Milli mála - 01.01.2010, Blaðsíða 86
heilda; hún lýsir því hvernig hver og einn aðili í þessari blóðugu
baráttu er sundraður hið innra sem ytra.33 Þrátt fyrir baráttu hennar
gegn nýlendustefnunni skrifar hún einnig gegn Fanon og öðrum
sem skrifuðu um þjóðernisbaráttu og andspyrnu gegn frönsku
nýlenduvaldi eingöngu út frá karllegri reynslu, þar sem raddir
kvenna heyrast ekki eða eru bældar. Hún heldur því áfram í bókum
sínum um borgarastyrjöldina sem braust út í alsír á tíunda áratug
20. aldar (þ.e. í Vaste est la Prison, Oran, langue morte og Le
Blanc d’Algérie). Markmiðið er að gera reynslu kvenna miðlæga
og tengja hana við hina pólitísku baráttu gegn valdi: feðraveldinu,
nýlenduherrum eða trúarofbeldi. Í Oran, langue morte og Le Blanc
d’Algérie fjallar Djebar um hina brotnu ímynd heimalands síns sem
orðið hefur íslömsku ofbeldi að bráð – og það gerir hún með bein-
um skírskotunum til menntamannamorðanna eins og áður sagði.
Hún dregur upp átakanlegar myndir af menntamönnum sem hafa
verið myrtir, fjallar um minninguna um vini sem hún hefur misst.
Frásögnin einkennist af spennu milli þess að muna og gleyma.
umfjöllun Djebars um sorgina ber merki þess að hún sé stöðugt
að fjarlægjast heimaland sitt. Þetta kemur síðan enn betur fram í
Les Nuits de Strasbourg (næturnar í Strassborg, 1997)34, en þar
tekur hún upp þráðinn þar sem frá var horfið áður en hún fór að
skrifa um borgarastyrjöldina í alsír. Dregin er upp mynd af alsír
sem landi sem hefur liðast í sundur. gegn heimalandi sínu teflir
hún Strassborg sem rými fyrir samræðu ólíkra menningarheima og
sem mögulegum stað sátta. Djebar er hætt að skrifa um ofbeldið og
hefur snúið sér að því skrifa um ímyndað alsír. Þetta nýja alsír,
eins og hið nýja tungumál hennar, er ekki bundið landsvæði, held-
ur beinist gegn ofbeldi og er hlutlaust: Það er byggt á hugmyndum
og minningum um stað sem hefur tortímt sjálfum sér.
TunguMÁL úTLEgðar – uM SKrIF aLSÍrSKa rITHöFunDarInS aSSIu DJEBar
86
33 Sjá grein Mireille Calle-gruber „La servante du texte“, Assia Djebar: la littérature et la
transmission, ritstj. Wolfgang asholt, Mireille Calle-grube og Domique Combe, París:
Presses Sorbonne nouvelle, 2010, bls. 197–210, hér bls. 202.
34 assia Djebar, Les Nuits de Strasbourg, París: actes Sud, 1997.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 86