Milli mála - 01.01.2010, Blaðsíða 149
mikinn fjölda að ræða í heild og því vegur hver titill hlutfallslega
mikið. Lægst er hlutfallið árið 1980, eða 15%, en hæst árið 2000, eða
80%. Í sjö tilvikum er hlutfallið undir 50%, en í átta tilvikum yfir 50%.
Hér má aðeins staldra við og velta fyrir sér hvaða hugmyndir
mætti gera sér um það hvaða verk norrænna höfunda væri eðlilegt
og sjálfsagt að þýða á íslensku. nærtækt er að ætla að skáldverk
sem tilnefnd eru til Bókmenntaverðlauna norðurlandaráðs26 hverju
sinni myndu hafna á þeim lista og verðlaunabækurnar nokkuð
örugglega. raunin er önnur. Frá upphafsári verðlaunanna 1962
hafa fimmtíu bækur verið verðlaunaðar, þar af sex íslenskar. af
hinum 44 hafa aðeins þrettán verið þýddar á íslensku. reyndar eru
allnokkrar ljóðabækur á listanum og snúnara þykir að þýða ljóð en
laust mál, þó er vart hægt að horfa fram hjá því að þrettán af 44 er
nokkuð lágt hlutfall, eða tæplega 30%.
af þessum þrettán verðlaunabókum sem þýddar hafa verið á
íslensku eru tvær danskar, ein færeysk (skrifuð á dönsku), þrjár
finnskar, þrjár norskar og fjórar sænskar. Segja má að skipting milli
tungumála sé nokkuð jöfn en ekki verður það sama sagt um dreif-
ingu verkanna í tíma. Á sjöunda áratugnum voru þrjár bækur þýdd -
ar, tvær á þeim áttunda, fjórar á þeim níunda, ein á þeim tíunda og
þrjár eftir aldamót.
Það má velta því fyrir sér hvers vegna ekki skuli fleiri þessara
verka hafa verið þýdd á íslensku. annars vegar rímar það illa við
þá ímynd sem Íslendingar vilja halda á lofti um bókmenntaáhuga
þjóðarinnar. Hins vegar er á það að líta að þýðingar á slíkum verk-
um krefjast bæði fjármagns og hæfra þýðenda. Ekki skal hér lagt
mat á hvort ræður meiru kostnaður eða skortur á hæfileikafólki. En
markaðurinn virðist móttækilegur sé tekið mið af gengi nýjustu
verðlaunabókarinnar, Hreinsun, eftir Sofi Oksanen, en hún var í 9.
sæti yfir söluhæstu bækur ársins 2010 á Íslandi.27
önnur norræn verðlaun eru glæpasagnaverðlaunin glerl yk -
illinn,28 sem veitt hafa verið af samtökunum Skandinavisk krim-
ÞÓrHILDur ODDSDÓTTIr
149
26 „Bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs“, http://www.norden.org/is/nordurlandarad/verth-
laun-northurlandaraths/bokmenntaverthlaunin [sótt 29. desember 2010].
27 „uppsafnaður metsölulisti tímabilið 1. janúar – 26. desember 2010“, rannsóknasetur versl-
unarinnar, Háskólinn á Bifröst, http://www.rsv.is/pages/metsolulisti-boka/metsolulisti-boka/
[sótt 29. desember 2010].
28 „Frederiksborg kommunes biblioteker“, http://www.fkb.dk/voksne/bger/kriminalromaner/
glasnglen [sótt 30. desember 2010].
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 149