ráðstefnu
til þess að ræóa vandamál sín og
skiptast á skoðunum um lausn
þeirra.
Kristinn Einarsson.
Gunnar H. Krislinsson
hitaveitustjóri í Reykjavík
Gunnar Hafsteinn Kristinsson,
yfirverkfræðingur hjá Hitaveitu
Reykjavíkur, hefur verið ráðínn
hitaveitustjóri þar frá 1, janúar sl.
Um áramótin lét Jóhannes Zoéga af
þvi starfi vegna aldurs.
Gunnar er fæddur í Reykjavík 1.
nóvember 1930, laukstúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavik árið
1950 og B.Sc. Hons. prófi í vélaverk-
fræði frá Edinborgarháskóla árið
1957. Hann réðst til Hitaveitu
Reykjavíkur áríð 1958, varð deildar-
stjóri tæknideildar árið 1963 og
hefur verið yfirverkfræðingur frá
árinu 1968.
Gunnar er kvæntur Auðbjörgu
Brynjólfsdóttur, og eiga þau 8 börn.
Nýr framkvæmdastjóri
Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar
Sigurður P. Sígmundsson, hag-
fræðingur, hefur verið ráðínn fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hf. frá 1. febrúar. Ingi
Bjömsson, sem gegnt hafði starfinu
frá míðju árí 1986, hefur ráðizt sem
fjármálastjóri hjá Álafossi hf.
Sigurður er fæddur 28. febrúar
1957, og voru foreldrar hans Fanney
Óskarsdóttir og Sigmundur Finns-
son, sem lézt i ársbyrjun 1959. Hann
ólst upp hjá móður sinni og stjúpföð-
ur, Guðmundi Björgvinssyni, bónda
á Hörgslandí á Síðu, til 12 ára ald-
urs, en fluttist þá tíl Hafnarfjarðar.
Sígurður lauk stúdentsprófi frá
Flensborgarskóla vorið 1977 og
prófi í hagfræði frá Edin-
borgarháskóla árið 1982. Starfaði
frá 1982 til 19871 sjávar-
útvegsráðuneytinu, fyrst sem fulltrúi
og síðan deildarstjóri og hafði um-
sjón með rekstrar- og fjárhagsmál-
um ráðuneytísins, sat í stjórn
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins og
starfaði í ýmsum nefndum fyrir hönd
þess. Frá 1. júli hefur hann verið
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs
Norðurlands hf.
Sambýliskona Sigurðar er Marta
Jörgensen, og eiga þau fjögurra ára
dóttur.
Sigurður hefur um árabil verið í
fremsta flokki langhlaupara á land-
inu og á íslandsmetið í maraþon-
hlaupi.
Nýir oddvitar
í Haukadalshreppi
í Haukadalshreppi í Dalasýslu tók
Árni Sigurðsson i Köldukinn við
starfi oddvita hinn 12. ágúst sl. af
Jósefi Jóhannessyní á Gíljalandi,
sem lézt 8. september. Sæti Jósefs í
hreppsnefnd tók Ólafur
Guðjónsson, bóndi á Leikskálum,
sem var fyrsti varafulltrúi. Breyting
þessi færist inn á bls. 97 í
Sveitarstjórnarmannatali 1986 -
1990.
í Tjörneshreppi
I Tjörneshreppi í
Suður-Þingeyjarsýslu var Kristján
Kárason á Ketilsstöðum kosínn
oddviti í stað Hermanns
Aðalsteinssonar á Hóli, sem lézt 5.
ágúst sl. Sæti Hermanns í
hreppsnefnd tók Sigrún
Ingvarsdóttir á Héðinshöfða. Hún
sat í hreppsnefndinni á síðasta
kjörtímabili. Breyting þessi færist á
bls. 136 í Sveitarstjórnarmannatal
1986 - 1990.
í Hrunamannahreppi
Hróðný Sigurðardóttir í Dalbæ,
varaoddviti Hrunamannahrepps,
lézt ásamt eígínmanni sínum í
umferðarslysi 28. nóvember. Hún
starfaði á skrifstofu hreppsins
hálfan daginn. Sæti hennar í
hreppsnefnd tók Magnús
Gunnlaugsson á Míðfellí, en Kjartan
Helgason, hreppstjóri í Hvammi,
hefur verið kosinn varaoddvití. Sjá
Sveitarstjórnarmannatal 1986 -
1990, bls. 173.
FRESTIR
31.marz
Eigi síðar en 31. marz þarf sveitar-
félag að tilkynna skattstjóra, hvort
og hvemig það hyggst nýta heimild
tekjustofnalaganna til álagningar
aðstöðugjalds í ár.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 63