Milli mála - 01.01.2010, Blaðsíða 139
þýðingum skáldverka ár hvert. Lægst var hlutfallið 2008, eða
12,9%, en fer í 31,6% strax árið eftir og metárið 2010 fer hlutfallið
í 36,4%. Heildarfjöldi14 íslenskra skáldverka 2000 til 2010 er sam-
kvæmt Bókatíðindum 726, þýdd skáldrit sama tímabils voru 690,
þar af þýdd úr norðurlandamálum 162, eða 23,4%.
Erfiðara er að finna heimildir fyrir framboði á erlendum bókum,
og er það að mestu byggt á huglægu mati, en í bókabúðum á Ís landi
er meira framboð skáldrita á ensku en öðrum tungumálum, megnið
í kiljum, en þó fást líka innbundnar bækur. Lítið framboð er á skáld -
ritum á öðrum erlendum málum. Leitun er að bókum á frönsku,
þýsku, spænsku eða norðurlandamálum. Sem dæmi má taka, að
bækur um Múmínálfana er hægt að kaupa á ensku, en ekki sænsku
og að bækur Stiegs Larssons voru í fyrstu aðeins fáanlegar í enskri
þýðingu hér á landi.
Áður fyrr var hægt að ganga að þokkalegu framboði á bók-
menntum norðurlanda á þess tíma mælikvarða, og reyndar mátti
stundum finna bækur, jafnvel bókaflokka, þýddar af ensku á
norðurlandamál. Ég minnist þess að hafa kynnst agöthu Christie
ÞÓrHILDur ODDSDÓTTIr
139
14 Hér má reikna með smávegis skekkju, þar sem nokkrir titlar eru tvítaldir, þ.e. útgáfa í
harðspjaldaformi telst sérstakur titill árið sem hún kemur út og útgáfa í kiljuformi kemur
líka fram sem sérstakur titill, oft ári síðar. Þetta gildir jafnt um norrænar bækur sem aðrar
svo það hefur lítil áhrif þegar á heildina er litið.
Tafla 2. Tölur yfir útgáfu skáldrita sem getið er í Bókatíðindum, auk útgáfu
rauðu seríunnar, en í henni eru eingöngu skáldsögur þýddar úr ensku.
Ártal 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 Alls
Skáldrit
á ísl. 55 53 62 45 57 70 64 81 75 84 80 726
öll þýdd
skáldverk 51 36 40 44 63 70 65 80 85 79 77 690
Þýðingar af
norðurlanda-
málum 10 8 7 10 16 18 12 17 11 25 28 162
Hlutfall
norðurlanda-
bóka af heild 19,6% 22,2% 17,5% 22.7% 25,4% 25,7% 18,5% 21,3% 12,9% 31,6% 36,4% 23,4%
rauða serían 60 60 60 60 60 60 60 60 60 60 60 660
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 139