Milli mála - 01.01.2010, Blaðsíða 56
tungu, Half-dán,15 gerir Kristjana nafnið að nýjum blendingi sem er
við hæfi þar sem hún er sjálf hálfur Dani, dönsk í aðra ættina.
Kristjana dregur semsagt enga dul á að hún fái að láni, heldur
fer hún að dæmi kanadíska höfundarins Timothy Findley
(1930–2002), sem gerði eina frægustu ljóðapersónu Ezra Pounds,
Hugh Selwyn Mauberley í samnefndu ljóði (1920), að aðalpersónu
í skáldsögu sinni Famous Last Words (1981). Findley staðhæfði að
ritstuldur væri einfaldlega syndsamlegur, en þjófnaður á efni frá
öðrum höfundum væri í stakasta lagi svo fremi sem nafn fórnar-
lambsins væri hrópað af húsþökum og höfundurinn hefði nægilegt
ímyndunarafl til að grípa umfram þjóftekið efnið og setja það í nýtt
samhengi.16 Í stað þess að nafns upprunalegs sögumanns sé alls
ekki getið eða að það birtist í smáu letri í neðanmálsgrein hjá
Kristjönu, að hætti fræðimannsins, er það stórletrað efst á blaði og
Halfdán er aðalsöguhetjan í sögunni „guest“.
3. Endurheimtur
Sögumaður Kristjönu og helsti túlkandi er hinsvegar dóttir
Halfdáns, anna, og það er afar mikilvæg kúvending á sjónarhorni.
Hálfdán nefnir engan úr fjölskyldu sinni í upprunalegri frásögn í
bókinni um nýja Ísland, nema konuna sína elskulega sem sér um
börn og bú og tekur bónda sínum eilíft fagnandi að ferð lokinni.
Það er ekki Hálfdán heldur Þorleifur Jóakimsson sem segir í Broti
af landnámssögu Nýja Íslands: „Hálfdán telur ætt sína til Jóns bisk-
ups arasonar í 11. lið“.17 Í smásögu Kristjönu rekur anna aftur á
móti ættfærslur Þorleifs: hún byrjar á að kynna sig sjálfa, svo
móður sína Solveigu og loks föður sinn Halfdán; þá segist hún hafa
átt sjö systkini um ævina en að lokum nefnir hún Valdimar bróður
sinn. Þorleifur segir þrjú börn Hálfdáns og Solveigar af átta hafa
lifað, þau önnu, Valdimar og Jóhönnu.
ÞýðIng, SKöPun, aðLögun?
56
15 Í enskri þýðingu yrði nafnið half-Dane.
16 Kristjana gunnars, „Transcultural appropriation. Problems and Perspectives“, Stranger at
the Door. Writers and the Act of Writing, Waterloo, Ontario: Wilfrid Laurier university
Press, 2004, bls. 43–53; hér bls. 43–46.
17 Þorleifur Jóakimsson (Jackson), Brot af Landnámssögu Nýja Íslands, Winnipeg: Columbia
Press, 1919, bls. 40.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 56